Bændablaðið - 09.06.2016, Qupperneq 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2016
Ótímabæru andláti, vegna lyfja-
ónæmra ofursýkla sem ekki tekst
lengur að vinna bug á, fer ört fjölg-
andi í heiminum. Ástæðuna má að
stærstum hluta rekja til ofnotkun-
ar sýklalyfja á liðnum áratugum,
bæði til að lækna fólk og ekki síður
í landbúnaði.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
(World Health Organization WHO)
gaf það út 2012 að ónæmi fyrir sýkla-
lyfjum færi þá vaxandi þótt það væri
ekki komið á hættulegt stig. Síðan
hefur mikið vatn runnið til sjávar í
þessum efnum. Mikil alvara er hér
á ferðum þar sem sýklalyf sem hafa
verið í notkun undanfarin 70 ár eru
að verða gagnslítil í baráttunni við
sýklalyfjaónæmar bakteríur. Nýjustu
fregnir herma að síðasta haldreipið
í sýklalyfjaflórunni sé líka hætt að
virka á sýklalyfjaónæmar ofurbakt-
eríur.
Bændablaðið hefur ítrekað fjallað
um þennan vanda á liðnum árum.
Rætt hefur verið við íslenska sér-
fræðinga og lækna á Landspítalanum,
eins og Karl G. Kristinsson, yfirlækni
á sýklafræðideild Landspítalans, sem
reynt hafa að vekja athygli á vand-
anum. Þar hefur m.a. verið bent á
að innflutningur á hráu kjöti feli í
sér ákveðna hættu hvað þetta varðar,
þar sem slíkt kjöt geti smitað fólk af
sýklalyfja- og jafnvel fjölónæmum
bakteríum. Þar hefur líka komið fram
að lyfjaleifar og eiturefni af ýmsum
toga verða eftir í landbúnaðarvörum
af dýrum þar sem sýklalyf eru notuð
sem vaxtarhvati og eiturefnum beitt
við ræktun fóðurs.
Samkvæmt nýjustu fréttum af
Landspítalanum er aðstöðuleysi
farið að valda miklum vanda við að
setja vaxandi fjölda sjúklinga (eink-
um erlenda ferðamenn) í einangrun
vegna gruns um smit af sýklalyfja-
ónæmum bakteríum.
Lítið gert úr vandanum
Þótt æ fleiri séu að vakna til vitundar
um alvarleika málsins, þá er samt til
áhrifafólk innan öflugra hagsmuna-
samtaka í samfélaginu sem gerir
lítið úr vandanum. Er hann jafnvel
afgreiddur sem hræðslu áróður úr
ranni íslenskra bænda sem séu að
verja sína sérhagsmuni. Þá hefur því
gjarnan verið slegið fram að millj-
ónir manna neyti þessara afurða
erlendis og fullyrt um leið að það
sé án þess að nokkrum verði meint
af. Bændasamtök Íslands hafa á
móti bent á þá staðreynd að notkun
sýklalyfja og eiturefna í landbún-
aði í heiminum sé hvergi minni en á
Íslandi og í Noregi. Í því ljósi hlýtur
að vera alvarlegt ef fórna á þeirri
einstöku stöðu í þágu þröngra pen-
ingahagsmuna.
Flestir skyndibitastaðir í
Bandaríkjunum fá falleinkunn
Í Bandaríkjunum er fólk smám
saman að átta sig á hættunni sem
fylgir ofnotkun á sýklalyfjum. Þar
er að myndast vakning sem gerir
kröfur til skyndibitastaða að þeir
framvísi sönnunum fyrir því að þeir
noti ekki kjúklinga eða annað hráefni
þar sem sýklalyf hafa verið notuð
sem vaxtarhvati. Á sama tíma berjast
innflytjendur á Íslandi hatramlega
fyrir óheftum innflutningi á kjöti frá
ríkjum sem vitað er að nota óhóflegt
magn sýklalyfja við sína framleiðslu.
Einn angi í þeirri baráttu er tolla-
samningur sem undirritaður var við
Evrópusambandið í september 2015,
en bíður nú samþykkis eða synjunar
Alþingis.
Í september á síðasta ári var birt
á fréttasíðu CBS News sjónvarps-
stöðvarinnar grein um skýrslu þar
sem búið var að flokka skyndi-
veitingastaði í áhættuflokka eftir því
hversu mikið kjötið í þeirra ham-
borgurum og öðrum máltíðum inni-
héldi af sýklalyfjum. Skýrslan heitir
keðjuverkun eða „Chain Rection“
og þar voru teknar fyrir 25 stærstu
skyndibitakeðjurnar.
Að úttektinni stóðu samtökin
Friends of the Earth, Natural
Resources Defense Council,
Consumers Union, Food Animal
Concerns Trust, Keep Antibiotics
Working og Center for Food Safety.
