Bændablaðið - 09.06.2016, Page 34
34
Nægt hesthúsapláss fyrir öll hross
Ingimar Ingimarsson á Ytra-
Skörðugili hefur umsjón með hýs-
ingu hrossa á landsmótssvæðinu á
Hólum í Hjaltadal. Þar er til staðar
pláss fyrir um 220 hross í tveimur
góðum hesthúsum, á Brúnastöðum
og Skeiðmel.
Forgangsraðað inn í húsin
Ingimar segir að alls mæti rúmlega
700 hross til leiks á Landsmótið og
munu kynbótahross fá forgang að
hesthúsaplássi í áðurnefndum hest-
húsum. „Við forgangsröðum inn í
húsin og fyrst og fremst er hugsunin
í því sú að álagið er mest á kynbóta-
hrossin, þau koma öll að minnsta
kosti tvisvar sinnum fram á mótinu,
fyrst þegar þeim er riðið til dóms
og síðan á yfirlitssýningu. Áttatíu
þeirra munu svo að auki koma fram
við verðlaunaafhendingu „með því
að bjóða upp á pláss fyrir þau á
landsmótssvæðinu drögum við úr
flutningi hrossa til og frá mótsstað,“
segir Ingimar. „Alls mæta 165 kyn-
bótahross til dóms, en trúlega munu
þau ekki öll nýta pláss á Hólum og
því gerum við ráð fyrir að hafa 90 til
100 pláss aflögu fyrir önnur hross. Í
þetta pláss hafa stóðhestar í annarri
keppni forgang og síðan keppnishross
í barna- og unglingaflokki.“ Reynt
verður að nýta hesthúsin á Hólum sem
allra best meðan á mótinu stendur. Séð
verður um gjafir í hesthúsum á Hólum
og gæsla allan sólarhringinn og hús,
hey og undirburður í boði LM.
Aðstaða í góðu beitarhólfi
Ingimar segir að einnig verði til staðar
góð beitarhólf, 8 x 15 m fyrir hross,
þar sem fólki gefst einnig kostur á
að hafa líka tjöld eða hjólhýsi sín
við. Aðgangur að vatni er til staðar
sem og fóðri þegar hagana þrýtur.
Nauðsynlegt er að hver og einn hafi
meðferðis eigin ílát undir vatn sem
og rafgirðingarþráð og stöð. „Þetta
er ekki ekki alveg fimm stjörnu
hótel,“ segir Ingimar. Beitarhólfin
eru hugsuð fyrir hestamannafélög,
til að tryggja þeim góða aðstöðu á
mótinu og til að úthluta áfram til
sinna félagsmanna. „Beitarhólfin
eru að sjálfsögðu gjaldfrí sem og
heyið.“
Ingimar segir að hver og einn
verði að hafa frumkvæði að því að
panta sér pláss, en auk þess sem
slíkt sé í boði á Hólum muni skag-
firskir bændur hlaupa undir bagga
og bjóða þeir aðstöðu í húsunum
sínum fyrir þá sem vantar. „Það er
nóg pláss fyrir alla hér í héraðinu og
það gengur eitt yfir alla, sama hvar
menn hafa hross sín, þá fylgir hey
og undirburður,“ segir hann.
Ingimar hvetur eigendur
landsmótshesta til að hafa samband
við sig sem fyrst, en hann er með
netfangið iing@simnet.is. /MÞÞ
Eyþór Jón Gíslason mótsstjóri:
Á bilinu 700–800 hross
koma fram á mótinu
Nýtt mótssvæði og breytt dagskrá
Þau eru mörg undirbúningsverk-
in sem inna þarf af hendi fyrir
stórhátíð hestamanna. Eyþór Jón
Gíslason er mótsstjóri Landsmóts
í ár og er þetta frumraun hans í
hlutverkinu.
„Mótsstjóri ber ábyrgð á fram-
kvæmd keppninnar og sér til
þess að hún fari farsællega fram.
