Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2017, Qupperneq 67
yfirborði í um það bil tvo mánuði (kramer, Schwebke, og
kampf, 2006).
Örverur á margnota búnaði
Ljóst er að á sjúkrahúsum eiga sjúkdómsvaldandi bakteríur
greiða leið til og á milli sjúklinga með óbeinu snertismiti.
Þannig getur mikil smithætta fylgt margnota búnaði sem er
notaður við marga sjúklinga þar sem líftími örvera getur verið
langur á yfirborði þessara hluta og því fjöldi sjúklinga ber-
skjaldaður fyrir smitinu. Margnota búnaður eru t.d. lífsmarka-
mælar, hlustunarpípur, hurðarhúnar, baðstólar, hjólastólar,
lyftarar, lyftusegl, leikföng, millitjöld, milliveggir, rúmfatnaður
og margt fleira.
rannsóknir hafa sýnt að ófullnægjandi hreinsun á marg-
nota búnaði hefur valdið spítalasýkingum og stuðlað að far-
öldrum (rutala og Weber, 2008). Til að mynda hafa blóð þrýst -
ings-manséttur og hitamælar, þau tæki sem eru einna mest
notuð á heilbrigðisstofnunum, verið tengd við spítalasýkingar
og faraldra ónæmra baktería (uneke og ijeoma, 2011). Þá hafa
niðurstöður rannsókna sýnt að sömu örverur finnast á hlust-
unarpípum og á höndum þeirra sem notuðu þær (Longtin o.fl.,
2014). Margnota búnað þarf því að hreinsa, sótthreinsa og eftir
atvikum dauðhreinsa eftir hverja notkun og á milli allra sjúk-
linga (Schabrun og Chipchase, 2006). Sums staðar hefur verið
brugðið á það ráð að setja kassa við rúmstæði sjúklings með
lífsmarkamælum og hlustunarpípu ætluðum eingöngu þeim
sjúklingi, sem er svo hreinsaður við útskrift sjúklings ásamt
rúmstæðinu sjálfu.
Millitjöld og milliveggir
nærumhverfi sjúklings er skilgreint sem svæðið sem er næst
honum á sjúkrahúsinu og mikilvægt er að rjúfa allt mögulegt
snertismit frá fjærumhverfi inn í nærumhverfi hans. Tæki og
áhöld í nærumhverfi eru ætluð þeim sjúklingi eingöngu. Á
einbýli tilheyrir allt í herberginu nærumhverfi sjúklingsins. Á
fjölbýli afmarkast nærumhverfi af millitjöldum, milliveggjum
eða næsta umhverfi við rúmstæði sjúklings (Sýkingavarnadeild
LSh, 2015).
Millitjöld eru tjöld úr tauefni eða pappír sem hanga á
sjúkrastofum (fjölbýlum) heilbrigðisstofnana til að afmarka
nærumhverfi sjúklinga. rannsóknir sýna að millitjöld eru oft
menguð af sjúkdómsvaldandi bakteríum sem og ónæmum
bakteríum á borð við VÓE og MÓSa (klakus o.fl., 2008). fjöl-
margir þættir valda því að millitjöld í nærumhverfi sjúklinga
geta aukið umhverfismengun og þar með hættuna á óbeinu
snertismiti. Í fyrsta lagi snerta starfsmenn og sjúklingar iðulega
millitjöldin fyrir, eftir og á meðan á umönnun stendur og það
getur hæglega borið örverur á tjöldin. Í öðru lagi sýna rann-
sóknir að örverur geta borist til sjúklinga af höndum starfs-
manna þó að þeir hafi framkvæmt handhreinsun því starfs -
menn eru líklegir til þess að snerta millitjöldin eftir hand-
hreinsunina og síðan snerta sjúklinginn. Í þriðja lagi er erfitt
að hreinsa og sótthreinsa millitjöldin og endurnýjun á þeim er
ábótavant. Þar sem örverur geta lifað á dauðu yfirborði í marga
daga eða vikur geta millitjöld átt sök á spítalasýkingum (Ohl
o.fl., 2012).
Millitjöld í nærumhverfi sjúklinga á að þvo eða skipta um á
minnst 14 daga fresti og alltaf þegar þau eru sjáanlega óhrein
og hugsanlega menguð. Í öllum tilvikum þarf að skipta um
millitjöld hafi þau verið notuð við rúmstæði sjúklings í ein-
angrun eða rúmstæði sjúklings í fjölbýli sem greinst hefur
óvænt með ónæmar bakteríur, s.s. MÓSa (Statum Serum insti-
tut, 2017).
Milliveggir eru veggir úr plasti eða áli sem eru festir í veggi
á sjúkrastofum til að afmarka nærumhverfi sjúklinga og því
auðvelt að hreinsa þá og sótthreinsa til að draga úr möguleik-
anum á óbeinu snertismiti og þar með gæta öryggis sjúklinga
og starfsmanna (rutala og Weber, 2008).
Sængin uppreidd …
rúmfatnaður og sængur eru hluti af nærumhverfi sjúklinga og
eru skilgreind sem margnota búnaður sem þarf að hreinsa og
sótthreinsa milli sjúklinga. rannsóknir sýna að í óhreinum
rúmfatnaði finnst mikill fjöldi baktería, bæði eðlileg húðflóra
og sýklar, líkt og Staphylococcus aureus, Enterococcus faecium,
Pseudomonas aeruginosa og Enterobacter aerogenes (Pinon o.fl.,
2013).
margnota búnaður á heilbrigðisstofnunum er varasamur sjúklingum
tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 93. árg. 2017 67
Millitjöld í nærumhverfi sjúklinga geta aukið umhverfismengun.