Aðeins tvær skyndibitakeðjur
stóðust prófið
Kom í ljós að aðeins tvö fyrirtæki,
Panera og Chipotle fengu einkunnina
„A“, en eitt fyrirtæki, Chick-fil-A,
fékk einkunnina „B“. Þá einkunn
fékk fyrirtækið út á yfirlýsta stefnu
og loforð um að bjóða aðeins upp
á hráefni sem væri 100% frítt við
sýklalyf í síðasta lagi árið 2019.
McDonald‘s og Dunkin Donuts
sluppu líka við að fá algjöra fall-
einkunn en fengu í staðinn „C“. Þessi
fyrirtæki voru með yfirlýsta stefnu
um að vera með sýklalyfjalaust hrá-
efni, en gátu ekki sýnt fram á hvenær
eða hvernig þau hygðust standa við
þær yfirlýsingar.
Önnur fyrirtæki voru ekki með
neina stefnu í þessum málum eða
innihaldslaus markmið. Þau fengu
öll einkunnina „F“. Þar voru fyrir-
tæki sem sum hver eru þekkt hér á
landi. Þetta voru Applebee's, Arby's,
Burger King, Chili's, Dairy Queen,
Denny's, Domino's, IHOP, Jack in
the Box, KFC, Little Caesars, Olive
Garden, Outback Steakhouse Grill
and Bar, Papa John's Pizza, Pizza
Hut, Sonic, Starbucks, Subway, Taco
Bell og Wendy's.
Samtökin sem gerðu könnunina
létu það fylgja með að fyrst að fyrir-
tæki eins og Chipotle gæti staðist það
að bjóða aðeins upp á skyndimat sem
ekki innihéldi sýklalyf, þá ættu hin
fyrirtækin öll að geta þetta líka. Þetta
væri aðeins spurning um hugarfar og
framkvæmd.
Staðan er hrikaleg
Á nýrri úttekt á vefsíðu Mother Jones
(maí/júní útgáfu) í Bandaríkjunum
er úttekt á notkun sýklalyfja í land-
búnaði sem byggist á tölfræði opin-
berra stofnana. Greinin er eftir Tom
Philpott og fjallar um innanbúðar-
upplýsingar um hvernig fyrirtæki
í landbúnaðargeiranum hafa stuðl-
að að þróun ofursýkla. Þar kemur
fram að eldisdýr innbyrða um 70%
af öllum sýklalyfjum sem seld
eru í Bandaríkjunum. Sýklar, sem
hafa myndað ónæmi fyrir þessum
sýklalyfjum, drepa nú 23 þúsund
Bandaríkjamanna á hverju ári og
sýkja um tvær milljónir manna.
Frá því Alexander Fleming upp-
götvaði penicilin árið 1928 var fljót-
lega farið að huga að notkun slíkra
lyfja við að draga úr sýkingum við
dýraeldi og minnka þar með afföll
og kostnað. Árið 1950 hóf lyfjafyr-
irtækið American Cyanamid, sem
nú er hluti af lyfjasamsteypunni
Pfizer, að gera tilraunir með lyfja-
gjafir í kjúklingaeldi. Byrjað var að
gefa kjúklingunum B-12 vítamín og
töldu sig geta sýnt fram á að þeir
fitnuðu hraðar með vítamíngjöfinni.
Við nánari skoðun kom í ljós að það
var ekki vítamínið sem olli auknum
vaxtarhraða, heldur leifar af notkun
á sýklalyfinu aueomycin, en B-12 er
oft hliðarafurð sem fæst við fram-
leiðslu á aureomycin.
Þessi uppgötvun olli byltingu í
kjötframleiðslunni í Bandaríkjunum.
Með því að setja smávegis af
sýklalyfjum í fóður og vatn fyrir
alifugla, svín og nautgripi, jókst
vaxtarhraðinn, fóðurkostnaðurinn
minnkaði og hægt var að fara fyrr
með dýrin til slátrunar.
Alifuglaeldið margfaldaðist í
kjölfar sýklalyfjabyltingarinnar
Í upphafi sýklalyfjabyltingarinnar í
kjúklingaeldinu í Bandaríkjunum á
sjötta áratug síðustu aldar voru um
1,6 milljónir býla að framleiða um
569 milljónir fugla. Árið 1978 voru
31 þúsund stærstu búin að framleiða
3 milljarða fugla. Á sama tíma fóru
vísindamenn víða um lönd að hafa
vaxandi áhyggjur af neikvæðum
áhrifum sýklalyfjanotkunar í land-
búnaði á heilsu manna. Undir 1970
uppgötvuðu breskir vísindamenn að
sýklalyf sem notuð voru við fram-
leiðslu á kjöti höfðu skapað bakt-
eríur sem höfðu myndað þol gegn
sýklalyfjum. Matvæla- og lyfja-
stofnun Bandaríkjanna FDA sýndi
fram á sömu niðurstöðu eftir úttekt
sérsveitar FDA árið 1972. Var lyfja-
framleiðendum þá gert að sanna að
þeirra lyf fyrir landbúnaðinn leiddu
ekki til myndunar á sýklalyfjaónæm-
um bakteríum. Ef þeir gætu það ekki
kynni heimild til framleiðslu og sölu
lyfja viðkomandi fyrirtækja að vera
endurskoðuð.
