Bændablaðið - 09.06.2016, Qupperneq 1
11. tölublað 2016 ▯ Fimmtudagur 9. júní ▯ Blað nr. 468 ▯ 22. árg. ▯ Upplag 37.000
Búvörusamningarnir bíða haustþings:
Verða líklega spyrtir við samþykkt
tollasamningsins við ESB
− Svína- og alifuglabændur óttast um framtíð sinna greina verði vægi tollverndar stórminnkað − niðurstaða tollahóps breyti litlu
Ekki náðist að klára vinnu og
samþykkja búvörusamning-
ana á Alþingi fyrir þingfrestun.
Formaður atvinnuveganefndar
Alþingis segir að stefnt sé að því
að samþykkja samningana fyrir
kosningar, eða á haustþingi sem
hefst 15. ágúst.
Núverandi samningar renna út
um áramót að undanskildum sauð-
fjársamningi sem gildir að óbreyttu
til ársloka 2017.
Sigurður Eyþórsson, fram-
kvæmdastjóri Bænda samtakanna,
segir það mikil vonbrigði að þingið
hafi ekki klárað málið og það setji
greinina í óvissu. Styr er innan
stjórnarflokkanna um málið og snýst
um að búvörusamningar verði ekki
samþykktir nema tollasamningur,
sem skrifað var undir við ESB síð-
astliðið haust, verði samþykktur um
leið.
Samþykktur fyrir kosningar?
Jón Gunnarsson, þingmaður
Sjálfstæðis flokksins og formaður
atvinnuveganefndar, sagði í samtali
við Bændablaðið að einhverjir séu
þeirrar skoðunar að búvörulögin hafi
ekki verið samþykkt vegna þess að
sumir sjálfstæðismenn vilji spyrða
búvörusamningana og ný tollalög
saman en langt frá því að allir séu á
þeirri skoðun.
„Mín skoðun er sú að það sé
margt í búvörusamningunum sem
tengist til dæmis ýmsum hækkunum
á tollflokkum í tollasamningnum og
því um ákveðið samspil að ræða.
Hvað vinnu í sambandi við
búvörusamninginn í atvinnu-
veganefnd varðar réði ferðinni
að mikið var um gestakomur til
nefndarinnar vegna hans. Ég reikna
með að vinnu vegna umsagna um
samninginn ljúki fljótlega og að við
náum endanlega utan um málið í
framhaldi af því.
Þing kemur aftur saman í ágúst
og ég geri ekki ráð fyrir öðru en að
búvörusamningurinn verði kláraður
þá og samþykktur fyrir kosningar.
Við stefnum að minnsta kosti að
því og ekkert annað í boði,“ sagði
Jón Gunnarsson, formaður atvinnu-
veganefndar Alþingis.
Svína- og alifuglabændur
óttast afleiðingar tollasamnings
Björgvin Jón Bjarnason, formað-
ur svínabænda, segir að ekki hafi
verið farið í heildarmat á hver áhrif
tollasamningsins eru. „Á sínum tíma
var settur á fót starfshópur um tolla-
samninga og nýjar aðbúnaðarreglu-
gerðir. Í þeim hópi voru fulltrúar frá
Bændasamtökum Íslands, búgreina-
félögum svína- og kjúklingabænda
og eggjaframleiðendum, Samtökum
iðnaðarins, utanríkisráðuneytinu og
atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu.
Hópurinn skilaði lokaniðurstöðu í
lok maí og er málið nú til meðferðar
hjá ráðherra.
Ég sé til dæmis ekki að það hafi
farið fram heildstætt hagsmunamat
áður en ráðist var í að gera tolla-
samninginn sem mig undrar mikið
miðað við umfang samningsins og
líkleg áhrif hans. Tollasamningurinn
kemur til með að hafa áhrif á fjölda
aðila; bænda, iðngreina, verslunar-
innar og neytenda.
Ég tel að áhrif tollasamningsins
á kjötiðnaðinn í landinu séu stórlega
vanmetin þar sem innflutningsheim-
ildir vaxa úr 100 tonnum 2016 í 650
tonn 2019. Svínakjöt er mjög fyr-
irferðarmikið í unnum kjötvörum.
Ég sé ekki heldur að samningarnir
tryggi það markmið að laga innflutn-
inginn að raunverulegri þörf. Það
er því enn fjölmörgum spurningum
ósvarað.
Það setur heldur ekki að okkur
neina sérstaka kæti yfir því að það
sé verið að fórna hagsmunum svína-
og kjúklingabænda til að hægt sé að
flytja út meira af skyri og lamba-
kjöti. Sömu sögu má reyndar segja
um nýgerða búvörusamninga,“ segir
Björgvin. /VH/HKr.
Blaðauki um
Landsmót hestamanna
á Hólum 2016
Mynd / smh
33–403010
heimsendur