Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2017, Síða 25
tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 93. árg. 2017 25
Öll tölublöð Tímarits hjúkrunarfræðinga
aðgengileg á timarit.is
Áhugasamir um sögu hjúkrunar geta nú nálgast alla árganga
Tímarits hjúkrunarfræðinga og fyrirrennara þess á timarit.is.
Þau eru ófá tölublöðin sem þar er að finna en saga tímaritsins
nær aftur til ársins 1925 og því kominn greiður aðgangur að
hátt að aldargamalli sögu hjúkrunarstéttarinnar.
Christer Magnússon, fyrrverandi ritstjóri Tímarits hjúkr-
unarfræðinga, sagðist hafa leitað til félagsins eftir styrk í
tengslum við 100 ára afmæli félagsins til að mynda blaðið frá
1925–1950. Það gekk eftir og vinna hófst hjá Landsbókasafni –
háskólasafni að gera fyrstu árgangana rafræna, en fyrir var
búið að setja Tímarit hjúkrunarfræðinga á timarit.is frá og með
2010. Starfsfólk Landsbókasafns lét þó ekki staðar numið við
árið 1950 heldur lauk einfaldlega við að mynda öll tölublöð 20.
aldar, eða allt fram til 2010. „Ég fékk bara skeyti frá þeim að
búið væri að mynda allt tímaritið eins og það leggur sig,“ segir
Christer.
Hvernig fór launastríð hjúkrunar -
fræðinga frá 1929–1931?
„Mér hefur alltaf fundist mikilvægt að fólk hafi greiðan aðgang
að blaðinu okkar, bæði út frá almennu sögulegu sjónarmiði en
líka til þess að koma sjónarmiðum okkar á framfæri,“ segir
Christer. hann tekur dæmi um sagnfræðing sem ákveði að
skrifa um launabaráttu opinberra starfsmanna á fyrri helmingi
20. aldar. fyrir ári hefði þessi sagnfræðingur ekki fengið neinar
niðurstöður um launamál hjúkrunarkvenna. nú er auðveldlega
hægt að fletta upp greinum um til dæmis launastríð hjúkrun-
arfræðinga frá 1929–1931, tekur hann sem dæmi.
Á timarit.is er rafrænn aðgangur að um þúsund tímaritum
og samtals yfir fimm milljón blaðsíðum. hægt er að stilla leitina
mjög nákvæmlega hvað varðar tímabil og leitarorð en einnig
er hægt að velja einungis eitt tímarit og fá þannig mjög hnit -
miðaðar niðurstöður. Lesendur eru hvattir til að nýta sér
gagnasafn timarit.is til að skoða sögu Tímarits hjúkrunar -
fræðinga.
Forsíða Tímarits fjelags íslenskra hjúkrunarkvenna árið 1925.
„Mér hefur alltaf fundist mikilvægt að fólk hafi
greiðan aðgang að blaðinu okkar, bæði út frá al-
mennu sögulegu sjónarmiði en líka til þess að
koma sjónarmiðum okkar á framfæri.“
Lesendur eru hvattir til að nýta sér gagnasafn
timarit.is til að skoða sögu Tímarits hjúkrunar -
fræðinga.