Bændablaðið - 09.06.2016, Page 35
35
Búskapur er heyskapur
Sala og ráðgjöf
Sími 540 1100
Lynghálsi, Reykjavík
Óseyri, Akureyri
Efstubraut, Blönduósi
Borgarbraut, Borgarnesi
Rúlluplast Verð kr. Rekstrarvörur til stæðugerðar Verð kr. Net og bindigarn Verð kr.
Megastrech - Grænt
75 cm x 25μm x 1500 m
Megastrech - Hvítt
75 cm x 25μm x 1500 m
Megastrech - Svart
75 cm x 25μm x 1500 m
Unterland - Hvítt
75 cm x 25μm x 1500 m
Unterland - Hvítt
50 cm x 25μm x 1800 m
10.950
10.800
10.950
10.950
8.950
Advance Grass íblöndunarefni
150 g duga í 50 tonn af fóðri
Undirplast verð á 100 m²
(12x50 m, 14x50 m, 16x50 m)
(10x50 m, 12x50 m, 14x50 m, 16x50 m)
Varnarnet verð á 1 m²
(8x10 m, 12x15 m)
Sandpokar stk
12.349
1.754
5.077
194
199
Total Cover rúllunet
3.600 m 25.490
VITO rúllugarn 750 m/kg
2 rúllur í pakka
4.500
VITO stórbaggagarn 150 m/kg
2 rúllur í pakka
8.100
VITO stórbaggagarn 130 m/kg
2 rúllur í pakka
8.200
Ný dómhús tekin í notkun
Meðfram undirbúningi Landsmótsins á Hólum hafa nokkrir velunnar-
ar staðarins og hestamennskunnar tekið höndum saman og standa að
byggingu tveggja glæsilegra dómhúsa sem notuð verða á mótinu.
Um er að ræða um 30 fermetra hús, sérstaklega hönnuð sem dómhús og
munu einnig nýtast skólanum sem kennslustofur. Annað húsanna stendur við
hringvöllinn og hitt við nýjan kynbótavöll. Húsin eru vel búin en í þeim er
nettenging, rennandi vatn og salerni. Þeir sem tekið hafa þátt í byggingu hús-
anna eru Límtré vírnet, Steinullarverksmiðjan, Gluggar og gler, Vörumiðlun,
Víðimelsbræður og Steypustöð Skagafjarðar.
Húsin verða afhent Hólaskóla með formlegum hætti í lok mótsins.
/MÞÞ
Á öllum viðburðum verður öryggi gesta að vera í fyrsta sæti. Við undir-
búning Landsmóts hestamanna hefur þetta verið haft að leiðarljósi og
nú liggur fyrir ítarleg öryggisáætlun fyrir mótið sem unnin hefur verið
í samstarfi við lögreglu, sjúkraflutningamenn, brunavarnir, björgunar-
sveitir og heilbrigðisstofnunina á svæðinu.
Samningur við Svæðisstjórn björgunarsveita í Skagafirði var undirritaður
í liðinni viku, en sveitirnar munu annast alla gæslu á svæðinu auk þess að
sjá um að svæðið líti snyrtilega út alla mótsdagana. „Við hlökkum til góðs
samstarfs við þessa aðila, en það er mikið metnaðarmál að öryggi gesta sé
í fyrirrúmi og við munum tryggja það í samvinnu við hið reynda fólk sem
björgunarsveitirnar hafa innan sinna raða,“ segir Áskell Heiðar Ásgeirsson
framkvæmdastjóri. /MÞÞ
Öryggismál á Landsmóti:
Metnaðarmál að öryggi
gesta sé í fyrirrúmi
Bjarni Kristófer Kristjánsson og Áskell Heiðar Ásgeirsson við undirritun
samnings um öryggismál.
Starfsfólk Landsmóts hestamanna
er reynsluríkur hópur af fólki
sem hefur unnið einstaklega vel
saman að því að gera mótið sem
glæsilegast og eftirminnilegast
fyrir alla gesti sem gera sér ferð í
Skagafjörðinn.
