Bændablaðið - 09.06.2016, Blaðsíða 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2016
Landbúnaðarháskóli Íslands
útskrifaði 70 nemendur í blíð-
skaparveðri í Hjálmakletti í
Borgarnesi laugardaginn 4.
júní. Alls brautskrást 95 nem-
endur á þessu ári frá LbhÍ, en
laugardaginn 28. maí braut-
skráðust 15 nemendur af
garðyrkjuframleiðslubraut og
10 af skrúðgarðyrkjubraut á
Reykjum í Ölfusi.
Dr. Björn Þorsteinsson flutti
ræðu og óskaði nemendum vel-
farnaðar í framtíðinni. Lauk hann
ræðu sinni með þessum orðum:
„Góð menntun er gulls ígildi
– þekkinguna tekur enginn frá
manni, hún situr eftir þótt annað
kunni að ganga úr greipum – á
henni má byggja til framtíðar.
Sjóðir þekkingarinnar eru digr-
ir og þeirrar náttúru að eyðast
ekki þótt af þeim sé tekið heldur
vaxa stöðugt og örugglega. Þið
hafið gengið í þessa sjóði og sótt
ykkur skerf. Það veganesti mun
reynast ykkur vel – það er okkar
bjargfasta trú.“
Egill Gautason dúxaði með 9,02
Þórunn Rögnvaldsdóttir hlaut verðlaun
fyrir góðan árangur á búfræðiprófi. Egill
Gautason hlaut verðlaun fyrir bestan
árangur á BS-prófi með einkunnina 9,02.
Naomi Désirée Bos hlaut einnig verðlaun
fyrir góðan árangur á BS-prófi en einungis
munaði 0,02 á þeim Agli í einkunn. Ruth
Guðmundsdóttir hlaut verðlaun fyrir frá-
bæran árangur fyrir lokaverkefni á BS-prófi
með einkunnina 9,6.
Á Reykjum hlaut Þröstur Þórsson
verðlaun fyrir hæstu meðaleinkunn af
garðyrkjubraut. Íris Hafþórsdóttir hlaut
verðlaun fyrir bestan árangur á garð- og
skógarplöntubraut. Hella Laks voru veitt
verðlaun fyrir góðan árangur á námsbraut
um lífræna ræktun matjurta. Axel Sæland
og Óli Björn Finnsson hlutu verðlaun fyrir
góðan námsárangur á ylræktarbraut. Þá
hlutu Þröstur Þórsson og Hörður Garðar
Björgvinsson verðlaun fyrir góðan náms-
árangur á skrúðgarðyrkjubraut.
35 útskrifuðust af búfræðibraut
Alls útskrifuðust 35 nemendur af búfræði-
braut, 11 úr fjarnámi og 24 úr staðarnámi.
Þórunn Rögnvaldsdóttir hlaut verðlaun fyrir
góðan árangur á búfræðiprófi sem og góðan
árangur í nautgriparækt.
Arnar Már Sigurðsson hlaut verðlaun
fyrir góðan árangur í bútæknigreinum og
einnig fyrir góðan árangur í
hagfræðigreinum.
Karen Helga Steinsdóttir
hlaut verðlaun fyrir góðan
árangur í sauðfjárrækt og Einar
Dan Jepsen hlaut verðlaun fyrir
góðan árangur í námsdvöl.
13 útskrifuðust með BS í
búvísindum og hestafræðum
Þá var einnig útskrifað á háskóla-
brautum. 13 nemendur útskrif-
uðust með BS-próf af búvís-
indabraut og hestafræðibraut.
Verðlaun fyrir góðan árangur á
BS-prófi á búvísindabraut hlaut
Egill Gautason.
Fjórir nemendur luku BS prófi
í náttúru- og umhverfisfræði.
Jónína Hólmfríður Pálsdóttir
hlaut verðlaun fyrir góðan náms-
árangur á BS-prófi á brautinni.
Fimm nemendur luku
BS-prófi á skógfræði- og
landgræðslubraut. Bergþóra
Jónsdóttir hlaut verðlaun fyrir
góðan árangur á BS-prófi á brautinni.
Þá útskrifuðust átta nemendur með
BS-próf af umhverfisskipulagsbraut. Ruth
Guðmundsdóttir hlaut verðlaun fyrir góðan
árangur í skipulagsfögum, góðan árangur
í plöntunotkun sem og góðan námsárang-
ur á námsbrautinni. Þá fékk Anna Kristín
Guðmundsdóttir viðurkenningu frá kennur-
um brautarinnar fyrir óeigingjarnt framlag til
styrktar brautinni.
