Bændablaðið - 05.10.2017, Blaðsíða 10
10 Bændablaðið | Fimmtudagur 5. október 2017
Upp er komin vírussýking í
íslenskum tómötum. Búið er að
staðfesta smit í tómatplöntum á
þremur býlum og grunur er um
smit á fleiri garðyrkjustöðvum.
Smitið er ekki hættulegt fólki og
ekki eru líkur á því að það berist
í aðra ræktun en tómata í gróð-
urhúsum.
Helgi Jóhannesson, garðyrkju-
ráðunautur hjá Ráðgjafarmiðstöð
landbúnaðarins (RML), hefur stað-
fest við Bændablaðið að fundist hafi
tómataplöntur sem smitaðar eru af
Pepino mósaík vírus á þremur býlum
á Suðurlandi. Grunur um smit kom
upp í einu tilviki á síðasta ári.
Landlæg óværa á Spáni og í
Marokkó
„Vírusinn sem um ræðir er land-
lægur í löndum eins og Marokkó
og Spáni, sem eru mikil tómatarækt-
arlönd. Þar eru menn nánast hættir
að reyna að uppræta vírusinn þar
sem hann finnst nánast úti um allt.
Það segir manni að það er hægt að
rækta tómata þrátt fyrir vírusinn en
uppskeran verður alltaf lélegri.“
Helgi segir að ekki séu til neinar
tölur um hversu mikið uppskeran
dregst saman við sýkingu enda fari
það eftir því á hvaða tíma ræktunar-
innar sýkingin komi fram og hversu
móttækilegar plönturnar eru hverju
sinni. Hann segist ekki vita til að til
séu nein tómatplöntuyrki sem eru
þolnari gegn vírusnum en önnur né
að sýkingin hafi gengið yfir og horf-
ið af sjálfsdáðum nokkurs staðar.
Bráðsmitandi vírus
„Líklegt er talið að veiran hafi borist
hingað með innfluttum tómötum þó
það fáist líklega aldrei staðfest.
Vírusinn er mjög smitandi og
smitast meðal annars með ávöxtun-
um sjálfum sem eru stanslaust í
dreifingu og meðan svo er er veru-
lega erfitt að uppræta sýkinguna.
Sýking getur borist á fingur
fólks heima í eldhúsi þegar það sker
tómata ofan á brauð og ef síðan er
farið út í gróðurhús að afblaða eða
vefja plöntur upp getur veiran borist
í plönturnar. Þannig að smit getur
borist mjög hratt yfir,“ segir Helgi.
Viljum útrýma vírusnum strax
Helgi segir að í fyrstu hafi verið
vonast til að sýkingin væri bundin
við einangruð tilfelli en að svo sé
því miður ekki. „Sýkingin er að því
er við best vitum bundin við nokk-
ur garðyrkjubýli á Suðurlandi. Við
eigum reyndar eftir að kortleggja
sýkinguna betur en með vissu getum
við sagt núna að hún sé staðfest á
þremur býlum og að grunur sé um
hana á fleiri stöðum.
Á Norðurlöndunum, sem eru í
svipaðri stöðu og nánast öll tómata-
ræktun á sér stað í gróðurhúsum,
hefur víða tekist að ráða niðurlög-
um vírussins. Ég tel því að slíkt ætti
einnig að vera hægt hér á landi og er
hóflega bjartsýnn á að okkur takist
að uppræta þetta.
Til þess að hægt sé að útrýma
vírusnum getur þurft að henda öllu
út, brenna plönturnar, sótthreinsa
húsin og leggja niður ræktun í
ákveðinn tíma, líklega tvo til þrjá
mánuði. Hér er því um töluverða og
kostnaðarsama aðgerð að ræða.“
/VH
FRÉTTIR
Landbúnaðarráðherra hefur
skipað nýja fulltrúa í verðlags-
nefnd búvöru. Öllum fulltrúum
stjórnvalda er skipt út úr
nefndinni. Athygli vekur að
formaður nefndarinnar er
hagfræðingur Viðskiptaráðs og
einn nefndarmanna er prófessor
við HÍ sem hefur gagnrýnt
landbúnaðinn harðlega í ræðu og
riti síðustu ár.
