Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2017, Blaðsíða 37
Af hverju sérstakur lífeyrissjóður fyrir
hjúkrunarkonur?
En hvers vegna skyldi hafa verið lagt fram frumvarp um sér-
stakan lífeyrissjóð fyrir stétt hjúkrunarkvenna sem, eins og
fram hefur komið, unnu allar fyrir opinbera aðila og fyrir utan
að þegar var til lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins?
nokkrar athugasemdir fylgdu lagafrumvarpi þessu:
Ýmsar ástæður eru til þess, að heppilegra er að hafa sérstakan
lífeyrissjóð fyrir hjúkrunarkonur heldur en taka þær inn í Líf-
eyrissjóð starfsmanna ríkisins.
• hér er eingöngu um konur að ræða, en í Lífeyrissjóði
starfsmanna ríkisins verður yfirgnæfandi meiri hluti
karlar.
• ætla má, að mjög lítil örorkuhætta sé búin flestum með -
limum Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins. hins vegar má
búast við talsverðri örorkuhættu hjúkrunarkvenna
(berklar o.fl.).
• Ógerlegt mun að setja aldurstakmark hjúkrunarkvenna
hærra en við 60 ára aldur, en hins vegar er ekki ástæða
til að hafa það lægra en 65 ára fyrir meðlimi lífeyris sjóðs
starfsmanna ríkisins.
• Vænta má, að barnatryggingin valdi minni kostnaði á
hvern sjóðfélaga Lífeyrissjóðs hjúkrunarkvenna en á
hvern félaga Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins.
• Ekki er þörf ekkilstryggingar í Lífeyrissjóði hjúkrunar-
kvenna, en makatryggingin er mjög þýðingarmikið
atriði í Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins.
Þessar athugasemdir við lagafrumvarpið sjálft eru eins konar
rökstuðningur fyrir því af hvaða ástæðum talið var nauðsyn-
legt að leggja það fram. Þessar athugasemdir endurspegla 75
ára gamlan veruleika, benda okkur á óttann við örorku af
völdum berkla og hve fljótt fólk varð gamalt. En þarna er líka
ýmislegt sem er enn þá jafnraunverulegt og fyrir 75 árum en
í athugasemdunum segir auk þess sem áður greinir: „hjúkr-
unarkonur eru svo sérstæður hópur, að óvíst er, hvort reynsla
um dánar- og örorkutíðni í nokkrum öðrum hópi getur orðið
grundvöllur nothæfra útreikninga um framtíðarfjárhag líf-
eyrissjóðs fyrir hjúkrunarkonur.“ hjúkrunarfræðingar eru
enn þá kvennastétt, starfið er enn bæði líkamlega og andlega
erfitt og líklegra til að valda örorku en langflest önnur störf
opinberra starfsmanna. ættu því starfslok hjúkrunarfræð -
inga árið 2017 ekki að vera fyrr en annarra opinberra starfs-
manna?
„hjúkrunarkonur eru svo sérstæður hópur“
tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 93. árg. 2017 37
hjúkrunarfræðingar óskast til starfa á gjörgæslu og vöknun á hringbraut. Í boði er
einstaklingsbundin og góð aðlögun. Skemmtileg, gefandi og kreandi vinna með
skemmtilegum vinnufélögum. Vinna á gjörgæslu og vöknun veitir hjúkrunar -
fræðingum góða reynslu og færni í sjálfstæðum vinnubrögðum og mikla möguleika
á þróun í starfi.
Á vöknun er unnið á þrískiptum vöktum og frí um helgar og rauða daga. gjörgæslan
vinnur einnig á þrískiptum vöktum og unnið er aðra og þriðju hverja helgi til skiptis.
Sótt er um starfið á vef Landspítalans undir liðnum „laus störf “.
nánari upplýsingar veitir Árni Már haraldsson deildarstjóri
(arnimh@landspitali.is), s. 825-9577.