Bændablaðið - 09.06.2016, Síða 14
14 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2016
Dýragarðurinn Slakki í Laugar-
ási í Biskupstungum var opnaður
fyrir gesti í maí og verður bæði
úti- og innisvæðið opið fram í
september. Þar hafa börn Helga
Sveinbjörnssonar, sem stofnaði
Slakka, nú tekið við rekstrinum.
Helgi segir að það sé vissulega
léttir að börnin hafi nú tekið við
keflinu. Þetta hafi oft verið erfitt en
börnin séu full af áhuga og krafti og
með margvíslegar hugmyndir um
að efla starfsemina, ekki síst yfir
vetrartímann.
Mikið er um að fjölskyldufólk
heimsæki Slakka á sumrin, enda öll
umgjörðin mjög skemmtileg. Þar
er margt forvitnilegt að skoða og
líka hefur verið hægt að fara þar í
mínígolf og pútt. Þá er einnig hægt
að fara í pool (billiard) og hafa það
huggulegt við barinn.
Elsta dóttirin, Gunnur Ösp
Jónsdóttir, og hennar maður,
Matthías Líndal Jónsson, seldu
íbúð sína á höfuðborgarsvæðinu
og fluttust austur til að taka við
rekstrinum. Síðan taka hálfsystkini
Gunnar Aspar, þau Rannveig Góa
Helgadóttir og Egill Óli Helgason
líka þátt í rekstrinum auk þess sem
pabbinn er þeim að sjálfsögðu innan
handar. Þess má geta að opið er alla
daga frá klukkan 11 til 18. /HKr.
Fréttir
Dýrin í Slakka komin
í sumarskapið
− Börn stofnandans hafa tekið við rekstrinum
Upplýsingar:
893-8424 / set@velafl .is
og á 694-3700 / gk@velafl .is
www.velafl.is
Nýir FRD fleygar á lager
200kg – 3,600kg
Egilsholti 1
310 Borgarnesi
Verslun opin 8-18 virka
daga
10-16 laugardaga, sími:
430-5500
www.kb.is
-Annar 20 lömbum
-Mjólkin alltaf passlega
heit
- Tekur allt að 12L af mjólk
-Einföld og áreiðanleg,
aðeins að stinga í samband
og hún er klár
-Ungviðið hefur frjálsan
aðgang að mjólk
-49.900 með vsk
Elín Helga Jónsdóttir með hænuna Hrefnu á höfðinu. Þessi hæna er búin að vera í Slakka í fjölda ára. Í fyrstu var
hún lögð í einelti af öðrum hænum og hélt sig því til hlés. Tók þá starfsfólkið Hrefnu undir sinn verndarvæng og
nú tekur hún þátt í öllum athöfnum mannfólksins og er í miklu uppáhaldi. Myndi / Helgi Sveinbjörnsson
Rannveig Góa Helgadóttir með kalkún.
Textílsetur Íslands og sam-
starfsaðilar munu standa fyrir
hátíðinni ,,Prjónagleði“ nú
um komandi helgi, dagana
10.–12. júní, og fer hún fram í
Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi.
Prjónagleði hefur það að mark-
miði að sameina reynda kennara og
áhugasamt prjónafólk, innlent og
útlent, til að deila og miðla reynslu,
læra eitthvað nýtt og hafa gaman.
Gísli Einarsson sjónvarps-
maður mun flytja fyrirlestur um
íslensku lopapeysuna á setn-
ingarhátíð á morgun, föstudag, en
Héléne Magnússon verður einnig
með sýningu á hönnun sinni. Alls
verða í boði ellefu mismunandi
námskeið og þá verða haldnir
þrír fyrirlestrar á Prjónagleðinni.
Margt annað verður í boði í tengsl-
um við gleðina, spunakeppni,
sölubásar verða í íþróttahús-
inu en þar munu Prjónakerling,
Húnabúð, Storkurinn, Ríta og
Páll, Grenigerði, Þingborg, Amma
mús, Auður, norskir prjónarar og
Húnaprjón bjóða til sölu ýmsan
varning sem tengist prjóni, svo sem
prjónuð klæði, garn, tölur, prjóna-
bækur og margt, margt fleira. Sjón
er sögu ríkari.
Prjónagleði fær innblástur
sinn frá prjónahátíðinni Fanö sem
haldin er í Danmörku. Textílsetrið
hlaut styrk frá Nordplus 2015 til
þess að heimsækja prjónahátíðina
í Fanö og hitta þar skipuleggjend-
ur hátíðarinnar. Þess má geta að
skipuleggjendur hátíðarinnar í
Fanö verða gestir á Prjónagleði.
Á morgun, föstudag, mun
Ingunn Vignisdóttir halda fyr-
irlestur um Kvennaskólann á
Blönduósi og að honum lokn-
um kynnir Jóhanna Pálmadóttir
Vatnsdælurefilinn. Leiðsögn verður
um Kvennaskólahúsið. /MÞÞ
Prjónagleði á Blönduósi
Jón Ingi sýnir á Eyrarbakka
Jón Ingi Sigurmundsson opnaði
málverkasýningu í samkomuhús-
inu Stað á Eyrarbakka laugar-
daginn 4. júní og stendur hún enn.
Þetta er 12. sýning Jóns Inga
á Eyrarbakka, en hann er fæddur
og uppalinn þar, en býr á Selfossi.
Myndefni frá Eyrarbakka er honum
hugleikið og líklega hefur engin
sýning hans verið án mynda þaðan.
Jón Ingi hefur haldið fjölda sýninga
víðs vegar á Suðurlandi, Akureyri,
Hjalteyri, Hafnarfirði og í Danmörku.
Að þessu sinni er Jón Ingi með
fleiri olíuverk en áður og hefur hann
breytt efnistökum þar á ýmsan hátt.
Vatnslitamyndir eru þó í meirihluta.
Auk landslagsmynda og götuvið-
fangsefna má einnig sjá blóma- og
dýramyndir.
Sýningin verður opin laugardaga
og sunnudaga frá kl. 14.00–18.00
auk 17. júní og aðra daga ef húsvörð-
ur er til staðar.
Sýningunni lýkur sunnudaginn
19. júní.