Læknablaðið - feb. 2020, Side 33
LÆKNAblaðið 2020/106 85
F R É T T A S Í Ð A N
Minningarsjóður Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar
var stofnaður með það að markmiði að styðja við framfarir og
rannsóknir á sviðum augnsjúkdóma, hjarta- og æðasjúkdóma,
taugasjúkdóma og öldrunarsjúkdóma. Á árunum 1985-2019 hafa
verið veittir styrkir til allra þessara sviða, í heild fyrir um 285
milljónir króna að núvirði.
Árleg styrkveiting fór fram 20. desember síðastliðinn og voru
þá veittir 5 styrkir til eftirtalinna verkefna: (styrkþegar frá vinstri
á mynd sem Ronny Forstholm tók)
Pétur Henry Petersen: Hlutverk umritunarþátta í stjórn tauga-
frumustarfsemi.
Þórunn Scheving Elíasdóttir: Gagnsemi súrefnismælinga í sjón-
himnu við mat á súrefnismettun í system slagæðablóði.
Tómas Guðbjartsson: ECMO-meðferð. Ábendingar og skammtíma
og langtíma árangur.
Rannveig Þórisdóttir og Haraldur Sigurðsson: Brottnám auga á
Íslandi 2004-2018. Orsakir fyrir brottnámi og afdrif sjúklinga.
Bergrós Kristín Jóhannsdóttir: Æða- og brjóstholsáverkar – al-
gengi, meðferð og lifun.
Úthlutun rannsóknarstyrkja úr
Minningarsjóði Helgu Jónsdóttur
og Sigurliða Kristjánssonar
Fjöldi sérnámsnema
í höndum spítalans
„Það er í höndum yfirstjórnar Landspítala hversu mörg pláss
bjóðast í sérnámi hverju sinni,“ sagði Svandís Svavarsdóttir
heilbrigðisráðherra í svari við fyrirspurn Ingu Sifjar Ólafs-
dóttur, kennslustjóra í almennum lyflækningum.
Inga Sif spurði á fundi Læknaráðs og heilbrigðisráðherra
hvort ráðherra teldi æskilegt að standa vörð um fjölda sérnáms-
lækna til að tryggja mönnun til framtíðar. Einnig til að forða
læknum frá vítahring óhóflegs álags sem geti leitt til brottfalls?
Ráðherra sagði að hún yrði að treysta því að yfirstjórnin tæki
bestu ákvarðanirnar hverju sinni. „Ég hef hins vegar eins og
allir hér áhyggjur af mönnun til framtíðar.“
„Við þurfum að vera örlát og líta í eigin barm og hugsa um
hagsmuni kerfisins. Auðvitað á að reyna að létta ritarastörfum
af læknum,“ sagði Alma Möller landlæknir í fyrirspurnum úr
pallborði á málþingi um kulnun.
Í umræðum kom fram hversu mikil áskorun væri fyrir
lækna að rita niður sjúkrasögu og það talið sóun á verðmætum
tíma lækna. Leysa mætti það með fleiri læknariturum. Alma
tók með þessum orðum undir það.
„Áskoranir krefjast breytinga,” sagði landlæknir í fyrirlestri
sínum. Hún sagði að efla þyrfti lýðheilsu og heilsulæsi. Nýta
þyrfti heilbrigðiskerfið á skynsamlegan hátt, auka gæði og ör-
yggi. „Bætt mönnun er forsenda alls,“ sagði Alma.
„Við þurfum að byggja upp framúrskarandi starfsumhverfi
og nýta fókið sem best,“ sagði hún og að hún ætti þar við að
starfsfólk þyrfti að taka sem fæst skref í starfi. Alma sagði
kulnun meðal lækna mikið áhyggjuefni.
„Kulnun og streita er ekki aðeins vandamál hjá læknum
heldur mörgum öðrum stéttum,“ benti hún á. Í verkefni um
heilsueflandi vinnustaði sé embættið í samstarfi við VIRK og
Vinnueftirlit ríkisins.
Læknar horfi til
þess að lífið sé núna
„Við læknar eigum að leggja áherslu á 35
klukkustunda vinnuviku,“ sagði Gerður Aagot
Árnadóttir heimilislæknir á málþinginu um
kulnun á Læknadögum. Hún sagði að gera
verði kröfu um minna vinnuframlag og bjóða
hlutastörf. Hún lagði áherslu á að ráðast verði í
aðgerðir til að draga úr vinnuálagi lækna.
„Grundvöllurinn er betri mönnun,“ sagði
Gerður Aagot og vakti athygli á að stórir ár-
gangar hefðu komið úr læknanámi síðustu ár. Nú sé tækifæri
til að breyta íslensku heilbrigðiskerfi og íslensku læknasam-
félagi. Bjóða þurfi þau velkomin og gera þeim kleift að öðlast
starfsframa um leið og vinnufyrirkomulagi lækna sem fyrir eru
verði breytt.
„Það er lag núna. Lífið er núna,“ sagði hún.
Minnka
má kulnun
með fleira
starfsfólki