Jóhanna Gunnarsdóttir, verk-
efnastjóri Landsmóts hestamanna,
segir að flestir starfsmenn móts-
ins hafi komið að undirbúningi
Landsmóts oftar en einu sinni svo
skipulagið hefur gengið eins og vel
smurð vél. „Lykilstarfsmenn mótsins
koma að mótinu frá ýmsum áttum og
telja á tugum ef ekki hundruðum. Í
hópi starfsmanna eru meðal annars
mótsstjórn, framkvæmdanefnd,
mannvirkjanefnd, dómarar, þulir,
dýralæknar, tæknimenn, sjónvarps-
fólk, starfsmenn sveitarfélags og
sjálfboðaliðar.
Sjálfboðaliðar aðstoða
Í ár eru um 50 sjálfboðaliðar komnir
á vaktir yfir mótið, allflestir hesta-
áhugamenn sem koma erlendis
frá. Einnig kemur fjöldinn allur af
sjálfboðaliðum frá Skagafirði sem
aðstoða við uppsetningu og frágang
mótsins sem og aðstoð á mótinu,“
segir Jóhanna.
Starfsfólk og sjálfboðaliðar koma víða að
Jóhanna Gunnarsdóttir.
Það er að mörgu að hyggja
fyrir tæknistjóra Landsmóts,
Rúnar Birgi Gíslason. Því þó að
Landsmótið snúist að mestu um
hesta og mannfagnað þá þarf að
leggja margar snúrur og marga
kapla til að sinna öllum þeim
kröfum sem gestir og keppendur
gera.
Í mörg horn að líta
Rúnar segir starf sitt að mestu
fólgið í því að skipuleggja aðkomu
mismunandi tæknimanna.
Vel þurfi að passa upp á hljóðflæði
á svæðinu og að hljóðið heyrist vel
í áhorfendabrekkum en trufli ekki
hestana.
Upptaka fyrir sjónvarp
Upptaka fyrir sjónvarp fer fram á
báðum völlum alla keppnisdagana
og sitja menn í myndstjórn við að
setja kynningar og upplýsingar ofan
á myndina sem birtist á risaskjá við
aðalvöllinn. Myndin fer einnig í
OZ-appið þar sem fólk getur horft á
mótið meðan á því stendur og jafnvel
eftir á, gegn greiðslu og til WorldFengs
þar sem hægt er að kaupa sérstaka
myndbandaáskrift.
Kynningar og upplýsingar sem
birtast á skjám og í sjónvarpi eru allar
sóttar rafrænt og þær flæða líka áfram
inn í landsmótsappið þannig að allir
eiga að geta séð rauntíma rásröð og
stöðu hvar sem þeir eru.
Til að allt þetta geti flætt milli staða
á þeim hraða sem fólk vill þarf öflugar
lagnir og hefur því verið lagður ljós-
leiðari milli allra helstu punkta svæðis-
ins.Mikil vinna liggur að baki hönnun
og stjórnun tæknimála á mótinu.
/MÞÞ
Tæknin er nýtt til hins ítrasta á Landsmóti
Rúnar Birgir Gíslason, tæknistjóri
Landsmóts hestamanna.
Á Landsmótinu verður tekið í notkun
nýtt snjallsímaforrit sem er í boði
-
vania og verður með svipuðu sniði
og á Landsmótum undanfarinna ára.
Forritinu verður hægt að hlaða niður
í allar helstu gerðir snjallsíma.
Í snjallsímaforritinu verður hægt
að nálgast nánast allar upplýsingar
um Landsmótið, s.s. lifandi rásröð
og lifandi stöðu, upplýsingar um
hesta, dagskrá mótsins og mynd af
mótssvæðinu. Forritið verður hægt
að nálgast bæði á íslensku og ensku
og er stefnt að því að það verði til-
búið 20. júní.
Mótsskráin í snjallsímaforriti