Verðlags-
nefnd búvöru
ákveður sam-
kvæmt lögum
lágmarksverð
til bænda fyrir
mjólk innan
greiðslumarks
og einnig heild-
söluverð helstu
mjólkurvara.
Nýr for -
m a ð u r
v e r ð l a g s -
nefndar er
Kristrún M.
Frostadóttir,
sem er fulltrúi
landbúnaðar-
ráðherra. Hún
er að aðalstarfi
hagfræðingur
Viðskiptaráðs
en starfaði áður
hjá bandaríska
fjárfestinga-
b a n k a n u m
M o r g a n
Stanley og sem
blaða maður á
Viðskipta blað-
inu. Þórólfur
G. Matt-
híasson, hag-
fræði prófessor
við HÍ, og
Dóra Sif Tynes lögfræð ingur og
varaþingmaður Viðreisnar, eru skip-
uð í nefndina sem fulltrúar Þorsteins
Víglundssonar félagsmálaráðherra.
Fulltrúar Bændasamtaka Íslands
í nefndinni eru tveir, þeir Sindri
Sigurgeirsson, formaður BÍ og Arnar
Árnason, formaður Landssambands
kúabænda.
Jóhanna Hreinsdóttir, bóndi í
Káraneskoti og Rögn valdur Ólafsson,
bóndi í Flugumýra rhvammi, eru
fulltrúar Samtaka afurðastöðva í
mjólkuriðnaði. Þá tilnefndi land-
búnaðar ráðherra Októ Einarsson,
stjórnarformann Ölgerðarinnar,
sem áheyrnar fulltrúa. Það er þá í
krafti þess að Ölgerðin á núna Kú
og hann er skipaður fyrir hönd minni
mjólkur vinnslu fyrir tækja.
Er tilgangurinn að efna til ófriðar
við bændur?
Sindri Sigur geirsson, form aður
Bænda sam takanna, segir þessa ráð-
stöfun vekja
furðu.
„Lögmæti
ákvörðunar-
innar er ekki
dregið í efa, en
það er í meira
lagi sérkenni-
legt að ráð-
herra taki þessa
á k v ö r ð u n .
Öllum full-
trúum stjórn-
valda er skipt út af ráð herrum sem
sitja í starfs stjórn fyrir fulltrúa sem
augljóslega er ætla að vinna að
framgangi ákveðinnar pólitískr-
ar stefnu sem er ekki í samræmi
við gildandi land búnaðar stefnu í
landinu. Ég spyr mig hvort að hér
sé einfaldlega til gangurinn að efna
til ófriðar við bændur. Ég þekki
ekki til starfa nýs formanns nefnd-
arinnar, en Viðskiptaráð hefur ekki
stutt innlendan landbúnað hingað
til. Jafnframt þekki ég ekki til starfa
annars fulltrúa félagsmálaráð-
herra, en hinn full trúann þarf ekki
að kynna. Bændur hafa átt í lang-
varandi deilum við hann um árabil
og gert margvíslegar efnisathuga-
semdir við hvernig hann fjallar um
land búnaðinn en fengið fá eða engin
efnisleg svör. Hann hefur einfald lega
ekki traust bænda og ég sé það ekki
breytast.“
LK mun skoða sína stöðu
í nefndinni
Arnar Árna son, formaður LK, er
ómyrkur í máli um skipan nefndar-
innar og segir að kúabændur muni
í framhaldinu
íhuga sína
stöðu.
„Það er
augljóst að
þ ingf lokkur
Viðreisnar er í
heilögu stríði
við bændur
án þess að
skilja almenni-
lega hvern-
ig ís lenska
land búnaðar kerfið virkar. Skipan
Þórólfs Matthíassonar í nefndina
er greinilega gerð til þess að valda
úlfúð og ringulreið í kringum starf
hennar. Ráðherra var fullljóst hvert
þetta myndi leiða. Það eru að mínu
mati engar líkur á að neitt gagn-
legt komi út úr nefndinni. Við hjá
Landssambandi kúabænda munum
í kjölfarið skoða okkar stöðu. Það
er ekkert ólíklegt að við drögum
okkur út úr nefndinni en það er of
snemmt að segja um það á þessu
stigi,“ segir Arnar.
