Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - feb. 2020, Síða 33

Læknablaðið - feb. 2020, Síða 33
LÆKNAblaðið 2020/106 85 F R É T T A S Í Ð A N Minningarsjóður Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar var stofnaður með það að markmiði að styðja við framfarir og rannsóknir á sviðum augnsjúkdóma, hjarta- og æðasjúkdóma, taugasjúkdóma og öldrunarsjúkdóma. Á árunum 1985-2019 hafa verið veittir styrkir til allra þessara sviða, í heild fyrir um 285 milljónir króna að núvirði. Árleg styrkveiting fór fram 20. desember síðastliðinn og voru þá veittir 5 styrkir til eftirtalinna verkefna: (styrkþegar frá vinstri á mynd sem Ronny Forstholm tók) Pétur Henry Petersen: Hlutverk umritunarþátta í stjórn tauga- frumustarfsemi. Þórunn Scheving Elíasdóttir: Gagnsemi súrefnismælinga í sjón- himnu við mat á súrefnismettun í system slagæðablóði. Tómas Guðbjartsson: ECMO-meðferð. Ábendingar og skammtíma og langtíma árangur. Rannveig Þórisdóttir og Haraldur Sigurðsson: Brottnám auga á Íslandi 2004-2018. Orsakir fyrir brottnámi og afdrif sjúklinga. Bergrós Kristín Jóhannsdóttir: Æða- og brjóstholsáverkar – al- gengi, meðferð og lifun. Úthlutun rannsóknarstyrkja úr Minningarsjóði Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar Fjöldi sérnámsnema í höndum spítalans „Það er í höndum yfirstjórnar Landspítala hversu mörg pláss bjóðast í sérnámi hverju sinni,“ sagði Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra í svari við fyrirspurn Ingu Sifjar Ólafs- dóttur, kennslustjóra í almennum lyflækningum. Inga Sif spurði á fundi Læknaráðs og heilbrigðisráðherra hvort ráðherra teldi æskilegt að standa vörð um fjölda sérnáms- lækna til að tryggja mönnun til framtíðar. Einnig til að forða læknum frá vítahring óhóflegs álags sem geti leitt til brottfalls? Ráðherra sagði að hún yrði að treysta því að yfirstjórnin tæki bestu ákvarðanirnar hverju sinni. „Ég hef hins vegar eins og allir hér áhyggjur af mönnun til framtíðar.“ „Við þurfum að vera örlát og líta í eigin barm og hugsa um hagsmuni kerfisins. Auðvitað á að reyna að létta ritarastörfum af læknum,“ sagði Alma Möller landlæknir í fyrirspurnum úr pallborði á málþingi um kulnun. Í umræðum kom fram hversu mikil áskorun væri fyrir lækna að rita niður sjúkrasögu og það talið sóun á verðmætum tíma lækna. Leysa mætti það með fleiri læknariturum. Alma tók með þessum orðum undir það. „Áskoranir krefjast breytinga,” sagði landlæknir í fyrirlestri sínum. Hún sagði að efla þyrfti lýðheilsu og heilsulæsi. Nýta þyrfti heilbrigðiskerfið á skynsamlegan hátt, auka gæði og ör- yggi. „Bætt mönnun er forsenda alls,“ sagði Alma. „Við þurfum að byggja upp framúrskarandi starfsumhverfi og nýta fókið sem best,“ sagði hún og að hún ætti þar við að starfsfólk þyrfti að taka sem fæst skref í starfi. Alma sagði kulnun meðal lækna mikið áhyggjuefni. „Kulnun og streita er ekki aðeins vandamál hjá læknum heldur mörgum öðrum stéttum,“ benti hún á. Í verkefni um heilsueflandi vinnustaði sé embættið í samstarfi við VIRK og Vinnueftirlit ríkisins. Læknar horfi til þess að lífið sé núna „Við læknar eigum að leggja áherslu á 35 klukkustunda vinnuviku,“ sagði Gerður Aagot Árnadóttir heimilislæknir á málþinginu um kulnun á Læknadögum. Hún sagði að gera verði kröfu um minna vinnuframlag og bjóða hlutastörf. Hún lagði áherslu á að ráðast verði í aðgerðir til að draga úr vinnuálagi lækna. „Grundvöllurinn er betri mönnun,“ sagði Gerður Aagot og vakti athygli á að stórir ár- gangar hefðu komið úr læknanámi síðustu ár. Nú sé tækifæri til að breyta íslensku heilbrigðiskerfi og íslensku læknasam- félagi. Bjóða þurfi þau velkomin og gera þeim kleift að öðlast starfsframa um leið og vinnufyrirkomulagi lækna sem fyrir eru verði breytt. „Það er lag núna. Lífið er núna,“ sagði hún. Minnka má kulnun með fleira starfsfólki

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.