Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2017, Blaðsíða 55
tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 93. árg. 2017 55
Þjónusta djákna snýst um nærveru og samfylgd við fólk, að vera með fólki á tilteknu
tímabili í lífi þess, að vera til staðar í gleði og sorg. Djákni Sóltúns er hluti af öflugu
teymi starfsmanna. hann sinnir sálgæslu íbúa, aðstandenda og starfsfólks í samræmi
við gildi kristinnar kirkju, hugmyndafræði, markmið og gæðakerfi heimilisins. Djákni
situr í gæðateymum, fræðslu- og heilsueflingarnefnd svo fátt eitt sé nefnt. hann situr
fjölskyldufundi og heldur utan um stuðningshópa í samstarfi og samráði við aðra
stjórnendur og starfsfólk heimilisins. Djákni er virkur þátttakandi í þróun þjónust-
unnar á Sóltúni.
undirstöðuatriði í hjúkrun eru umhyggja fyrir skjólstæðingnum og virðing fyrir
lífi hans og velferð. hjúkrunarfræðingar standa vörð um þarfir íbúa hjúkrunarheimila
fyrir heildræna hjúkrun (félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, 2015) og djáknaþjónusta
er einn liður í þeirri vinnutilhögun. Í þessari grein verður fjallað um djáknaþjónustu
á hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Einnig verður rætt um samfylgd, vináttu og eftirfylgd
íbúa, aðstandenda og starfsfólks og enn fremur hvernig andleg og trúarleg aðstoð er
veitt í því skyni að auka vellíðan skjólstæðinga og starfsfólks.
Með hugtakinu samfylgd (e. companionship) er átt við það að veita einhverjum
nánd; það að ganga við hlið viðkomandi og fylgjast að í lífinu. Vinátta vísar til þess
samfélags sem skapast milli tveggja einstaklinga og byggist á virðingu, öryggi, trausti
og hlýleika. Markmið starfsfólks Sóltúns er að mynda góð tengsl og eiga góð samskipti
við einstaklinga þar sem samfylgd og vinátta þróast. Miðað er að því að umönn-
unaraðilinn skapi grundvöll fyrir samfylgd og að sú reynsla, sem verði til í gagnvirkum
samskiptum, sé jákvæð; að það myndist sátt og hamingja þannig að lífsgæði aukist.
Til að svo megi verða leggur starfsfólk Sóltúns sig fram um að sýna kærleika í öllum
sínum verkum.
Vellíðan skjólstæðinga og starfsfólks
á hjúkrunarheimili með trúarlegri aðstoð
Jón Jóhannsson og Júlíana Sigurveig Guðjónsdóttir
Jón Jóhannsson djákni. Júlíana Sigurveig Guðjónsdóttir, hjúkrunar-
stjóri á Sóltúni.