Bændablaðið - 09.06.2016, Qupperneq 6
6 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2016
Bændablaðið kemur út 24 sinnum á ári. Því er dreift ókeypis á yfir 400 stöðum
á landinu og á öll lögbýli landsins.
Lesendur geta einnig gerst áskrifendur að blaðinu og fengið það sent heim í pósti
gegn greiðslu. Árgangurinn kostar þá kr. 9.900 með vsk. (innheimt í tvennu lagi).
Ársáskrift fyrir eldri borgara kostar 4.950 með vsk.
Heimilisfang: Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík.
Sími: 563 0300 – Fax: 562 3058 – Kt: 631294–2279
Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands. − Málgagn bænda og landsbyggðar −
SKOÐUN
Nýir búvörusamningar liggja nú í salti
á borðum alþingismanna og bíða sam-
þykktar, synjunar eða áframhaldandi
salpækils þegar þingið kemur aftur
saman í ágúst. Ljóst er að mikið er í
húfi þar sem óvissa um framtíðarskip-
an þessara mála er óásættanleg staða.
Það vekur athygli að hagsmunasamtök
sem berjast nú hart fyrir því að tennurnar
verði dregnar úr áhrifum tollverndar fyrir
landbúnaðinn skuli á sama tíma ganga
hvað harðast fram í tilraun til að fella
búvörusamningana á Alþingi. Við þá iðju
njóta Samtök verslunar og þjónustu og
Samtök atvinnulífsins dyggrar aðstoðar
Alþýðusambands Íslands. Miðstjórn ASÍ
hefur meira að segja skorað á Alþingi að
hafna búvörusamningunum.
Þótt mörgum þyki hægt miða við að
breyta landbúnaðarkerfinu á Íslandi í þá
átt að gera greinina sjálfbærari, þá hafa samt
verið stigin mjög stór skref á síðustu áratug-
um. Þegar OECD hóf að gera samræmdar
mælingar á stuðningi ríkja við landbúnað
fyrir 30 árum nam stuðningurinn á Íslandi
um 5% af þjóðartekjum. Í dag nemur hann
0,6% auk tollverndar sem metin er á 0,5%.
Samtals gerir þetta um 1,1%, en á þessu
sést vel hversu mikilvæg tollverndin er í
heildardæminu. Tollverndaráhrifin vega
þó misþungt eftir greinum.
Í svína- og alifuglarækt er tollverndin
lykilatriði. Formaður Svínaræktarfélags
Íslands hefur áhyggjur af stöðu greinarinnar
og telur niðurstöður sérstaks tollahóps þar
litlu breyta fyrir svína- og alifuglaræktina.
Tollasamningurinn við ESB, sem undir-
ritaður var með fyrirvara í haust, felur í sér
gríðarlega eftirgjöf á þeirri tollvernd sem
bændur hafa í gegnum tíðina talið einna
mikilvægast að verja. Tollverndin var m.a.
lykilatriði varðandi þær varnarlínur sem
bændur mörkuðu vegna aðildarumsóknar
Íslands að ESB um árið.
Landbúnaðarkerfin sem rekin eru víða
um heim hafa það að markmiði að tryggja
þegnum viðkomandi landa fæðuöryggi og
neytendum sínum skaplegt verð. Tapist sá
stuðningur skapast hættan á að landbúnað-
arframleiðslan í viðkomandi landi leggist
af. Þessi kerfi eru þó mannanna verk og
langt í frá að vera fullkomin. Því er stöðug
endurskoðun þeirra nauðsynleg með það
að markmiði að gera landbúnaðinn stöðugt
sjálfbærari.
Þjóðir heims geta samt ekki boðið þegn-
um sínum upp á að vera algjörlega háðir
öðrum þjóðum um nauðsynjar eins og fæðu.
Við sjáum vel í ótal dæmum í Afríku, Mið-
Austurlöndum og víðar hvaða áhrif ófriður
getur haft á fæðuöryggi íbúanna.
Blikur eru á lofti í Evrópu ef marka má
orð ýmissa frammámanna í evrópskri póli-
tík og innan hernaðarbandalagsins NATO.
Það er því langt frá því að vera öruggt að
Íslendingar geti stólað á að fá allar vörur
sem þeir óska frá Evrópu um ókomna tíð og
þar með talin matvæli. Auk þess eru aðrar
vár líka á lofti varðandi matvælaöryggi álf-
unnar. Það varðar gríðarlega notkun eitur-
efna í evrópskum landbúnaði og ofnotkun
sýklalyfja. Þar er íslenskur landbúnaður í
einstakri stöðu varðandi hreinleika sinna
afurða.
Sýklalyfjaónæmar bakteríur eru nú
stærsta ógnin í heilbrigðismálum heims-
ins að mati virtustu lækna og sérfræðinga.
Eiturmengun kemur þar til viðbótar.
