Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2017, Blaðsíða 90
orðinsþjónustu Landspítala og er aðalþema rannsóknarinnar.
Rauði þráðurinn í frásögnum þeirra var hversu óundirbúin
þeim fannst þau vera fyrir flutninginn og óviðbúin að takast á
við breytingarnar á þeim tíma sökum aldurs og lítils undirbún-
ings. Niðurstöðum rannsóknarinnar var skipt í fjögur yfir þemu
og sautján undirþemu, og eru þau skástrikuð í niðurstöð um
um hvert yfirþema.
Til að skýra reynslu þátttakenda af flutningnum á mynd-
rænan hátt var sett fram heildargreiningarlíkan (sjá mynd 1).
Líkanið sýnir yfir- og undirþemu rannsóknarinnar og hvernig
þau tengjast. Litið er á flutninginn sem ákveðið ferli sem byrjar
í barnaþjónustu og endar í fullorðinsþjónustu. Appelsínugula
örin táknar flutninginn. Gulu örvarnar tákna mismuninn á
barnaþjónustu og fullorðinsþjónustu. Grænu örvarnar benda
á að þörf er á úrbótum á báðum þjónustusviðum.
Erfitt að yfirgefa kunnuglegt umhverfi
Ungmennunum fannst erfitt að yfirgefa kunnuglegar aðstæður
í barnaþjónustu. Þeim fannst umhverfið þar hlýlegt og fundu
fyrir öryggi og vellíðan. Þau gerðu sér öll grein fyrir því að þau
þyrftu að flytja yfir í fullorðinsþjónustu um 18 ára aldur en
þegar að flutningi kom fannst flestum þau hafa fengið lítinn
undirbúning, voru kvíðin og leið eins og þeim væri ýtt út í að
flytja. Þau fáu sem ekki kviðu fyrir flutningnum töldu að
áhyggjurnar hefðu lent á foreldrunum. Elva lýsti líðan sinni í
barnaþjónustu á eftirfarandi hátt: „Þetta var náttúrlega bara
svona annað heimili manns af því að maður var svo oft á spítala
… svona utanumhald og hlýja þarna …“
Ungmennin sögðust hvorki hafa verið frædd um menning-
arlegan né kerfisbundinn mun á þjónustusviðum og fengu ekki
að sjá aðstæður í fullorðinsþjónustu fyrir flutning. Flest þeirra
vissu engin deili á meðferðaraðilum í fullorðinsþjónustu fyrir
flutning eins og Katrín sagði:
Ég fékk engan undirbúning, ég vissi ekki hvernig læknirinn leit
út, ég vissi ekki neitt, ég fékk ekki að hitta hann áður … ég vissi
ekkert hvert ég átti að fara í fyrsta sinn, ég þurfti að spyrjast fyrir
til þess að rata á réttan stað.
Ungmennunum fannst óvissan verst en þrátt fyrir að kvíða
flutningnum fannst sumum þeirra einnig spennandi tilhugsun
að takast á við verkefni fullorðinsáranna eins og Dagmar sagði:
Það var hræðsla við að fara frá einhverju sem ég er vön og líður
vel með í eitthvað sem er óvissa … Ég var svona kannski smá
spennt líka með smá spennuhnút í maganum að prófa eitthvað
nýtt. Ég hugsaði: … ég er að fara að fullorðnast.
Flest ungmennin fundu mikinn þrýsting á að færa sig yfir í full-
orðinsþjónustu um 18 ára aldur þó að þeim fyndist þau ekki
tilbúin til þess. Þeim fannst þau vera of ung, ekki hafa næga
stjórn á heilsuvandanum og fyrirvarinn vera of stuttur. Sumum
ungmennunum fannst þau ekki lengur velkomin í barnaþjón-
ustu og þau sem voru flutt fyrirvaralaust í fullorðinsþjónustu
fundu fyrir höfnunartilfinningu. Katrín sagði: „Þeir ráku mig
út … Mér fannst mér vera ýtt í burtu, var eiginlega ekki til búin.“
Að takast á við heim fullorðinna
Langflestum ungmennunum fannst flutningurinn erfiður og
að hann væri stórt stökk inn í framandi umhverfi sem þau
pössuðu ekki inn í. Guðný lýsti vonbrigðum þegar hún kom í
fullorðinsþjónustu:
Ég bjóst við að þetta yrði bara eins og á Barnaspítalanum en svo
var það ekki þannig. Það var allt annað umhverfi og einhvern
veginn öðruvísi starfshættir. Maður þarf alltaf að fara svo mikið
út um allt hérna til að sækja þjónustuna.
Ungmennunum fannst mjög erfitt að vera ókunnug og þekkja
engan. Elva fann til mikils óöryggis. Það varð til þess að henni
leið illa og fór að mæta stopult í eftirlit:
Það var bara erfitt að koma hingað yfir. Maður þekkti engan og
vissi ekkert. Mér fannst eins og mér hefði verið kastað ofan í
djúpu laugina. Ég skrópaði oft í tímum af því ég bara nennti
kristín lilja svansdóttir o.fl
90 tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 93. árg. 2017
Erfitt að yfir-
gefa kunnuglegt umhverfi
• Öryggi og vellíðan við
kunnuglegar aðstæður
• Lítill undirbúningur
fyrir flutning
• Kvíði fyrir því óþekkta
• Ýtt út í að flytja eða
ekki tilbúin(n)
Að takast á við
heim fullorðinna
• Stórt stökk í framandi
umhverfi eða auðvelt
og átakalaust
• Lítil samfella í þjónustu
• Söknuður eða ekki
• Aðlögun
• Aukin sjálfsábyrgð
Þetta eru svo
ólíkir heimar
• Samskipti við heil-
brigðisstarfsfólk
• Skipulag þjónustu
• Viðhorf heilbrigðis-
starfsfólks
• Umhverfi og aðstæður
Það sem
myndi auðvelda
flutninginn
• Sveigjanleiki með tilliti
til aldurs við flutning
• Aukinn undirbúningur
• Aukin tengsl á milli
þjónustusviða
• Bættar aðstæður og
skipulag í full-
orðinsþjónustu
Mynd 1. Greiningarlíkan: Reynsla ungmenna með lang-
vinnan heilsuvanda af flutningi frá barnaþjónustu til full-
orðinsþjónustu LSH