Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2017, Blaðsíða 42
42 tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 93. árg. 2017
helga jónsdóttir, prófessor við hjúkrunarfræðideild háskóla Íslands, hefur hlotið inn-
göngu í Bandarísku hjúkrunarakademíuna (american academy of nursing) fyrir
rannsóknir sínar og þróun á heildrænni hjúkrun fyrir fólk með langvinna sjúkdóma.
aðild að Bandarísku hjúkrunarakademíunni hljóta þeir sem hafa skarað fram úr í
starfi við hjúkrun en samtökin eru meðal þeirra virtustu á sviði hjúkrunarfræði í heim-
inum. inngöngunni fylgir nafnbótin „fellow of the american academy of nursing“
(faan).
Rannsakar hjúkrun langveikra
rannsóknir helgu hafa beinst að hjúkrun langveikra og þá einkum sjúklinga með
lungna- og taugasjúkdóma og að fjölskyldum þeirra. Einkenni og reynsluheimur sjúk-
linga, mótun og prófun meðferðarúrræða og mótun og mat á hjúkrunarþjónustu hafa
verið meginviðfangsefni þessara rannsókna. rannsóknirnar hafa verið unnar í sam-
vinnu hjúkrunarfræðinga í framhaldsnámi, sérfræðinga í hjúkrun og læknisfræði og
í vaxandi mæli erlendra samstarfsaðila.
helga lauk prófi í hjúkrunarfræði frá háskóla Íslands árið 1981. hún lauk meistara-
prófi í hjúkrunarfræði frá háskólanum í Minnesota í Bandaríkjunum árið 1988 og
doktorsprófi frá sama skóla árið 1994. Í doktorsverkefni sínu fjallaði helga um lífs-
reynslu fólks með langvinna lungnasjúkdóma. helga hefur átt sæti í innlendum og
alþjóðlegum nefndum um hjúkrun lungnasjúklinga og setið í ritstjórn alþjóðlegra fag-
tímarita, fagráði rannÍS og stýrt alþjóðlegum ráðstefn um. hún hefur verið virk í
uppbyggingu náms og rannsókna í hjúkrunarfræði á Íslandi. Síðustu fjögur árin var
hún deildar forseti hjúkrunarfræðideildar háskóla Íslands. hún er for stöðumaður
fræðasviðs um hjúkrun langveikra á Land spítala og prófessor við hjúkrunarfræðideild
háskóla Íslands.
Í Bandarísku hjúkrunarakademíunni eru um 2400 með limir og þeirra á meðal
flestir fremstu leiðtogar heims í hjúkrunarfræði, hvort sem er á sviði menntunar, starfa,
stjórn unar eða rannsókna. Samtökin voru stofnuð árið 1973 en markmið þeirra er að
þjóna almenningi og hjúkrunarstéttinni með því að móta, samþætta og breiða út þekk-
ingu í hjúkrunarfræði og hafa þannig áhrif á stefnumótun í heilbrigðismálum.
Helga hlýtur inngöngu
í Bandarísku hjúkrunarakademíuna
Helga Jónsdóttir, prófessor við hjúkrunarfræði -
deild Háskóla Íslands ásamt eiginmanni sínum.
Helga hefur verið virk í uppbyggingu náms og rannsókna í hjúkr un ar -
fræði á Íslandi. Síðustu fjögur árin var hún deildarforseti hjúkrun-
arfræðideildar Háskóla Íslands. Hún er forstöðumaður fræðasviðs
um hjúkrun langveikra á Landspítala og prófessor við hjúkrunar -
fræðideild Háskóla Íslands.