Ef mönnum er andskotans sama um alla
þessa þætti, þá er ekkert einfaldara en að
leggja niður íslenskan landbúnað. Þá skulu
þeir sem það vilja vera um leið tilbúnir að
taka á sig ábyrgð á að fæðuöryggi þjóðar-
innar verði tryggt. Þeir verða þá líka að
vera meðvitaðir um að það verður ekki
auðhlaupið að snúa landbúnaðinum aftur í
gang þegar öll önnur úrræði þrýtur. /HKr.
Ekki einfalt
Ísland er land þitt
/HKr.
Það voru veruleg vonbrigði og í raun óásætt-
anlegt að lagafrumvarp ríkisstjórnarinn-
ar vegna breytinga sem tengjast nýjum
búvörusamningum skyldi ekki vera afgreitt
áður en Alþingi fór í sumarleyfi þann 2. júní
síðastliðinn. Það er því fullkomin óvissa um
framgang samninga sem eiga að taka gildi
um næstu áramót.
Samningarnir voru undirritaðir 19. febr-
úar eftir viðræður frá því í september 2015.
Bændur luku afgreiðslu þeirra í lok mars.
Nautgriparæktarsamningur fékk 75% stuðn-
ing í atkvæðagreiðslu, sauðfjársamningur 60%
en hinir tveir voru samþykktir samhljóða á
fundum. Lagafrumvarpið var birt þann 4. apríl
svo það gáfust nær tveir mánuðir til afgreiðslu
málsins, sem er mun lengra en mörg önnur mál
sem Alþingi fjallaði um og afgreiddi nú í vetur.
Það er áhyggjuefni að ríkisstjórnarflokkar sem
skreyta sig með áformum um eflingu mat-
vælaframleiðslu skuli í raun ekki vera samstiga
um að klára málið núna.
Óvissan er skaðleg
Það er skaðlegt fyrir landbúnaðinn að vera
haldið áfram í óvissu um hvert starfsumhverfi
hans á að vera frá næstu áramótum. Ákvarðanir
í greininni þarf að taka með lengri fyrirvara en
í mörgum öðrum atvinnugreinum. Þeir bændur
sem starfa í nautgripa-, sauðfjár- og hrossarækt
eru til dæmis að hefja fóðuröflun sumarsins um
þessar mundir. Það verkefni hófst í raun með
áburðarkaupum fyrr á árinu. Núna þarf að afla
heyja miðað við þann fjölda búfjár sem ætlunin
er að hafa á fóðrun næsta vetur. Sá fjöldi er
aftur í beinu samhengi við það afurðamagn
sem framleitt verður á næsta ári.
Sambærilegar ákvarðanir þarf að taka í fleiri
búgreinum bæði hvað varðar dýraafurðir og
aðra framleiðslu. Þetta er ræktun, hvort sem
um er að ræða dýr eða matjurtir. Hana þarf
að skipuleggja fram í tímann og henni er ekki
stjórnað eins og iðnaðarframleiðslu þar sem
einfalt er að stilla framleiðsluna af með því að
vinna lengur – eða styttra, eftir því sem hentar.
Varða starfsskilyrði landbúaðarins
Búvörusamningar eru ráðandi þáttur í starfs-
skilyrðum landbúnaðarins og það að ekki liggi
fyrir hvernig þeim verður háttað strax um næstu
áramót grefur undan uppbyggingu greinarinnar
og er í hróplegu ósamræmi við stefnu ríkis-
stjórnarinnar um eflingu matvælaframleiðslu.
Þetta er vond staða og verður til þess að bændur
munu fresta ákvörðunum í lengstu lög og halda
að sér höndum. Nauðsynlegt er að Alþingi taki
málið til afgreiðslu strax og það kemur saman
þann 15. ágúst.
Opnari samningar
Hér skal engin fjöður dregin yfir að samn-
ingarnir hafa setið undir ýmiss konar gagnrýni.
Það er ekkert óeðlilegt við það enda er hér um
breytingasamninga að ræða. Hugmyndafræði
þeirra breytinga er einkum að opna samningana
meira og gera þá almennari. Stærsta einstaka
stefnumálið er þó að stíga út úr kvótakerfi í
mjólkurframleiðslu og greiðslumarkskerfi í
sauðfjárrækt. Meginrökin fyrir því eru að losa
bændur undan kostnað við að kaupa sér réttindi
til framleiðslu mjólkur eða stuðningsréttindi í
sauðfjárrækt.
Bændur ekki á klafa kerfisins
− öll kjöt- og grænmetisframleiðsla er frjáls
Því er oft haldið fram að bændur séu bundnir á
klafa einhvers ægilegs miðstýringarkerfis. Allt
sé bundið í kvóta og því sé stjórnað í smáatrið-
um hvað hver og einn framleiðir. Staðreyndin
er hins vegar sú að öll kjöt- og grænmetisfram-
leiðsla er frjáls og því er ekki stýrt hvað mikið
er framleitt, hvorki hjá einstökum bændum eða
í heild. Stuðningur ríkisins er hins vegar föst
fjárhæð og dreifist á framleiðsluna eftir því
hvað hún er mikil hverju sinni. Það er aðeins
mjólkurframleiðslan sem starfar innan kvóta-
kerfis. Þar er ákvarðað hvað hver og einn má
framleiða mikla mjólk á innanlandsmarkað og
fá fullan stuðning fyrir. Framleiðsla umfram
það er frjáls en fyrir hana fæst minna.
