Bændablaðið - 09.06.2016, Side 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2016
spunaverksmiðja í einum klefanum
en Skorradalshreppur fékk að setja
þar upp spunavél sem spunnið gat
á 25 spólum, komu þá bændur með
lopa úr sinni eigin ull og spunnu
úr henni band. Lét hreppurinn þá
steypa gólf og þak í þann klefa og
setja upp ofn með heitu vatni, þótti
það fáheyrður lúxus. Síðar fengu
konur þau forréttindi að nota þenn-
an klefa sem var sá eini sem ein-
hver ylur var í, það var svo löngu
síðar að heitt vatn var leitt í sturtu
í einn klefann.
Þessir gömlu klefar gegndu
þannig ýmsum hlutverkum í
gegnum tíðina, sem búningsklef-
ar, hesthús, mötuneyti og spuna-
verksmiðja. Það var ekki fyrr en
eftir miðja síðustu öld að hafist
var handa við byggingu núver-
andi laugarhúss sem hlaut nafnið
Laugabúð, var það fullklárað 1969.
Hélt ungmennafélagið fundi sína
þar, þarna var lengi vel bókasafn
sveitarinnar og einnig var húsið
leigt út til barnakennslu og ýmissar
félagsstarfsemi.
Margt brallað í gegnum tíðina
og ýmislegt gengið á
Ýmsar sögur eru til frá fyrstu
árum laugarinnar. Á þeim tíma
var melurinn ofan laugar ógróinn
og henti það oft að aurskriður féllu
úr melnum og gilinu og runnu út
í laugina.
Eitt sinn féll svo mikil skriða í
grynnri enda laugarinnar að hann
náði upp á bakka, gerðu þá skóla-
piltar á Hvanneyri sér það að leik
að ríða þar niður í vatnið og sund-
ríða síðan um laugina.
Á fyrstu árum laugarinnar var
þar enginn heitur pottur, var þá
búin til stífla í gilinu ofan laugar-
innar. Var pollurinn sem þar mynd-
aðist einn helsti samkomustaður
fyrstu kynslóðar sundlaugargesta
að kvöldi til. Heimildir herma að
fyrir dansleiki í sveitinni hafi ungir
menn legið sérlega lengi í heita
vatninu uppi í gili, það hafði nefni-
lega heyrst að sæðisfrumur þyldu
illa mikinn hita og til að minnka
líkur á óheppilegum afleiðingum
skemmtunarinnar var talið æski-
legt að drepa þær sem flestar! Síðar
var steyptur lítill pottur, 1,5 fm að
stærð, sem hægt var að standa
í, rann vatn í hann úr gilinu og
þaðan í laugina. Ein ástæða þess
að potturinn var byggður var að
aurskriður úr gilinu runnu gjarn-
an beint út í laugina, en nú tók
potturinn að hluta við aurnum.
Tók nú þessi pottur við sem kvöld-
samkomustaður næstu kynslóða,
þótti með ólíkindum hve margir
gátu troðist í þennan litla pott, eitt
sinn töldust í honum þrettán full-
orðnir. Var það fastur liður að allir
unglingar sveitarinnar fjölmenntu í
Hreppslaug að loknum vinnudegi á
sumrin, var þá oft liðið að miðnætti
en á þeim tíma var laugin ógirt og
öllum opin allan sólarhringinn árið
um kring. Á síðari árum létu heil-
brigðisyfirvöld loka þessum gamla
potti en í dag eru þrír heitir pottar
við Hreppslaug.
Hreppslaug friðlýst
Árið 2014 var Hreppslaug friðlýst
„á grundvelli staðbundins menn-
ingarsögulegs gildis og fágætis“.
Að mati Minjastofnunar Íslands
hefur Hreppslaug gildi frá sjón-
arhóli byggingarlistar sem óvenju-
legt steinsteypumannvirki, hannað
af Sigurði Björnssyni, yfirsmið
Hvítárbrúar. Einnig hafi hún mikið
menningarsögulegt gildi sem vitn-
isburður um félags- og íþróttastarf
ungmennafélaganna og sem mik-
ilvægur staður í menningar- og
félagslífi héraðsins. Hreppslaug
er eitt af elstu dæmum um upp-
runalegt steinsteypt mannvirki sem
tengist hagnýtingu heits vatns í
þágu sund- og baðmenningar.
Hreppslaug í dag
Nú sem fyrr á árum er rekstur
Hreppslaugar í höndum Umf.
Íslendings sem er lítið félag með
rúmlega 200 félaga. Þar sem
laugin og búningsklefarnir eru
barn síns tíma krefjast mannvirk-
in mikils viðhalds og viðgerða.
Þannig hefur þrotlaus sjálfboða-
vinna félaga í Íslendingi verið
grundvöllur þess að halda lauginni
opinni fyrir sundlaugargesti yfir
sumarið. Þá er laugin einnig notuð
fyrir sundkennslu hjá grunn-
skólanemum við grunnskóladeild
GBF á Hvanneyri, vor og haust og
fyrir sundnámskeið fyrir félaga í
Umf. Íslendingi.
Undanfarnar vikur hafa staðið
yfir umfangsmiklar framkvæmdir
við að helluleggja, múra og mála
laugina þannig að vænta má að
laugin og umhverfi hennar verði
upp á sitt besta í sumar.
Hreppslaug er opin frá 18–22
þriðjudaga til föstudaga og 13–22
laugardaga og sunnudaga en lokað
er á mánudögum. Kvöldopnunin
hefur aflað lauginni vinsælda og
hafa margir haft gaman af lífleg-
um umræðum í heitu pottunum á
sumarkvöldum. Önnur sérstaða
laugarinnar er hið sírennandi
heita vatn úr uppsprettunum ofan
laugarinnar svo og hið náttúru-
lega umhverfi með birkivaxinni
grasbrekku nánast að laugarbarmi.
Stefnt er að því að laugin verði
klár fyrir sumaropnun 10. júní.
Guðrún J. Guðmundsdóttir
og Borgar Páll Bragason.
BLANDARI GARANT 802-SS & VINNUGEYMSLA
HAGKVÆM ALHLIÐALAUSN
Blandar steypu, múr, steinlím, áburð,
fóður, mold, garðúrgang o.s.frv.
www.fl iegl.com
Allt á fullan kraft!
Með Euro
Tengi
RAG - import export ∙ Helluhraun 4 220-Hafnarfjörður
Tel + 354 565-2727 ∙ Mobile + 354 892 7502 ∙ Email: rafn@rag.is IS Hurðir I Sími 564 0013 I www.ishurdir.is I ishurdir@ishurdir.is
IÐNAÐARHURÐIR
BÍLSKÚRSHURÐIR
• Íslensk framleiðsla, smíði og samsetning.
• Allar hurðir smíðaðar samkvæmt máli.
• Áratuga reynsla starfsmanna í hurðum.
• Hágæða hráefni.
• Þolir íslenskt veðurfar.
• Sér meðhöndlaðar brautir gegn ryði og álagi.
• Stuttur afgreiðslutími.
Framkvæmdir í Hreppslaug vorið 2016. Mynd / Oddný Kristín Guðmundsdóttir
Duglegir félagsmenn Ungmennafélagsins Íslendings. Mynd / Borgar Páll Bragason