Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2017, Síða 28
félag íslenskra hjúkrunarfræðinga fagnar útgáfu skýrslunnar sem markar tímamót í
áralangri baráttu félagsins við að benda á skort á hjúkrunarfræðingum og tekur undir
ábendingar ríkisendurskoðunar og tillögur hennar til úrlausnar. Þetta er umfangs-
mikil úttekt en skýrslan er að stórum hluta byggð á skýrslu félags íslenskra hjúkrun-
arfræðinga (fíh) um vinnumarkað hjúkrunarfræðinga, hjúkrunar fræðingar óskast
til starfa, sem kom út í febrúar 2017. félagið var ríkis endur skoðun innan handar með
upplýsingar auk þess að fá skýrsluna til umsagnar. niðurstöður skýrslu ríkisend-
urskoðunar endurspegla þann málflutning sem félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
hefur haft í frammi um alvarleikann vegna sífellds skorts á hjúkrunarfræðingum.
Mikilvægt að tryggja nýliðun hjúkrunarfræðinga
Í úttektinni vísar ríkisendurskoðun í könnun félagsins á mönnun heilbrigðisstofnana
landsins og bendir á að í lok árs 2016 hafi um 225 stöðugildi hjúkrunarfræðinga verið
ómönnuð innan íslensks heilbrigðiskerfis. að auki sé talið að fjölga þurfi stöðugildum
um 180. Þar sem hjúkrunarfræðingar eru almennt í um 70% starfshlutfalli má ætla
að um 570 hjúkrunarfræðinga vanti til starfa í heilbrigðiskerfinu. Til samanburðar má
geta að háskóli Íslands og háskólinn á akureyri hafa að jafnaði útskrifað undanfarin
fimm ár 127 hjúkrunarfræðinga árlega og, eins og fíh hefur þegar bent á, dugar það
skammt.
Árið 2016 voru 4.525 hjúkrunarfræðingar yngri en 70 ára með starfsleyfi hér á landi.
Þar af voru 392, eða 9%, búsettir erlendis og 434, eða 10%, störfuðu ekki við hjúkrun.
Samtals eru þetta 826 hjúkrunarfræðingar. Þetta er bagalegt að mati ríkis -
endurskoðunar, bæði vegna skorts á hjúkrunarfræðingum og vegna þess að 20% starf-
andi hjúkrunarfræðinga fá rétt til lífeyristöku á næstu þremur árum, eða ríflega 700
hjúkrunarfræðingar. að auki bendir flest til þess að álag í heilbrigðisþjónustu aukist
á næstu árum, m.a. vegna hækkandi lífaldurs og aukinnar tíðni á lífsstílstengdum sjúk-
dómum. Því þurfi að tryggja nýliðun í stéttinni og draga úr brottfalli úr henni.
28 tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 93. árg. 2017
Gunnar Helgason, sviðstjóri kjara- og réttinda -
sviðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Skýrsla Ríkisendurskoðunar um hjúkrunarfræðinga:
Vandinn viðurkenndur en greint á um leiðir til úrbóta
Gunnar Helgason
Ráðuneytið kynnti reyndar drög að heilbrigðisstefnu í fyrra sem átti
að gilda til ársins 2020 en stefnan var aldrei lögð fyrir Alþingi. Þar
var meðal annars lagt til að Embætti landlæknis gerði 10 ára áætlun
um mannaflaþörf heilbrigðisþjónustunnar. Ríkisendurskoðun telur
mikilvægt að þessum áformum sé fylgt eftir.
Í nýlegri skýrslu ríkisendurskoðunar, Hjúkrunarfræðingar, mönnun, menntun og starfsumhverfi, eru
stjórnvöld gagnrýnd fyrir stefnuleysi vegna langvarandi skorts á hjúkrunarfræðingum. Ríkisendur -
skoðun tiltekur að efla þurfi eftirlit með mönnun í stöður hjúkrunarfræðinga, að fjölga þurfi nem-
endum í hjúkrunarfræði til að hraða nýliðun og að endurskoða þurfi flokkun námsins í reiknilíkani
háskólanna. Menntamálaráðuneytið telur vandann aftur á móti vera brotthvarf úr námi og að út-
skrifaðir hjúkrunarfræðingar starfi ekki við fagið.