Bændablaðið - 09.06.2016, Qupperneq 21
21Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2016
Bandaríkjanna jókst notkun sýkla-
lyfja við kjötframleiðslu þar í landi
um 23% frá 2009 til 2014. Það er
þrátt fyrir að kjötframleiðslan hafi
nokkurn veginn staðið í stað. Á árinu
2014 voru notuð um 10.000 tonn af
sýklalyfjum við kjötframleiðslu í
Bandaríkjunum. Á sama tíma var
verið að nota um 3.500 tonn af
sýklalyfjum til að berjast við sýk-
ingar í fólki. Vandinn er að lyfin
eru óðum að verða mannfólkinu
gagnslaus, þar sem þau eru hætt að
drepa bakteríurnar sem hafa myndað
ónæmi fyrir lyfjunum.
Ofurbaktería finnst í
Bandaríkjunum
Bandaríska sjóvarpsstöðin CNN birti
frétt um það 27. maí síðastliðinn að
49 ára gömul kona í Pennsylvaníu
í Bandaríkjunum hafi greinst með
sérstakt tilfelli E-Coli smits í þvagi.
Var þetta fyrsta tilfelli slíks smits
sem vitað er um í Bandaríkjunum.
„Þetta er ofurbaktería (superbug)
sem er ónæm fyrir fjölda sýklalyfja.
Hún er líka ónæm fyrir sýklalyfinu
Colistin sem læknar nota sem síðasta
úrræðið þegar engin önnur sýklalyf
virka,“ sagði í frétt CNN. Fréttin
var unnin upp úr fréttatilkynningum
um málið sem sendar voru út af
varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna
og sjúkdómavarnarmiðstöð Banda-
ríkjanna (CDC). Var þegar sett í
gang umfangsmikil rannsókn á því
hverja konan hafði umgengist til að
hægt væri að átta sig á mögulegri
útbreiðslu bakteríunnar.
Mesta heilsufarsógn
heimsbyggðarinnar
Litið er grafalvarlegum augum á
málið þar sem bakterían er óstöðv-
andi og engin þekkt lyf vinna á
henni. Í varnaðarorðum sínum skil-
greinir CDC þetta líka sem hættu-
legra en náttúruhamfarir.
Ef hún breiðist út getur hún
hæglega valdið milljónum dauðs-
falla á tiltölulega skömmum tíma.
Samkvæmt frétt CNN er vitað um
tillfelli slíks smits í Evrópu, Kanada
og í Kína. Þá hefur landbúnað-
arráðuneyti Bandaríkjanna greint frá
því að spor um E-Coli bakteríu, sem
er ónæm fyrir lyfinu Colistin, hafi
fundist í einu sýni úr meltingarvegi á
svíni. Reynt hefur verið að komast að
því af hvaða svínabúi gripurinn kom.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
WHO sagði í yfirlýsingu að
sýklalyfja ónæmi sé vaxandi vanda-
mál. Þar sé um að ræða mestu
heilsufarsógnina fyrir heimsbyggð-
ina í dag.
Alþjóðastofnanir reyna að
bregðast við
Í maí 2015 var haldið sérstakt þing
á vegum WHO um það hvernig ætti
að berjast við sýklalyfjaónæmi og
lyfjaónæmi almennt. Var það haldið
í kjölfar sífellt aukinna frétta af bakt-
eríum sem myndað höfðu með sér
ónæmi fyrir lyfjum sem fram að því
höfðu dugað við fjölmörgum hættu-
legum sjúkdómum eins og berkl-
um. Gefin var út baráttuáætlun eða
svokallað „Global action plan on
anitimicromial resistance“.
Smitsjúkdómaráð Bandaríkjanna,
IDSA, segir að smittilfellum þar
sem sýklalyfjaónæmar bakter-
íur koma við sögu hafi fjölgað
mjög ört. Á sama tíma hafi þróun
nýrra sýklalyfja dregist saman.
Hefur IDSA í samstarfi við sam-
tök Faraldursheilsuverndar
Bandaríkjanna, SHEA, gefið út leið-
beiningar til að fræða almenning um
hvernig hann eigi að draga úr hættu
á að smitast af sjö algengum smit-
sjúkdómum sem allir hafa myndað
með sér lyfjaónæmi.
Milljónir smitast nú á hverju ári í
Bandaríkjunum og Evrópu
Undanfarin ár hefur verið talað um
að um tvær milljónir manna smitist
árlega í Bandaríkjunum af bakteríum
sem hafa myndað þol gegn sýklalyf-
jum. Af þeim hefur verið talað um að
ekki hafi tekist að bjarga lífi 23.000
einstaklinga. Talan í Evrópu hefur
verið áætluð heldur hærri. Taka
skal fram að þarna er um tiltölulega
gamlar tölur að ræða svo veruleik-
inn kann þegar að vera orðinn mun
alvarlegri en viðurkennt er. Þetta
veldur gríðarlegum kostnaðarauka
fyrir heilbrigðiskerfið, fyrir utan
beins samfélagslegs taps vegna
ótímabærra dauðsfalla.
Hröð útbreiðsla ónæmra baktería
í þróunarlöndunum
Sýklalyfjaónæmar bakteríur breiðast
nú hratt út í þróunarlöndum sam-
kvæmt vísindatímaritinu Nature.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
WHO gaf út alvarlega viðvörun um
málið þann 30. apríl síðastliðinn.