Lagt til að banna notkun
sýklalyfja sem vaxtahvata
Árið 1977 var lagt til að bannað
yrði að nota sýklalyf sem vaxt-
arhvata í bandarískum landbúnaði.
Lyfjafyrirtækin reyndu að afsanna
hættuna, en tilraun Stuart Levy til
þess snerist upp í andhverfu sína.
Bakteríurnar byrjuðu að mynda
ónæmi innan 48 klukkustunda
Með því að gefa hluta af kjúkling-
um á búi einu í Boston sýklalyfið
tetracycline á meðan annar hópur
fékk engin lyf, lá sönnunin fyrir
innan sólarhrings. Eftir aðeins 48
klukkustundir voru sumar E. coli
bakteríur, sem fundust í skít fugl-
anna sem fengu sýklalyfið, farnar að
mynda ónæmi gegn sýklalyfinu. Eftir
aðeins eina viku höfðu nærri allar E.
coli bakteríur sem fundust í skítnum
myndað ónæmi gegn lyfinu. Það sem
verra var, að í ljós kom að sýkla-
lyfjaónæmu bakteríurnar voru líka
farnar að finnast í fjölskyldumeðlim-
um á búinu. Voru þessar niðurstöður
birtar í lyfjatímaritinu New England
Journal of Medicine.
Peningahagsmunir settu
lyfjabann í áratuga biðstöðu
Þrátt fyrir að niðurstöðurnar þættu
óyggjandi, börðust lyfjafyrirtækin
sem aldrei fyrr gegn banni á notkun
sýklalyfja við kjötframleiðslu. Enda
var um gríðarlega fjárhags hagsmuni
að ræða. Var strax byrjað á að draga
niðurstöður Stuart Levy í efa. Var
bannið því sett í athugun „Under
Consideration“. Hélst það svo í ára-
tugi eða allt þar til 2011 að Matvæla-
og lyfjastofnun Bandaríkjanna FDA
tók bannið af dagskrá og lét lyfjafyr-
irtækjunum alfarið eftir að ákveða
hvað gert yrði. Kjötframleiðendum
var þó gert að koma sér út úr notkun
á sýklalyfjum fyrir árslok 2016. Var
um leið gefið út að FDA kynni að
íhuga að banna ákveðnar tegundir
sýklalyfja sem vaxtarhvata í land-
búnaði. Eftir stendur að það er ekk-
ert sem bannar lyfjafyrirtækjunum
að selja lyfin undir því yfirskini að
notkun þeirra sé að forðast sýkingar.
Sýklalyfjanotkunin sexfaldaðist
á tíu árum
Samkvæm hagtölum sem General
Accounting Office gaf út árið 1977
sexfaldaðist notkun sýklalyfja í
landbúnaði í Bandaríkjunum á
árunum 1960 til 1970. Árið 1970
voru sýklalyf notuð við eldi á nánast
100% hluta allra kjúklinga og
kalkúna í Bandaríkjunum. Einnig við
um 60% af svína- og nautgripaeldinu.
Sýklalyfjanotkunin heldur stöðugt
áfram að aukast
Sýklalyfjanotkunin í landbúnaði
heldur áfram að aukast víða um
lönd sem aldrei fyrr. Samkvæmt
tölum Matvæla- og lyfjastofnunar
Ofnotkun sýklalyfja meðal almennings og við matvælaframleiðslu þegar farin að valda óbætanlegum skaða:
Sýklalyfjaónæmar ofurbakteríur sækja
hratt fram í stríðinu við fúkkalyfin
− Milljónir veikjast og tugþúsundir deyja árlega vegna sýkinga sem fúkkalyf ráða ekki lengur við
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Fréttaskýring
Noregur
Ísland
Svíþjóð
Finnland
Litháen
Danmörk
Írland
Bretland
Holland
Tékkland
Sala á sýklalyfjum sem notuð eru í dýr til matvælaframleiðslu árið 2013 *
* Til að bera saman notkun sýklalyfja á Íslandi og í öðrum Evrópulöndum er ein sprauta
táknuð með heildarnotkuninni á Íslandi.
Ein sprauta jafngildir 5,3 mg/PCU.
PCU er mælieining fyrir lífmassa dýra, bæði lifandi dýra og sláturdýra.
Heimild: Lyfjastofnun Evrópu (European Medicines Agency)
Frakkland
Búlgaría
Pólland
Belgía
Þýskaland
Portúgal
Ungverjaland
Ítalía
Spánn
Þessa mynd þekkja margir. Sprautunálarnar tákna þá öfundsverðu stöðu
sem Ísland og Noregur eru í hvað varðar litla notkun sýklalyfja í landbúnaði.