Morgunblaðið - 12.12.2019, Page 20

Morgunblaðið - 12.12.2019, Page 20
Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Ég hafði engan tíma til að vera í hestum sjálfur, bróðir minn hefur séð um þá hlið, en á bernskuheimili okkar í Vorsabæ á Skeiðum voru hross helst notuð til smölunar. Á ákveðnu tímabili riðum við strák- arnir á sunnu- dögum á stökki um sveitina eins og aðrir kúrekar. Þegar ég fermd- ist kom að því að ég keypti hryssu af ömmu minni, ljósglófexta þriggja vetra undan Glað frá Flatatungu en hún var alveg kolvitlaus, gjörsamlega brjáluð. Dag einn fórum við strákarnir út í skemmu þar sem hryssan var og ég setti á hana hnakk og beisli og steig á bak. Bróðir minn opnaði dyrnar og við fórum saman út, ég og hryss- an, en tveimur sekúndum seinna vorum við aðskilin, þegar ég flaug af baki. Ég á sennilega met í því að hafa setið hrossið mitt styst allra í heiminum. Hryssan hvarf og hefur aldrei sést síðan,“ segir Eiríkur Jónsson ljósmyndari en hann sendi nýlega frá sér bókina Fákar og fólk, sem geymir úrval ljósmynda hans tengdra hestamennsku í 30 ár, frá 1979 til 2010. „Vissulega var mikið verk að velja úr þeim 167 þúsund myndum sem ég á frá hestamótum en ég ákvað að velja ein- vörðungu þær mynd- ir sem mér sjálfum fannst flottastar. Fyrst ætlaði ég ein- göngu að vera með myndir af flottustu hestunum í þessari bók, en ég sá að það yrði of einhæft. Ég vissi að það gæfi bók- inni meiri dýpt og breidd að hafa mannlífsmyndir með. Þetta er því ekki heildarúttekt heldur minn- ingabrot. Margt af því fólki sem er í bókinni er ekki lengur á meðal okkar, margir fræknir hestamenn úr Skagafirði og víðar. Þetta voru frábærir persónuleikar og skemmtilegir, en ég kynntist mörgu hestafólki við þessa ljós- myndavinnu. Ég þekki þúsundir bænda um land allt í gegnum starf mitt, til dæmis þegar ég þurfti að taka myndir fyrir Jónas Krist- jánsson í bókina Merarkóngar, þá var ég heilt sumar að taka myndir af hrossaeigendum um allt land og kynntist mörgum skemmtilegum hestaeigendum. Hestafólk er gríðarlega skemmtilegt og það er mikill félagsskapur í kringum hestamennsku.“ Knapinn gat ekki tekið myndir Eiríkur segir að tilviljun hafi ráð- ið því að hann hóf feril sinn fyrir þrjátíu árum sem skrásetjari hesta- móta. „Þá var ég í háskólanum að læra ensku og bókasafnsfræði en Guðjón Arngrímsson skólafélagi minn og vinur var að vinna sem blaðamaður á Vísi. Hann vissi að maðurinn sem sá um ljósmyndasafnið á Vísi hafði veikst, svo hann kom mér í sam- band við Þorstein Pálsson þáver- andi ritstjóra og úr varð að ég hljóp í skarðið vorið 1978. Maðurinn sneri ekki aftur til starfa svo ég var áfram og þegar Vísir og Dagblaðið voru sameinuð sá ég um það ljós- myndasafn og gerði í tuttugu og eitt ár,“ segir Eiríkur sem keypti sér fljótlega myndavél og fór að mynda fyrir Vísi. „Ég fór í fyrsta skipti gagngert til að taka myndir á hestamanna- móti á Degi hestsins á Melavelli 1979 og í kjölfarið sama ár einnig á Murneyrum, á Íslandsmóti á Þing- völlum og á stórmóti á Hellu. Bróð- ir minn hafði verið að taka myndir á mótum en hann var að keppa á Þingvöllum þetta ár og gat eðli málsins samkvæmt ekki tekið myndir af sjálfum sér á baki, svo ég tók þær fyrir hann. Ég fann að þetta lá vel fyrir mér og ég var líka farinn að skrifa texta um mótin áð- ur en ég vissi af,“ segir Eiríkur og bætir við að hann hafi einnig tekið allar myndir fyrir Jónas Krist- jánsson ritstjóra sem gaf út 14 kyn- bótahrossabækur. „Því stærra safn sem maður er með, því meiri líkur eru á að ein- hverjir vilji fá myndir úr því. Ég á til dæmis þúsundir mynda af kyn- bótahrossum í World Feng, sem Bændasamtökin fengu hjá mér.“ Óþverrinn ræktaður úr hestum Eiríkur hefur á þeim þrjátíu ár- um sem hann hefur tekið myndir á mótum séð ótrúlega þróun í ræktun hrossa, aðbúnaði, reiðlagi og öðru sem viðkemur keppnishesta- mennsku. „Ég raða myndunum í bókina eft- ir árum í réttri tímaröð til að sýna þessar breytingar. Á fyrstu árunum eru til dæmis kappreiðarmyndir en ekki í lokin, því þær voru að hverfa. Þegar ég var að byrja að mynda hesta þá var 800 metra stökkið vin- sælast og alltaf endað á því á lands- mótum, það var miklu vinsælla en gæðingakeppnin. Þegar fer að líða á bókina sér maður breytingarnar, hversu mikið þetta hefur batnað, umhirða hesta, mótshald og fleira. Hestakosturinn hefur líka batnað alveg rosalega á þessum þremur áratugum, fólk ræktaði óþverrann úr íslenska hestinum. Innan um voru hestar sem voru sannarlega ekki þægir, en til að vera með al- mennileg söluhross verður fólk að vera með þæga hesta. Margir af fyrri tíma keppnishestum voru und- an ótömdum stóðhryssum úti í mýri, til dæmis vorum við strák- arnir í Vorsabæ á Skeiðum alltaf á fullri ferð á akfeitum merum í gamla daga, en svo kom í ljós mörg- um árum seinna að þetta voru gæð- ingamæður,“ segir Eiríkur og hlær. Frjálslegt Viðar Halldórsson í hindrunarstökki á Blesa frá Kirkjubæ á Íslandsmóti á Þingvöllum 1979. Vinir Einar Öder Magnússon og Júlí frá Syðri-Gróf á Hestaþingi Sleipnis og Smára á Murneyrum.  Eiríkur Jónsson á myndasafn með 167 þúsund myndum frá hestamótum Eiríkur Jónsson Blettur frá Húsatóftum Þorsteinn, Ragnar Stefánsson, Bjarni Bjarnason, Þorkell Bjarnason. Við riðum á stökki um sveitina 20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2019 Fallegar íbúðir frá 36m2 viðHverfisgötu 40-44 lausar til langtímaleigu. Íbúðirnar verða afhentar fullbúnarmeðeldhústækjum. Nánari upplýsingar í tölvupósti hjá thildur@egh.is Langtímaleiga Hverfisgata 40-44

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.