Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2017, Qupperneq 38
Ég vil byrja á því að þakka helenu Bragadóttur fyrir að skora á mig að skrifa þanka -
strik og ýta þannig við mér að reyna að skrifa eitthvað annað en skólaverkefni. Í dag
starfa ég í bráðateymi geðsviðs þar sem ég sinni bæði vöktum á bráðaþjónustu og
skammtímaeftirfylgd eftir bráðakomu. Þessi þankastrik munu fjalla um aðstandendur
fólks með alvarlegan tvíþættan vanda og ég mun fjalla um hvernig ég hef skoðað stöðu
þeirra bæði í gegnum störf mín á Landspítala og í námi.
Mikilvægt að huga að aðstandendum
Ég var svo heppin að taka fyrstu skref mín innan Landspítala með helenu og fleiri
snillingum á gömlu 12E fyrir rúmum tíu árum. Þar var mikið lagt upp úr því að sjúk-
lingar og aðstandendur þeirra fengju fræðslu bæði við innskrift og útskrift og hversu
miklu máli það skipti fyrir bataferlið. Síðan hef ég nýtt nokkur verkefni bæði í grunn-
og framhaldsnámi mínu til að skoða hlutverk aðstandenda almennt á þeim deildum
sem ég hef unnið á hverju sinni. Á bráðamóttökunni í fossvogi skoðaði ég möguleik-
ann á viðveru aðstandenda í endurlífgun. Á sérhæfðu endurhæfingunni inni á kleppi
skoðaði ég hvaða afleiðingar það getur haft í för með sér að vera aðstandandi einstak-
lings með alvarlegan geðrofssjúkdóm og vímuefnavanda. Þar var ég svo heppin að fá
tækifæri til að tileinka mér fjölskylduhjúkrun og læra grunnaðferðir í hugrænni at-
ferlismeðferð. Þarna fékk ég líka tækifæri til að kynnast betur ákveðnum aðstand-
endahóp sem er í sérstakri hættu á að fá álagstengd heilsufarsvandamál og hef haft
augastað á þeim hóp síðan.
Þegar ég var komin áleiðis í diplómanámi í geðhjúkrun var ég að vinna bæði á fíkni -
geðdeild og bráðaþjónustu geðsviðs. Þá fékk ég tækifæri til að fylgja eftir tveimur
aðstandendum á fíknigeðdeild og öðrum tveimur á bráðaþjónustu geðsviðs. Á fíkni -
geðdeildinni valdi ég handahófskennt aðstandendur einstaklinga með vímuefnavanda
sem höfðu greinst með geðrofssjúkdóm. Á bráðaþjónustunni valdi ég aðstandendur
einstaklinga með geðrofseinkenni og vímuefnavanda þar sem grunur var um geðrofs-
sjúkdóm. Þeir höfðu leitað á bráðavaktina vegna ýmissa ástæðna og var vísað í eftir-
fylgd eftir bráðakomu. Ég sinnti þeirri eftirfylgd sem fólst í stuðning í gegnum kreppu.
hjúkrunarmeðferðin, sem ég veitti í tengslum við verkefnið, var skipulögð gagnreynd
fræðsla og virk hlustun. allir fjórir aðstandendurnir áttu það sammerkt að þjást af
álagstengdum heilsufarsvandamálum, svo sem kvíða, svefntruflunum, einangrun og
forðun. Þau einkenni mátti í öllum tilvikum rekja til þess hlutverks sem þeir sinna.
Það var einnig samhljómur á milli þeirra í lok meðferðar þegar við fórum yfir hvað
hefði gagnast þeim. Þeir minntust á að það hefði hjálpað mest að fá skriflega fræðslu
um úrræði, afleiðingar þess að vera í þessu hlutverki, auk viðurkenningar á eigin líðan
og reynslu.
38 tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 93. árg. 2017
Þankastrik
Aðstandendur fólks með alvarlegan geðvanda
Hrafnhildur Ólöf Ólafsdóttir
Hrafnhildur Ólöf Ólafsdóttir, geðhjúkrunar -
fræðingur á bráðaþjónustu geðsviðs, bráða -
teymi, hrafnhol@landspitali.is.
„Á bráðaþjónustunni valdi ég aðstandendur einstaklinga með
geðrofseinkenni og vímuefnavanda þar sem grunur var um geðrofs-
sjúkdóm. Þeir höfðu leitað á bráðavaktina vegna ýmissa ástæðna og
var vísað í eftirfylgd eftir bráðakomu. Ég sinnti þeirri eftirfylgd sem
fólst í stuðning í gegnum kreppu.“