Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2017, Qupperneq 58
í aðlögunarferlinu: „Lengi býr að fyrstu gerð.“ aðstandendur
þurfa ekki síður á skilningi og þolinmæði frá starfsfólki heim-
ilanna að halda en íbúarnir og uppbyggileg tengsl milli starfs-
fólks og íbúa og aðstandenda þeirra er lykillinn að hágæða -
umönnun. Þá er nauðsynlegt að viðurkenna að þekking leik-
manna er að minnsta kosti eins mikilvæg og þekking fag-
manna. Þannig getur raunveruleg samvinna umönnunaraðila,
starfsfólks og fjölskyldna hafist (júlíana Sigurveig guðjóns-
dóttir, 2007b). Það getur tekið tíma en yfirleitt gengur aðlög-
unarferlið ákaflega vel.
Samfylgd
Saga úr Sóltúni:
Hún horfði á mig og brosti, ég fann að henni leið vel. Hún
hafði ekki skilning á því hver ég var, hvaða hlutverk ég hafði,
en hún brosti til mín og sagði: ,,Þú ert góður.“ Ég leit í þakk-
lát augu hennar og hugsaði með mér að í vanmætti okkar
hefði hlýjan og kærleikurinn greinilega skilað sér.
Í Ba-ritgerð Margrétar Einarsdóttir (2015) er fjallað um þjón-
andi leiðsögn í umönnun aldraðra og hve miklu máli það
skiptir fyrir líðan hinna öldruðu hvernig umönnunaraðilar
koma fram, hvernig samfylgd við veitum viðkomandi og
hvernig vináttan birtist. Íbúi, sem finnur fyrir kærleika, sama
hvernig heilsufar hans er, veit að fólkið í kringum hann er til
staðar og vill honum vel. Það skapar öryggi sem er einn af
grundvallarþáttunum í vellíðan. Viðkomandi finnur þegar
umönnunaraðili er glaður og sýnir ástúð; það gerir tilveru hans
viðráðanlegri og auðveldar alla tjáningu og samskipti. Vin-
gjarnlegt augnaráð, hlýlegt bros og þolinmæði; allt þetta hefur
áhrif á líðan íbúans.
Nærvera
Með því að sýna góðsemd og þolinmæði og vera hjálpfús og
kærleiksríkur getur umönnunaraðili stuðlað að því að fólki
finnist gott að vera í kringum hann. Streita og óþolinmæði
vekur ótta og ugg hjá fólki og þess vegna er svo mikilvægt að
halda ró sinni í allri umgengni við íbúa. Samfylgdin á Sóltúni
einkennist þá af hlýrri nálægð. Með því að koma fram af hóg-
værð en jafnframt myndugleika sköpum við traust og öryggi.
röddin skiptir líka miklu máli í allri samfylgd. raddbeiting
hefur áhrif, t.d. getur stafað hlýja og virðing frá raddblæ. Orðin,
sem umönnunaraðilar nota, eiga að vera vönduð og jákvæð.
Tala á blíðlega og skýrt til íbúans, því það stuðlar að öryggi og
trausti, og síðast en ekki síst þarf að hlusta af þolinmæði.
Hvað er sálgæsla?
Mikilvægt er að gera greinarmun á sálfræðimeðferð og sál-
gæslu. Meðferðarvinna er á höndum sálfræðinga sem greina á
faglegan hátt andlega líðan fólks með aðferðum sálfræðinnar.
Sálgæsla er hins vegar trúnaðarsamtal prests, djákna eða annars
heilbrigðisstarfsfólks við hvern þann sem þarf á trúnaði að
halda og kýs að leita til þeirra með vandamál sín, tilfinningar
eða lífsreynslu.
Í þessum orðum kristallast sálgæslan: að vera til staðar fyrir
þá sem eru að fara í gegnum erfiða tíma. Það er vináttan sem
við veitum með nærveru, hlustun og samfylgd. Þá skiptir máli
að aðgengið sé gott, að djákna eða heilbrigðisstarfsmanni, að
þörfinni sé sinnt þegar hún birtist.
Sálgæslan byggist á heildstæðum mannskilningi, hún verður
aldrei sundurgreind, hún er líkami, andi og sál í sínu félagslega
umhverfi. Sálgæslan er jafnframt nokkurs konar brúargerð
milli guðs og manns og manns og annars (Sigfinnur Þorleifs-
son, 2001).
Séra Solveig Lára guðmundsdóttir, sem hefur skrifað um
þróun sálgæslu í starfi kirkjunnar, bendir á að sálgæslustarf sé í
raun jafngamalt kirkjunni og að lykilorð hennar sé lífsreynsla. Í
öllum sálgæslusamtölum er lífsreynslan nefnilega í brennidepli.
Öll lífsreynsla er mikilvæg, hvort sem hún er neikvæð eða
jákvæð. allt sem við höfum reynt hefur mótað okkur, gildi okkar
og hugsun. Þess vegna eru orð skáldsins Einars Benediktssonar
svo óendanlega mikilvæg: „aðgát skál höfð í nærveru sálar.“
Fyrirmynd sálgæslunnar
fyrirmynd sálgæslunnar er kristur sjálfur og hvernig hann tók
á móti ólíku fólki á öllum aldri og úr öllum stéttum, bæði
körlum og konum, ungum sem öldnum. allt hans atferli ein-
kenndist af skilyrðislausum kærleik, umhyggju og fullkominni
virðingu fyrir þeim er hann mætti. jesú kunni vel það sem í dag
er kallað þjónandi leiðsögn á íslensku (e. gentle teaching).
Þeir sem sinna sálgæslu í þjónustu kirkjunnar eiga því að
hafa þá lífssýn að allir menn séu mikilvægir, dýrmætir og guðs
góða sköpun. guði þykir jafnvænt um okkur öll, hvort sem við
erum ung eða gömul, menntuð eða ómenntuð, konur eða
karlar. Í sálgæslu eru höfð að leiðarljósi orð jesú úr Matteus-
arguðspjalli: „allt sem þið gjörðuð einum minna minnstu
bræðra og systra það hafið þið gert mér“ (Matt. 25:40).
Eitt af þekktari samtölum jesú er við samverska konu við
jakobsbrunninn en það er saga sem oft er horft til við sálgæslu.
hvernig nálgast jesús þessa konu? jú, hann biður hana að gefa
sér vatn að drekka. Þar með hefur hann öðlast traust hennar
og samfylgdin og samtalið getur hafist. jesús hafði það innsæi
jón jóhannsson og júlíana sigurveig guðjónsdóttir
58 tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 93. árg. 2017
Í öllum sálgæslusamtölum er lífsreynslan nefni-
lega í brennidepli. Öll lífsreynsla er mikilvæg,
hvort sem hún er neikvæð eða jákvæð. Allt sem
við höfum reynt hefur mótað okkur, gildi okkar
og hugsun. Þess vegna eru orð skáldsins Einars
Benediktssonar svo óendanlega mikilvæg:
„Aðgát skál höfð í nærveru sálar.“