Undirbúningurinn hófst snemma
og var meðal annars kallað á starfs-
fólk í mikilvægar stöður, svo sem
fótaskoðunarmenn, dýralækna og
björgunarsveitir á mótssvæðinu.
Um átta hundruð hross koma fram
á mótinu og því mikilvægt að vinna
vel úr öllum þáttum viðburðarins,“
segir Eyþór Jón.
Miklar framkvæmdir hafa átt sér
stað á Hólum í Hjaltadal til að gera
svæðið reiðubúið fyrir stórhátíðina.
Eyþór Jón segir því undirbúning
mótsins ólíkan því sem gerist og
gengur á rótgrónum keppnisstöð-
um. „Við erum að að prófa í fyrsta
sinn nýtt mótssvæði og höfum við
því lagst vel yfir hvernig best er að
stilla því upp, hvar best sé að stað-
setja sölutjöld, hvar hver og einn
viðburður nýtur sín og hvernig hægt
er að vinna sem best með þau mann-
virki sem til staðar eru á Hólum.“
Þá hefur dagskrá mótsins einnig
verið breytt á þann hátt að mótslok
eru á laugardagskvöldi í stað sunnu-
dagseftirmiðdags. „Þetta er gert til
þess að eiga sunnudaginn fyrir aðra
dagskrá en þá verður lögð áhersla á
að kynna íslenska hestinn víðs vegar
í Skagafirði. Með því vonumst við
líka til að umferð frá mótssvæði
verði jafnari yfir daginn.“
Eyþór segir lykilinn að góðu
Landsmóti liggja í því fólki sem
mætir til að upplifa hátíðina. „Þarna
koma hestamenn saman til að horfa
á bestu hross landsins. Gaman er
að halda Landsmót á ólíkum stöð-
um, þá eru þau aldrei eins. Hvert
svæði hefur sinn sjarma sem gerir
hvert Landsmót einstakt. Þá skiptir
veðrið einnig miklu máli. Við getum
aðeins vonað að veðrið muni leika
við okkur á Hólum í sumar,“ segir
Eyþór Jón.
/GHP
Ingimar Ingimarsson á Ytra-Skörðugili hefur umsjón með hýsingu hrossa
á landsmótssvæðinu. Nægt pláss er fyrir alla, á Hólum og hér og hvar um
héraðið. Hér stendur hann við annað af tveimur hesthúsum sem fyrir eru á
svæðinu, Brúnastaði. Myndir / MÞÞ
Það verða ekki bara landsins bestu
hestar sem munu skemmta gestum
Landsmóts hestamanna á Hólum.
Tónlist og söngur munu skipa
stórt hlutverk eins og viðeigandi
verður á skemmtilega dagskrá fyr-
ir börn og ungmenni. „Ég lofa því
að það verður glaumur og gleði
bæði inn an sem utan vallar,“ segir
Magni Ásgeirsson, tónlistarmaður
og skemmtana stjóri mótsins.
Hreimur, Heimir og allir hinir
Auk þess sem Magni mun sjálfur
stíga á svið munu þau Matti Matt,
Sverrir Bergmann og Ágústa Eva
skemmta landsmótsgestum. Hreim-
ur og félagar í Made in sveitin munu
trylla lýðinn.
„Skagafjörður á að sjálfsögðu
sína fulltrúa í skemmtidagskránni,
Karlakórinn Heimir, flaggskipið
í skagfirsku tónlistarlífi, kemur
fram og með þeim stórsöngvarinn
Kristján Jóhannsson, harmonikku-
snillingurinn Jón Þorsteinn spilar,
Sigvaldi og hljómsveit kvölds-
ins skemmta og auðvitað verður
Hljómsveit Geirmundar á sínum
stað. Annað væri nú ekki viðeig-
andi,“ segir Magni.
