Bændablaðið - 05.10.2017, Page 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 5. október 2017
Ef horft er til
árangurs Íslendinga
í aukinni verðmæta-
sköpun í sjávarútvegi
er hún mikil hvað
varðar verðmæt-
ar tegundir eins og
þorsks.
Árið 2016 var
útflutningsverðmæti
landaðs þorskafla
Íslendinga 3,15 dollar-
ar á kíló, 4,6 sinnum
meira en árið 1981.
Þorskaflinn 2016 skil-
aði 2,6 sinnum meiri
verðmætum en 1981,
þótt aflinn 2016 hafi
einungis verið 57%
af afla ársins 1981.
Þetta kom fram í
máli Önnu Kristínar
Daníelsdóttur, sviðs-
stjóra rannsókna og
nýsköpunar hjá Matís,
á ráðherrafundi í tengslum við World
Seafood Congress sem haldin var í
Hörpu fyrir skömmu.
Verð fremur en magn
Árið 2016 öfluðu Íslendingar alls
einnar milljón og 67 þúsund tonna,
útfluttar sjávarafurðir námu 576
þúsund tonnum. Fyrir hvert útflutt
kíló af sjávarafurðum fékkst 2,5
sinnum meira árið 2016 en árið
2003, en það ár var tekin ákvörðun
um að auka verðmæti sjávarfangs
með rannsóknum og þróun. Þá
var ákveðið að huga fremur að
verðmætum afurða en magni hráefna.
Þorskurinn verðmætur
Árangurinn er enn meiri sé litið sér-
staklega til verðmætustu tegundar-
innar, þorsksins. Árið 2016 var
útflutningsverðmæti landaðs
þorskafla Íslendinga 3,15 dollarar,
343,59 íslenskar krónur, á kíló sem
er 4,6 sinnum meira en árið 1981.
Þorskaflinn 2016 skilaði 2,6
sinnum meiri verðmætum en 1981,
þrátt fyrir að þorskaflinn 2016 hafi
einungis verið 57% af þorskafla
ársins 1981. /VH
Fiskistofa:
Aflahlutdeild stærstu útgerða
Fiskistofa hefur tekið saman
yfirlit yfir stærstu útgerðir
landsins fiskveiðiárið 2017/2018
hvað varðar úthlutað aflamark
og krókaaflamark.
HB Grandi og Samherji eru
stærstir með samanlagt 16,6%
úthlutað aflamark. Grunnur í
Hafnarfirði er stærstur þegar kemur
að krókaaflamarki með 4,6%.
Miðað er við stöðu aflaheimilda
þeirra útgerða sem ráða yfir mest-
um aflahlutdeildum 1. september
síðastliðinn eftir úthlutun aflamarks
við úthlutun á grundvelli hlutdeilda
í upphafi fiskveiðiársins 2017/2018.
Sambærilegar upplýsingar koma
fram um útgerðir sem ráða yfir
mestum krókaaflahlutdeildum.
Reiknað í þorskígildum
Úthlutað aflamark fyrirtækis er
reiknað til þorskígilda. Þorskígildin
sem þannig eru eignuð hverju
fyrirtæki eru síðan lögð saman.
Útreikningurinn til þorskígilda tekur
til allra tegunda annarra en þeirra
sem alfarið veiðast utan íslenskrar
lögsögu en eru þó kvótabundnar
eins og þorskur í Barentshafi og
rækja á Flæmingjagrunni eru ekki
talin með.
Litlar breytingar eru á hvaða
fyrirtæki eru í efstu sætunum frá
því sams konar upplýsingar voru
birtar í mars síðastliðinn í kjölfar
úthlutunar aflamarks í deilistofnum
um áramótin og viðbótarúthlutunar
á loðnu.
HB Grandi og Samherji stærstir
Eins og undanfarin ár eru HB
Grandi og Samherji í tveimur
efstu sætunum. HB Grandi er með
um 10,4% af en Samherji með
6,2%. Samanlagt ráða þessi tvö
stærstu útgerðarfyrirtæki landsins
því yfir 16,6% af hlutdeildunum í
kvótakerfinu. Í þriðja til fimmta sæti
eru Síldarvinnslan í Neskaupstað,
Þorbjörn í Grindavík og FISK-
Seafood Sauðárkróki.
