Bændablaðið - 09.06.2016, Qupperneq 64
64 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2016
Valmundur og Una byrjuðu að
búa á Eystra-Hrauni árið 1989.
Valmundur er fæddur og uppalinn
þar. Una og Valmundur (Valli)
bjuggu með foreldrum hans til að
byrja með, síðan byggðu þau og
fluttu í sitt eigið hús í árslok 1989.
Árið 1991 var byggt verkstæði og
2005 lausagöngufjós með mjaltar-
gryfju. Elín Þóra, systir Valla, kom
í búskapinn með fjölskylduna sína
1997 en flutti í burtu 2008. Þá kom
Jón Hilmar í búskapinn og verk-
stæðið. Í árslok 2011 flutti Dóra,
kærasta hans, á Eystra-Hraun.
Býli: Eystra-Hraun.
Staðsett í sveit: Landbroti í Vestur-
Skaftafellsýslu.
Ábúendur: Valmundur Guðmunds-
son og Una K. Jónsdóttir. Jón Hilmar
Jónasson og Dóra Einarsdóttir.
Fjölskyldustærð (og gæludýra):
Valmundur og Una eiga þrjú börn; Jón
Hilmar (31 árs), Þórarinn (28 ára) og
Lína Dögg (16 ára). Jón Hilmar og
Dóra eiga Stefaníu Guðrúnu (2 ára)
og eitt á leiðinni. Yfir sumartímann
býr Katrín Þórarinsdóttir á bænum en
á Klaustri á veturna. Á bænum búa
líka Labradorinn Moli og kötturinn
Herkúles.
Stærð jarðar? Ekki vitað.
Gerð bús? Kúabú.
Fjöldi búfjár og tegundir? 64
mjólkandi kýr, 60 kvígur og þrjú naut.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Dagarnir byrja allir á morgun-
mjöltum. Eftir mjaltir eru verkin
mismunandi eftir árstíma, en mikið
af tímanum er eytt á vélaverkstæði
sem er á bænum. Svo enda allir
dagar á kvöldmjöltum.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Skemmtilegustu
bústörfin er öll útivinna þegar
veðrið er eins og maður vill hafa
það. Leiðinlegast er að klippa
klaufir og pappírsvinna.
Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir
ykkur á jörðinni eftir fimm ár?
Við sjáum ekki stórar breytingar.
Hvaða skoðun hafið þið á félags-
málum bænda? Höfum enga
skoðun.
Hvernig mun íslenskum landbún-
aði vegna í framtíðinni? Bara vel,
eins og alltaf.
Hvar teljið þið að helstu tæki-
færin séu í útflutningi íslenskra
búvara? Erum ekki alveg viss.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Í ísskápnum er alltaf kanna með
mjólkinni okkar, ostur, egg, rabar-
barasulta og tómatssósa.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Grilluð nautasteik frá
okkur og meðlæti.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Þegar beljurnar sluppu
út um nóttina 21. desember 2014.
Þær vildu óska Valla til hamingju
með 50 ára stórafmælið. Það tók
mjög langan tíma að smala þeim
aftur inn í fjós.
Líf og lyst
BÆRINN OKKAR
Rabarbaraveisla og hrossakjöts-tartar
Þeir sem eru með rabarbara í
garðinum sínum eru líklega að
fá fyrstu uppskeruna um þess-
ar mundir. Margir gera sultu úr
honum eða graut og aðrir nota
hann í eftirrétti. Það er upplagt
að frysta rabarbarann og búa til
góðgæti úr honum síðar.
Það er auðvelt að útbúa hross-
kjöts-tartar með rúgbrauði og
steinseljupestó. Ekki þarf að elda
kjötið en mikilvægt er að hráefnið
sé nýtt og fyrsta flokks. Rétturinn er
frægur þótt flestir þekki nauta-tartar
með hrárri eggjarauðu og piparrót,
rauðrófum og kapers.
