Bændablaðið - 09.06.2016, Síða 65
65 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2016
Kósí frá DROPS Design
HANNYRÐAHORNIÐ Gallery Spuni
Það er fátt betra en íslenskt sumar.
Lykt af nýslegnu grasi, hlý gola,
falleg litrík blóm, sól, yndislega
falleg kyrrlát og björt sumarkvöld
og áfram má telja.
Við skulum samt ekki gleyma að
íslensk sumur bjóða líka upp á kalda
daga og er því upplagt að skella í
fallega prjónaða peysu sem gott er
að skella litlum krílum í til að hægt
sé að njóta sumarsins til hins ýtrasta.
Prjónuð DROPS peysa með garðaprjóni úr
„Delight”.
Stærð 1 mán.–6 ára.
BabyDROPS 20-15
DROPS Design: Mynstur nr DE-006-by
Stærð:
1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4 - 5/6) ára.
Stærð í cm:
50/56-62/68-74/80 (86/92-96/104-110/116)
Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
150-150-200 (200-250-300) g nr 04, ljósblár.
DROPS HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3 – eða sú
stærð sem þarf til að 24 l x 48 umf með garðaprjóni
verði 10 x 10 cm.
DROPS TRÉTALA NR 511: 3-4-4 (5-5-5) stk
GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.
ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l hvoru megin við l með prjónamerki
með því að slá uppá prjóninn.
Til þess að koma í veg fyrir göt þá er uppslátturinn
prjónaður snúinn slétt í næstu umf (þ.e.a.s. prjónað
er aftan í lykkjubogann í stað framan).
PEYSA:
Stykkið er prjónað frá hlið. Prjónuð eru 2 stykki sem
saumuð eru saman að aftan í lokin. Stykkin eru prjón-
uð frá ermi að miðju á peysu.
HÆGRA HÁLFA STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 36-38-40 (40-42-44) l á hringprjóna nr 3
með Delight. Prjónið slétt fram og til baka í öllum umf
til loka (= garðaprjón). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6-6-5 (5-6-6) cm
er aukið út um 1 l á hvorri hlið, endurtakið útaukn-
ingu í 8. hverri umf alls 6-7-9 (11-13-14) sinnum =
48-52-58 (62-68-72) l. Prjónið þar til stykkið mælist
17-19-20 (25-29-33) cm – passið uppá að síðasta
umf sé prjónuð frá röngu.
FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið 1 umf slétt (= rétta), í lok umf eru fitjaðar upp
41-43-50 (53-58-60) l (= að bakstykki) = 89-95-108
(115-126-132) l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið 1 umf til baka, snúið við, setjið eitt prjónamerki
í 2. L á prjóni frá réttu (= í hægri hlið). Prjónið áfram
– JAFNFRAMT er aukið út um 1 l hvoru megin við l
með prjónamerki í annarri hverri umf alls 38-40-46
(48-50-52) sinnum – LESIÐ ÚTAUKNING. JAFNFRAMT
þegar stykkið mælist 8½-9-10½ (11-12-13) cm prjón-
ið áfram einungis yfir síðustu 60-65-74 (79-86-91) l
á vinstri hlið séð frá réttu (= bakstykki), aðrar l eru
settar á band.
BAKSTYKKI:
Prjónið þar til stykkið mælist 13-14-16 (17-18-19) cm
(frá þar sem l voru fitjaðar upp á bakstykki), fellið af.
FRAMSTYKKI:
Setjið l á band til baka á prjóninn, en látið 9-10-10
(10-12-12) l við bakstykki vera áfram á bandinu fyrir
hálsmál. Haldið áfram með útaukningu í annarri
hverri umf – JAFNFRAMT er felld af 1 l við háls (= að
l við bandi) í 4. hverri umf alls 6-7-7 (7-7-7) sinnum.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 14-15-17 (18-19-
20) cm (frá þar sem útaukning á framstykki byrjaði
og við miðju að framan) fellið af fyrir 3-4-4 (5-5-5)
hnappagötum þannig (frá hálsi, þ.e.a.s. í umf frá
röngu): Prjónið 2 l, fellið af 2 l, * prjónið 12-9-11 (9-10-
10) l, fellið af 2 l *, endurtakið frá *-* alls 2-3-3 (4-4-4)
sinnum, prjónið síðan slétt út umf. Í næstu umf eru
fitjaðar upp 2 nýjar l yfir allar l sem felldar voru af.