Þar kemur fram að í sumum lönd-
um, eins og Nígeríu, sé ekki lengur
hægt að meðhöndla 88% þeirra sem
sýkjast af völdum Staphylococcus
aureus baktería (gerill af ættkvísl
stafýlókokka) með hinu hefðbundna
lyfi methicilin. Þessi baktería getur
ýmist valdið meinlausum húðútbrot-
um líkum unglingabólum, en svo
getur hún líka valdið banvænum
sjúkdómum á borð við heilahimnu-
bólgu og lungnabólgu. Staðan er líka
að verða grafalvarleg í svokölluðum
BRIK-löndum, Brasilíu, Rússlandi,
Indlandi og Kína, að sögn Keith
Klugman, faraldursfræðings hjá
Bill & Melinda Gates-stofnuninni
í Seattle í Bandaríkjunum.
95% fullorðinna á Indlandi og í
Pakistan taldir smitaðir
Í nýrri rannsókn, sem örveru-
fræðingurinn Timothy Walsh hjá
Cardiff-háskóla í Bretlandi, er
sagður ætla að birta í læknablaðinu
Lancet, kemur fram að allt að 95%
fullorðinna í Indlandi og í Pakistan
beri nú með sér bakteríu sem hefur
lyf hefur verið flokkað sem þrauta-
varalyf, eða síðasta úrræðið í bar-
áttunni við ákveðnar bakteríur. Til
samanburðar er talið að „einungis“
10% fullorðinna í Queens-hverfinu
í New York beri með sér þessar
bakteríur. „Útbreiðslan er miklu
hraðari en við höfum getað ímynd-
að okkur,“ segir Walsh.
Óvissa um orsakir svo hraðrar
útbreiðslu lyfjaónæmis
Vísindamenn hafa ekki getað
útskýrt nákvæmlega hvaða þættir
valda svo hraðri útbreiðslu lyfjaó-
næmis í þróunarlöndunum. Hvort
helsta ástæðan er mikil notkun
sýklalyfja í eldi dýra til mann-
eldis, eða hvort það er af völdum
óheyrislegs magns sýklalyfja sem
berst út í náttúruna með úrgangs-
vatni frá lyfjaverksmiðjum. Eini
þátturinn sem menn vita með vissu
er að þarna er skortur á hreinlæti.
Þá er á mörgum svæðum lítið
hugsað um að hreinsa affallsvatn
frá sjúkrahúsum. Þar með kom-
ast sýklalyfjaónæmar bakteríur
sem þrífast í slíku affallsvatni út í
grunnvatnið. Ef fólk neytir síðan
slíks vatns og passar ekki upp á
hreinlætið dreifist bakterían auð-
veldlega.
„Ef þú glímir við vaxandi
notkun lyfja til að berjast við lyf-
jaofnæmi, en hefur ekki innviði
til að fyrirbyggja smit, þá ertu að
koma af stað flóðbylgju sýklalyf-
jaónæmra baktería,“ segir Keith
Klugman.
Stjórnlaus ofnotkun sýklalyfja
„Annar angi af þessu vandamáli
er of miklar og óþarfar ávísan-
ir lækna á sýklalyf. Í Kína hafa
heilbrigðisstofnanir fjárhagslegan
ávinning af því að ávísa lyfjum og
ofnotkun sýklalyfja er afleiðing
af því. Þá heimila sum lönd sölu
sýklalyfja án lyfseðils. Þá kaupir
fólk jafnvel slík lyf við sjúkdóm-
um sem þau virka alls ekki á eins
og við malaríu. Þarna er verið að
eyðileggja mikilvægt baráttutæki
gegn sjúkdómum,“ segir Ramanan
Laxminaryan, forstjóri miðstöðv-
ar efnahagslegrar stefnumörkun-
ar í sjúkdómafræðum, CDDEP, í
Washington.
Alvarlegur skortur á
upplýsingum um smit og eftirlit
Vandinn í baráttunni við sýkla-
lyfjaónæmar og aðrar lyfjaónæmar
bakteríur er þó ekki bara baráttan við
ógnina sem menn þekkja. Það er ekki
síður barátta við upplýsingaskort.
Í aðeins 129 af 194 aðildarríkjum
WHO er einhver skráning á tilfellum
sýklalyfjaónæmi. Aðeins 22 þeirra
ríkja gátu veitt upplýsingar þar sem
rekja mátti feril níu hættulegustu
flokka sýklalyfjaónæmu bakteríanna
sem skilgreindir eru af WHO.
Vísindamenn eru sammála um að
stórauka þurfi eftirlit með notkun
sýklalyfja en enginn hefur þó sýnt
vilja til að standa undir kostnaðinum
við slíkt eftirlit. Helst hefur verið
bent á að sjúkrahús og frjáls félaga-
samtök væru líkleg til að taka slíkt
að sér.
Engin góð lausn á sýkla-
lyfjavandanum er í sjónmáli.
Þróunarvinna við ný sýklalyf er
ekki framarlega á forgangslista
lyfjafyrirtækjanna sem græða mun
meira á öðrum lyfjum á takmarkaðri
sviðum.
www.isfell.is
Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5 200 500 • isfell@isfell.is
kranar & talíur
Hafðu samband
og kynntu þér
vöruúrvalið og
þjónustuna
Dýrum eru gefin sýklalyf En ónæmar bakteríur
lifa og fjölga sér
SÝKLALYFJAÓNÆMI
-smit getur borist frá dýrum og á diskinn þinn
ÓNÆMI Öll dýr bera bakteríur í þörmunum
DREIFING Ónæmar bakteríur geta borist í ...
X
X
X
X
X
dýraafurðir
Sýklalyf drepa
flestar bakteríur
ræktun með menguðu vatni
eða jarðvegi
matvæli á
menguðu yfirborði
umhverfið með búfjárúrgangi
Staphylococcus aureus baktería.
Táknræn teikning um baráttuna sem fram undan er.