Hrossakjöts-tartar
› 250 g hrossakjöt, helst file eða lund
› 1 tsk. sinnep
› 1 msk. fínt hakkað skalottlaukur
› 6 sneiðar af rúgbrauð
Steinseljupestó
› Stór handfylli steinselja eða önnur
kryddjurt
› ½ hvítlauksrif, söxuð
› 1 bolli rifinn ostur, t.d. parmesan
› ½ bolli valhnetur
› 1 msk. eplaedik
› ½ bolli ólífuolía
› salt og pipar
Stökkt brauð
Skerið rúgbrauð. Helminginn undir
tartarinn og svo nokkrar sneiðar
til skrauts, eins þunnt og hægt er.
Skrautbrauðið er bakað þar til gullið
og stökkt í ofni við 200 ° í 5–10 mín.
Tartar
Saxið kjötið í hakkavél eða mat-
vinnsluvél. Blandið sinnepi og
skalottlauk í tartarinn ásamt salti
og pipar. Kælið þangað til á að
framreiða.
Steinseljupestó
Keyrið saman öll innihaldsefni í
matvinnsluvél eða í morteli. Kryddið
með salti, pipar og ediki.
Berið fram á rúgbrauðinu með
tartarnum, stökku rúgbrauði og
pestó. Nokkrar kryddjurtir til skrauts.
Það má líka krydda og skreyta með
niðurlögðum perlulauk eða því sem
er við hendina.
Rabarbara- og jarðarberjasulta
› 500 g rabarbari
› 500 g sykur
› 400–500 g jarðarber
(má nota önnur ber)
Sjóðið saman rabarbara og sykur í
frekar þunna sultu. Bætið jarðarberj-
unum í síðasta hálftímann (það má
nota frosin ber). Geymið í krukkum
á köldum stað.
Rabarbari með rjóma
› ½ lítri rjómi
› 300 g ferskur rabarbari
› 150 g af sykri
› ½ tsk. rifinn börkur af sítrónu
› Safi úr ½ appelsínu
› 1 vanillufræbelgur
› 1 lítil klípa af salti
Opnið vanillufræbelginn eftir endi-
löngu og skafið út fræin með hníf.
Hrærið í vanillu, sykur ásamt öðrum
innihaldsefnum í ofnfast fat. Setjið
inn í ofn með álpappír eða loki og
bakið í 30 mínútur. Slökkvið svo á
ofninum og látið standa þangað til
ofninn er orðinn kaldur. Framreiðið í
sneiðum með jarðarberjum og rabar-
bara.
Og svo er hægt að gera stökk fræ og
hafra og strá yfir. Það er eitt besta
múslí sem þú færð (hér er uppskrift
á eftir).
Bökuð korn og fræ
› 100 g af bókhveiti (hægt að kaupa fræ
og kornblöndur)
› 100 g af sólblómafræi
› 100 g af hafraflögum
› 200 g af vatni eða ávaxtasafa
› 200 g af hrásykri
› 5 g salt
› 50 g af olíu
Blandið öllu hráefni saman og setjið
á bökunarpappír (þunnt lag). Bakið
við 160 °C í 40–60 mínútur. Hrærið
nokkrum sinnum svo blandan bakist
jafnt og fræin og kornin verði ljós-
brún og stökk. Geymist í loftþéttum
umbúðum.
Hjónabandssæla
› 2 bollar haframjöl
› 2 bollar hveiti
› 2 bollar hrásykur (gott að blanda með
púðursykri)
› 2 bollar möndlumjöl
› 2 tsk. matarsódi
› 250 g íslenskt smjör í teningum
› 2 egg
Þetta er uppskrift í tvær kökur eða
nokkrar litlar. Blandið öllum þurrefn-
um saman í matvinnsluvél og bætið
síðan út í smjöri og eggjum. Þrýstið
rúmlega helmingi af deiginu ofan
í smurt form eða pönnu. Ofan á er
smurt rabarbarasultu og hinum helm-
ingnum af deiginu dreift yfir sultuna.
Bakað við 200 °C í um 30 mín.
MATARKRÓKURINN – BJARNI GUNNAR KRISTINSSON MATREIÐSLUMEISTARI
Eystra-Hraun
Valmundur Guðmundsson, Jón Hilmar Jónasson, Lína Dögg Valmundsdóttir,
Þórarinn Valmundsson og Una Kristín Jónsdóttir.