Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2017, Síða 14

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2017, Síða 14
14 tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 93. árg. 2017 Af hverju ítalskir en ekki íslenskir karlmenn? Helga Ólafs Gísli Kort Kristófersson, lektor og formaður hjúkrunarfræðideildar Háskólans á Akureyri. Á sama tíma og Ísland trónir á toppnum í árangri í jafnréttismálum þá eru eingöngu 2% hjúkrunarfræðinga á Íslandi karlar. Til að sporna við þessu lága hlutfalli hefur há- skólinn á akureyri, í samvinnu við jafnréttisstofu, sett fram aðgerðaáætlun og markmið að hlutfall karlmanna, sem útskrifist af heilbrigðisvísindasviði, verði 10% árið 2023. „Við erum alltaf að leita leiða til að fjölga karlmönnum í stéttinni,“ segir dr. gísli kort kristófersson. Í félagi við dr. Eydísi kr. Sveinbjarnardóttur við heilbrigðisvísinda - svið háskólans á akureyri flutti hann erindi á ráðstefnunni hjúkrun 2017 um aðgerða áætlun og stefnumótun til að hækka hlutfall karla í hjúkrun. Verkefnið, sem styrkt er af norrænu ráðherranefndinni, felst í að kortleggja stöðu karla í hjúkrunar- námi á Íslandi, Danmörku og noregi. hlutfallið þar er heldur hærra, eða 3½% í Dan- mörku og 9% í noregi. hlutfallið er enn hærra víða annars staðar, en á Ítalíu eru karlmenn fjórðungur stéttarinnar og helmingur allra hjúkrunarfræðinga í Márítíus. Lykill að langtímabreytingum Í erindinu veltu þau fyrir sér af hverju ítalskir karlmenn geti orðið hjúkrunarfræðingar en ekki íslenskir. Það skjóti skökku við þegar litið er til árangurs Íslands í jafnréttis- málum. Ísland hefur trónað í efsta sæti undanfarin sjö ár samkvæmt Global Gender Gap Report, en það er skýrsla um jafnréttismál í heiminum, sem gefin er út árlega af alþjóðaefnahagsráðinu. Til samanburðar er Ítalía í 50. sæti. Það sem þarna vegur þyngst er forysta kvenna á sviði stjórnmála og aðgengi að menntun. Þá er Ísland í hópi tíu efstu landanna þegar litið er til atvinnuþátttöku og tækifæra á vinnumarkaði. fjöldi hugmynda er á teikniborðinu í þessu samnorræna verkefni. Verið er að kort- leggja stöðu karla í hjúkrunarnámi til að leita leiða hvað gengur upp og hvað ekki, og hverju þurfi að breyta. auk þess skuli stefnt að því að hlutfall karlmanna, sem útskrifist af heilbrigðisvísindasviði árið 2023, verði 10%. Þá þarf að efla fræðslu fyrir kennara og starfsfólk. Verkefnið felst til dæmis í að finna bestu leiðirnar til að hækka hlutfall karlmanna í hjúkrunarfræði, meðal annars með eigindlegum viðtölum við nemendur og kennara og rýna í námskrána okkar með kynjagleraugum, segja þau gísli kort og Eydís. „Við erum að hugsa þetta sem lykil að langtímabreytingum, ekki enn eitt átaks- verkefnið. Við teljum að það sé mikilvægt að muna að engar rannsóknir, sem við höfum fundið, benda til þess að það séu verk innan hjúkrunarfræðinnar sem henti betur konum en körlum eða öfugt.“ Verið er að kortleggja stöðu karla í hjúkrunarnámi til að leita leiða hvað gengur upp og hvað ekki, og hverju þurfi að breyta. Auk þess skuli stefnt að því að hlutfall karlmanna, sem útskrifist af heil- brigðisvísindasviði árið 2023, verði 10%.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.