Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2017, Blaðsíða 49
svefn og vaktavinna
tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 93. árg. 2017 49
Líkamsklukkan
Líkamsklukka eða dægursveifla líkamans hefur u.þ.b. 24 klukkustunda sveiflu og við
það miðast nánast öll lífeðlisfræðileg og sálræn virkni einstaklingsins (Åkerstedt,
2003). Birtubreytingar stjórna líkamsklukkunni og hafa þannig áhrif á ýmis efnaskipti
og hormónanaseytun eins og melatóníns og kortisóls. Þessar breytingar á líkamlegri
og andlegri starfsemi eiga sér stað á hverjum sólarhring og hafa áhrif á árvekni okkar,
viðbragðstíma, einbeitingu og hæfni til að leysa flókin verkefni (niu o.fl., 2011). Þá
hefur dægursveifla áhrif á hitastig líkamans sem lækkar að nóttu og veldur því að fólki
á næturvöktum verður oft kalt er líður á nóttina. Við eðlilegar kringumstæður orsakar
seytun melatóníns syfju í dimmu eða rökkvuðu umhverfi, en seytun hormónsins
kortisóls að morgni eykur árvekni. Seytun kortisóls er minnst á fyrsta svefnstigi, eykst
síðan á öðru stigi en er mest þegar við vöknum á morgnana. Þegar líður á daginn
dregur úr kortisólseytun og er seytunin á nóttunni aðeins um helmingur þess sem
hún er á daginn og er þetta nokkuð reglulegt mynstur yfir sólarhringinn. Þó má sjá
aukningu ef einstaklingurinn er undir álagi (niu o.fl., 2011).
Svefn vaktavinnufólks
Svefn vaktavinnufólks og þeirra sem stunda dagvinnu er ólíkur að mörgu leyti.
rannsóknir benda til að fólk, sem starfar við vaktavinnu, sofi bæði verr og í skemmri
tíma (nanna i. Viðarsdóttir, 2014), allt að 2–3 klukkustundum skemur en fólk sem
starfar við dagvinnu (heilsuupplýsingasíða Viktoríufylkis, 2014). Þá var vaktavinnu -
fólk marktækt líklegra en aðrir til að greinast með síþreytu (nanna i. Viðarsdóttir,
2014).
Birtubreytingar stjórna líkams -
klukkunni og hafa þannig áhrif
á ýmis efnaskipti og horm óna -
naseytun eins og mela tón íns
og kortisóls. Þess ar breyt ingar
á líkamlegri og andlegri starf-
semi eiga sér stað á hverj um
sólarhring og hafa áhrif á ár-
vekni okkar, viðbragðstíma, ein -
beitingu og hæfni til að leysa
flókin verkefni.