Eftir alla úrtöku og útaukningu eru 90-93-109 (115-
121-126) l á prjóni. Þegar útaukningum á hægri hlið
er loki fellið af 51-52-62 (66-70-74) l frá hálsmáli og
niður yfir kant að framan (fellið af í 1 umf frá röngu) =
39-41-47 (49-51-52) l eftir á prjóni. Prjónið slétt áfram
fram og til baka yfir þessar l í ca 1-1-2 (2-3-3) cm
(brjótið stykkið saman tvöfalt við öxl og passið uppá að
framstykki sé jafn langt og bakstykki). Fellið síðan af.
VINSTRA HÁLFA STYKKI:
Prjónið eins og hægra hálfa stykki nema án hnappa-
gata – ganga á frá þessu stykki með rönguna út.
FRÁGANGUR:
Leggið 2 stykkin saman á móti hvort öðru og saumið
saman við miðju að aftan – saumið kant í kant svo að
saumurinn verði ekki of þykkur.
Brjótið peysuna saman tvöfalda og saumið sauma
undir ermum og hliðarsauma í eitt í ysta lykkjubog-
ann. Saumið tölur í.
HÁLSMÁL:
Prjónið upp 55 til 80 l (meðtaldar l á bandi) í kringum
hálsinn á hringprjóna nr 3 með Delight.
Prjónið 3 umf slétt fram og til baka, fellið af.
Prjónakveðja,
fjölskyldan Gallery Spuna
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
6 9 4
5 2 3 4
9 8 3 7
5 6 2 1 3
9 5 7 8
4 3 6 2 7
6 8 1 9
4 8 5 1
3 2 6
Þyngst
5 4 8
8 9 6
3 2
3 7 1
6 9 8
5 9 7
9 3
2 4 6
6 3 1
6 1 2
2 3 7
8 7 5
8 5 4
2 9
1 4 6
9 8 6
7 6 5
9 5 3
7 8
1 5 4
2 4 8 6
9 7 4
3 2
6 1 3
1 6 5 7
9 2 3
5 1
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Alexöndru langar að
verða njósnari
Alexandra Rós er sex ára nemandi
í Lindaskóla í Kópavogi.
Nafn: Alexandra Rós Hjörvarsdóttir.
Aldur: 6 ára.
Stjörnumerki: Bogamaður.
Búseta: Lindahverfi, Kópavogi.
Skóli: Lindaskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í skól-
anum? Í vali, úti að leika og að leika
með nýja Barbie-dótið.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Kisa.
Uppáhaldsmatur: Grjónagrautur með
rúsínum og epli.
Uppáhaldshljómsveit: DVBBS &
Borgeous (lagið Tsunami). Held líka
upp á Stuðmennina.
Uppáhaldskvikmynd: Monsters High-
bíómyndirnar.
Fyrsta minning þín? Þegar ég gargaði
alltaf af því ég fékk ekki grjónagraut
og epli.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóð-
færi? Ég æfi ballett.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Mig langar að verða
njósnari.
Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur
gert? Þegar ég læddist úr dægradvöl og
fór í heimsókn til mömmu í vinnuna
hennar.
Ætlarðu að gera eitthvað skemmti-
legt í sumar? Að hitta Lindu frænku
og leika við Emiliu Líf.
Næst » Alexandra skorar á bróður sinn, Mikael
Bergmann, að svara næst.
Vantar þig íslenskan lopa?
Álafosslopi - Plötulopi - Léttlopi - Einband - Bulkylopi - Kambgarn
Heimasíðan gefjun.is
býður upp á lopa frá
Ístex á lægsta
fáanlega verði !
Sendum um allt land!
10%
afsláttur
í vefverslun
Tilboð gildir til 16. júní
Í tilefni af glænýrri
vefverslun bjóðum við
10% afslátt.
Setjið inn “hamingja” í
afsláttarkassa á síðunni
þegar þið gangið frá pöntun.
Mynstur
= prjónstefna