Verðlagsnefnd búvara er skip-
uð sjö einstaklingum og skulu
tveir fulltrúar vera tilnefndir af
samtökum launþega, tveir af
Bænda samtökum Íslands, tveir af
Samtökum afurðastöðva í mjólkur-
framleiðslu auk þess sem ráðherra
land búnaðar mála skipar formann
nefndar innar.
Samtök launþega, þ.e. Bandalag
starfsmanna ríkis og bæja, og stjórn
Alþýðusambands Íslands hafa
ákveðið að nýta ekki rétt sinn til
tilnefningar. Samkvæmt lögum féll
það því í hlut velferðarráðherra að
tilnefna þessa tvo fulltrúa. /TB
Veirusmit staðfest í tómötum
á þremur íslenskum býlum
– Vírusinn er landlægur í Marokkó á Spáni en er ekki hættulegur fólki
Tómatar sýktir af Pepino mósaík vírus.
Katrín María Andrésdóttir,
framkvæmdastjóri Sambands
garðyrkjubænda, segir að hjá
Sambandi garðyrkjubænda sé
verið að skoða hvaða stuðning
hægt sé að veita félagsmönnum
sem kunna að þurfa að fara út
í aðgerðir vegna veirusýkingar-
innar.
„Eins og gefur að skilja er ekki
um einfaldar aðgerðir að ræða
þegar útrýma þarf vírussýkingu úr
gróðurhúsi.“
Getur þurft að hreinsa allt
út úr húsum
„Það getur þurft að hreinsa allt
út úr húsunum og sótthreinsa
þau og alltaf er hætta á að
vírussýking geti sprottið upp aftur.
Kostnaðurinn við slíkar aðgerðir
getur verið verulegur og á stærstu
tómatabýlunum getur hann numið
tugum milljóna króna.
Sú staða getur hugsanlega komið
upp að garðyrkjubændur leggi ekki
í kostnaðinn ef þeir þurfa að taka
skellinn einir og ákveði að hætta
framleiðslu.
Í 32. grein búvörulaga nr. 99/1993
er heimild til að halda tímabundið
áfram samningsbundnum stuðningi
ef framleiðsluskilyrði raskast af
ástæðum sem framleiðandi getur
ekki haft áhrif á.
Við erum að skoða hvort
það geti átt við nú en þrátt fyrir
þann stuðning er ljóst að þeir
sem þurfa mögulega að fara út
í kostnaðarsamar aðgerðir sitja
væntanlega eftir með töluvert
fjárhagslegt tjón,“ segir Katrín
María. /VH
Helgi Jóhannesson, garðyrkju ráðunautur hjá RML.
Katrín María Andrésdóttir.
Stuðningur við bændur
Þórólfur G.
Matt hías son.
Arnar Árnason, for-
maður LK.
Sindri Sigur geirs-
son, formaður BÍ.
Ráðherra skipar nýja verðlagsnefnd búvöru:
Þingflokkur Viðreisnar er í
heilögu stríði við bændur
– segir formaður Landssambands kúabænda
Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir landbúnaðar ráðherra
segir enga ástæðu fyrir
forsvarsmenn bænda að bregð-
ast illa við skipuninni í verð-
lagsnefnd búvara.
„Það vilja allir íslenskum land-
búnaði vel og menn eiga frekar
að fagna víðtækari þekkingu og
breiðari skírskotun í nefndinni.
Allir í nefndinni, bæði þeir sem
voru þar fyrir og þeir sem eru
nýir, er allt fólk sem ég þekki til
af vönduðum vinnubrögðum og
mun beita þeim í þessu máli sem
öðrum. Ég er sannfærð um að
þótt aðferðin sem ég tala fyrir
um meira samtal milli bænda og
neytenda teljist erfið sé hún ekki
ógnun við neinn. Miklu frekar er
samtalið tækifæri til að styrkja
landbúnaðinn.“ /VH
Skipunin ekki ógnun
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Kristrún M.
Frostadóttir.
Dóra Sif Tynes.