Þegar skoðuð er króka-
aflahlutdeild útgerða er Grunnur
í Hafnarfirði stærstur með 4,6%,
Jakob Valgeir í Bolungarvík en
síðan Einhamar Seafood með um
4,1% hvor útgerð.
Reglur og eftirlit með
hámarkshlutdeildum
Samkvæmt lögum um stjórn
fiskveiða má heildaraflahlutdeild
fiskiskipa í eigu einstakra eða
tengdra aðila ekki fara yfir 12%
af samanlögðu heildarverðmæti
aflahlutdeilda allra tegunda. Þá má
aflahlutdeild í þorski ekki fara yfir
12%. Í ýsu, ufsa, grálúðu, steinbít,
síld og loðnu má hún ekki fara yfir
20% og í karfa ekki yfir 35%.
Heildarkrókaaflahlutdeild
einstakra eða tengdra aðila
má ekki fara yfir 5% af
samanlögðu heildarverðmæti
krókaaflahlutdeilda. Þá má
krókaaflahlutdeild fiskiskipa í eigu
einstakra eða tengdra aðila ekki fara
yfir 4% í þorski og 5% í ýsu. /VH
HLUNNINDI&VEIÐI
Íslensku sjávarútvegsverðlaunin:
Framúrskarandi fiskvinnsla og
framúrskarandi skipstjóri
Verðlaun íslensku Sjávar útvegs-
sýningar innar 2017 voru veitt
í sjöunda sinn í tengslum við
Sjávarútvegs sýninguna sem
haldin var í Kópavogi fyrr í
september.
Guðmundur Þ. Jónsson,
skipstjóri á Vilhelm Þorsteinsyni
EA, hlaut verðlaunin í flokkunum
Framúrskarandi skipstjóri. Við
afhendinguna kom fram að
Guðmundur er einn af reyndustu
og farsælustu skipstjórum íslenska
flotans og skip undir hans stjórn
hafa árum saman skilað mestu
aflaverðmæti allra íslenskra
fiskiskipa.
Guðmundur hefur stýrt Vilhelm
Þorsteinssyni frá árinu 2001 og
verið starfsmaður Samherja frá
árinu 1986.
Auk þess hlaut Guðmundur
Þ. Jónsson, skipstjóri á Vilhelm
Þorsteinsyni EA, verðlaunin í
flokkunum Framúrskarandi skip-
stjóri. Við afhend inguna kom fram
að Guðmundur er einn af reyndustu
og farsælustu skipstjórum íslenska
flotans og skip undir hans stjórn
hafa árum saman skilað mestu
aflaverðmæti allra íslenskra
fiskiskipa.
Guðmundur hefur stýrt Vilhelm
Þorsteins syni frá árinu 2001 og
verið starfsmaður Samherja frá
árinu 1986. /VH
Mynd / Matís.
Útflutningsverðmæti þorsks frá
1981 til 2016 hefur stóraukist
Mynd / Skapti Hallgrímsson
Heyrnarlausir eldisfiskar
Nýleg rannsókn bendir til að fiskar
í eldi geti átt á hættu að missa heyrn
vegna aðstæðnanna sem þeir eru
aldir við.
Rannsókn á eyrum eldislaxa sem
gerð var í Ástralíu sýnir greinilega
afmyndun á kvörnum, sem getur
leitt til að heyrn fiskanna verður
minni og jafnvel að þeir verði með
öllu heyrnarlausir. Samanburður á
kvörnum villtra og eldislaxa sýna
að afmyndunin er mun algengari í
eldislaxi en villtu.
Afmyndun kvarnanna er tengd
vaxtarhraða laxanna og því hraðar
sem þeir vaxa því líklegra er að fisk-
arnir missi heyrn vegna hennar.
Vöxtur fiskeldis í heiminum er
gríðarlegur og sá hluti matvælafram-
leiðslu sem er í örustum vexti og hátt
í 50% af fiski á boðstólum kemur úr
eldi.
Í mörg horn er að líta þegar kemur
að velferð fiskanna, eldi í takmörkuðu
rými, sjúkdómar og lús eru vandamál
sem allir sem stunda fiskeldi kannast
við. Heyrnarleysi eldisfiska er aftur
á móti þáttur sem ekki hefur verið
rannsakaður mikið og nauðsynlegt
að gæta að honum í eldi. /VH