EM í fótbolta og Lotta og Lína
ekki að örvænta, útbúin verður
glæsileg aðstaða á svæðinu fyrir
þá sem fylgjast vilja með EM í
fótbolta. Þá verður Hestatorg með
spennandi dagskrá í reiðhöllinni og
sérstakt leiksvæði verður fyrir börn.
Söngkeppni barnanna verður á sín-
um stað og Leikklúbburinn Lotta
sýnir leikrit auk þess sem líklegt
er að Lína Langsokkur líti við á
mótsstað og fylgist með því sem
fram fer. /MÞÞ
Fjölbreytt skemmtidagskrá á Landsmóti:
Glaumur og gleði utan
vallar sem innan
Magni Ásgeirsson.
Dagskrá Landsmóts hestamanna
verður nú með breyttu sniði frá
því sem áður hefur verið. Allri
keppni lýkur á laugardags-
kvöldinu 2. júlí og sunnudagur-
inn 3. júlí verður undirlagður
ýmsum hestatengdum viðburð-
um. Dagskrá sunnudagsins verð-
ur stutt og hnitmiðuð. Stefnt er
að því að dagskráin hefjist kl. 10
og sé lokið kl. 16.
Dagurinn mun einkennast af
sýnikennslu og fyrirlestrum auk
þess sem hæst dæmdu kynbótahross
mótsins og sigurvegarar í gæðinga-
keppninni verður boðið til sérstakr-
ar uppákomu á Brúnastöðum.
Hestafræðideild Háskólans á
Hólum mun standa fyrir sýnikennslu
þar sem skyggnst verður inn í líf
og nám nemenda við skólans.
Reiðkennarar skólans munu sýna
brot úr ýmsum áföngum skólans
og prófum sem nemendur þurfa
að þreyta. Hross í eigu skólans
sem notuð eru við kennslu verða
sýnd en þau eru ómissandi þáttur í
skólastarfinu. Sýndur verður hluti
af svokallaðri smalabraut sem er
stór hluti af námi á 1. ári. Einnig
verður sýnd gæðingafimi og henni
lýst en gæðingafimi svipar til loka-
verkefnis nemenda á 3. ári.
Mette Mannseth, yfirreiðkennari
hestafræðideildar Háskólans á
Hólum, mun hafa yfirumsjón með
sýnikennslu og hafa reiðkennarar
skólans lagt mikinn metnað í undir-
búning þessa verkefnis.
Fyrirlestrar og opin hús
Þorvaldur Kristjánsson, kynbóta-
dómari og ábyrgðarmaður í hrossa-
rækt hjá Ráðgjafarmiðstöð landbún-
aðarins, mun halda fyrirlestur um
íslenska hestinn. Samhliða fyrir-
lestri Þorvaldar verður opið hús á
Brúnastöðum fyrir gesti mótsins.
Brúnastaðir verða annars eingöngu
svæði fyrir knapa og hesta mótsins á
meðan keppni stendur. Þá verður eins
og áður sagði hæst dæmdu kynbóta-
hrossum mótsins og sigurvegurum í
gæðingakeppninni boðið til sérstakr-
ar uppákomu á Brúnastöðum. Einnig
verða eigendum þeirra og ræktendum
boðið að koma og gefst þeim þá tæki-
færi til að ræða við gesti og gangandi.
Sunnudagurinn 3. júlí verður veisla
fyrir unnendur íslenska hestsins.
Fremstu reiðkennarar og fræðimenn
innan Íslandshestamennskunnar
munu deila þekkingu sinni til gesta.
Dagskrá sem enginn má láta framhjá
sér fara! /LH
Dagur fagmennskunnar
– sunnudagurinn 3. júlí á Landsmóti hestamanna
kennslu með Þrándi frá Hólum. Mynd / Helga Thoroddsen
Eyþór Jón Gíslason er mótsstjóri Landsmóts. Mynd / LH