Fjórir nemendur luku MS-prófi í
skipulagsfræðum og hlaut Myrra Ösp
Gísladóttir verðlaun fyrir góðan námsár-
angur á brautinni. Þá lauk Hrannar Smári
Hilmarsson rannsóknarmiðuðu meistaranámi.
Um tónlistarflutning við útskriftarathöfn-
ina sáu Anna Kristín Guðmundsóttir og Eva
Margrét Eiríksdóttir.
Landbúnaðarháskóli Íslands:
Alls útskrifuðust 95 nemendur á þessu vori
− Þar af voru 15 af garðyrkjuframleiðslubraut og 10 af skrúðgarðyrkjubraut
Líf og starf MÆLT AF
MUNNI FRAM
E fni tveggja síðustu vísnaþátta var tileinkað Hjálmari Freysteinssyni, lækni á Akureyri, og er efni hans frá
hagyrðingakvöldi Karlakórs Eyjafjarðar
frá mars sl. Hjálmar, sem líkt og lesend-
ur margir þekkja, er fágætur hagyrðingur
og skopskynið afar þroskað. Því er engin
skömm að því að helga honum þriðja vísna-
þáttinn með efni frá tilvitnuðu hagyrðinga-
kvöldi Karlakórs Eyjafjarðar.
Undir liðnum „Úr gullkistu þinni“ gaf
stjórnandinn, Birgir Sveinbjörnsson,
Hjálmari lausann tauminn:
Mannkosti tíundað mína ég gæti,
marga og hvergi ýkt,
en þingeysk hógværð og lítillæti
leyfir mér ekki slíkt.
Ég sálma og kvæði saman lem
sé ég til þess eggjaður.
Ég veit um fullt af fólki sem
finnst ég alveg geggjaður.
Til upplýsinga, þá fyllir Hjálmar nú flokk
eldri borgara. Um þau tímamót orti hann:
Réttlát er sú regla og skýr,
ríkur eða snauður,
enginn sína elli flýr
öðru vísi en dauður.
Seint verð ég talinn sjálfumglaður,
sífellt öðrum skenki hrós,
er ég þó bæði myndarmaður
og meiri háttar gáfnaljós.
Hugleitt hefur verið að gefa út bók með
ljóðum sem hagyrðingar á karlakórshátíð-
um hafa ort um Petru Björk Pálsdóttur
kórstjóra. Bókin á að heita Litla sæta ljúf-
an góða. Birgir spurði Hjálmar hvort
hann ætti innlegg í þá bók?
Ekki fannst mér fréttin stór,
furðu mína lítið jók,
að búi í svona karlakór
kvensemi í heila bók.
Ég annað skáldverk eignast vil
sem ekki verður minna:
Ástarljóð frá Árna til
eiginkvenna hinna.
Birgir spyr nú Hjálmar út í starfsemi
Karlakórs Eyjafjarðar:
Sátu og átu siginn fisk
sötruðu bjór úr könnum,
sungu lagasúpu á disk
að selja vandamönnum.
Næst spyr Birgir Hjálmar: „Hillary
Clinton og Donald Trump hafa verið í
fréttum nær daglega hér hjá okkur þó að
hvorugt þeirra syngi í karlakór. Hvort þeirra
vildir þú vera og hvers vegna?“
Við Hillary það mest skal metið,
merki um góða pólitík,
að hún á mann sem hefur etið
heita pylsu í Reykjavík.
„Hjálmar, hefur þú eitthvað ort um
Sigmund Davíð nýlega?“
Þótt Sigmundur hrægamma hrekki,
þeirra hegðan og innræti þekki,
af þeim fjaðrirnar slíti,
úr þeim fóarnið bíti
er þó gott að hann giftist þeim ekki.
Utan dagskrár orti Hjálmar vegna orðróms
um lélega aðsókn að þessu hagyrðinga-
kvöldi, þó hafði frétst af tveimur eldri
borgurum sem keypt höfðu miða í forsölu:
Þótt ort af viti verði ei neitt
von mín til þess stendur,
að öðru hvoru brosi breitt
báðir áheyrendur.
Lokavísa Hjálmars Freysteinssonar þetta
kvöld:
Þótt misjafnt væri kveðið var kaffið bara gott
og kleinur fylgdu því er engan sviku.
En nú er ég að hugsa um að hafa mig á brott,
við hittumst svo í næstu dymbilviku.
151
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggð1@gmail.com
Útskriftarnemar Landbúnaðarháskóla Íslands sem voru við athöfn sem fram fór í Hjálmakletti í Borgarnesi.
Anna Kristín Guðmundsóttir og Eva Margrét Eiríksdóttir sáu um tónlistar-
Útskriftarnemar Landbúnaðarháskóla Íslands sem útskrifaðir voru frá Reykjum í Ölfusi.