Reyndar hefur þessi takmörkun ekki verið
virk undanfarin ár vegna þess að kúabændur
hafa átt fullt í fangi með að anna eftirspurn
innanlands og fullt verð hefur fengist fyrir alla
mjólk. Ljóst er þó að um næstu áramót verður
ekki lengur greitt fullt verð fyrir mjólk sem
framleidd verður umfram kvóta.
Í nýju samningunum er stefnt að því að
hverfa frá þessu kvótakerfi. Mjólkurframleiðsla
yrði þá jafnfrjáls og kjöt- og grænmetisfram-
leiðsla er í dag.
Ósamrýmanleg sjónarmið
Gagnrýni á samningana hefur komið úr ýmsum
áttum og sjónarmiðin að baki eru ósamrýman-
leg. Allir eru þó sammála um að landbúnaðinn
þurfi að styðja með einhverjum hætti en nálg-
unin að því er afar ólík.
Enginn þjóð leggur örlög landbúnaðar
alfarið í hendur markaðarins
Sumir vilja minnka verulega öll opinber
afskipti. Það felst þá einkum í því að lækka
beinan stuðning verulega og fella um leið niður
tollvernd einhliða.
Það er ekkert markmið í sjálfu sér að styrkja
landbúnað sem mest, en raunveruleikinn er
bara sá að engin þjóð er tilbúin að láta mark-
aðnum einum eftir að ákveða hvað verður um
sinn landbúnað.
Einhliða ákvarðanir um niðurskurð á
stuðningi hérlendis myndu draga verulega úr
umfangi greinarinnar. Í flestum greinum eru
aðstæður okkar einfaldlega með þeim hætti
að okkar búvörur eru og verða dýrari. Við
höfum verið sammála um að standa vörð um
búfjárkynin okkar, fjölskyldubúin og nota lyf
og önnur hjálparefni sem minnst. Það kemur
óhjákvæmilega fram í verðinu. Önnur ríki
eru hvorki að fara að fella niður stuðning eða
tollvernd.
Aðrir vilja á hinn bóginn meiri miðstýr-
ingu. Binda þurfi í reglur hvar megi stunda
ákveðnar búgreinar og hvar ekki. Stýra þurfi
allri framleiðslu miðað við innanlandsmarkað
– sem þýðir þá að taka þarf aftur upp kvóta-
kerfi í sauðfjárrækt og væntanlega ekki hverfa
frá því í mjólkurframleiðslu eins og stefnt er
að. Þróunin hefur verið í þá átt að auka frelsi
bænda inn á okkar markaði en vernda hann um
leið fyrir erlendri samkeppni. Innlendi mark-
aðurinn hefur auðvitað verið í forgangi, en
útflutningstækifæri verið nýtt þar sem þau hafa
boðist. Þeir markaðir eru líka víða verndaðir
eins og hér.
Bændur alltaf tilbúnir til viðræðna
Bændur eru og hafa alltaf verið tilbúnir að
ræða hvernig starfsskilyrðum landbúnaðarins
verði sem best fyrirkomið. Í viðræðum um
samningana voru bændur með sínar áherslur
og ríkið sínar. Hvorugur fékk allt sem hann
vildi eins og jafnan í samningum. En báðir
skrifuðu undir í trausti þess að niðurstaðan
væri ásættanleg málamiðlun. Það hafa bændur
staðfest og nú þarf ríkið að gera slíkt hið sama.
Síðan geta báðir aðilar komið með áherslur að
borðinu við endurskoðunina 2019. En nú þarf
óvissunni að linna.
Sindri Sigurgeirsson
formaður Bændasamtaka Íslands
sindri@bondi.is
Óvissa veldur tjóni
Ritstjóri: Hörður Kristjánsson (ábm.) hk@bondi.is – Sími: 563 0339 − Rekstur og markaðsmál: Tjörvi Bjarnason tjorvi@bondi.is – Blaðamenn: Margrét Þ. Þórsdóttir mth@bondi.is – Sigurður Már Harðarson
smh@bondi.is – Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is – Auglýsingastjóri: Ásgerður María Hólmbertsdóttir amh@bondi.is – Sími: 563 0303 – Netfang auglýsinga: augl@bondi.is −
www.bbl.is − Netfang blaðsins: (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is
Frágangur fyrir prentun: Prentsnið – Prentun: Landsprent ehf. – Upplag: sjá forsíðu – Dreifing: Landsprent og Íslandspóstur. ISSN 1025-5621