Bændablaðið - 05.10.2017, Side 51
51Bændablaðið | Fimmtudagur 5. október 2017
Grænt og vænt í eyðimörkinni
Í jórdönsku eyðimörkinni eru
nú gróðurhús á stærð við fjóra
fótboltavelli sem fyrirtækið Sahara
Forest Project stýrir. Þar áætla
þeir að framleiða um 10 þúsund
lítra af ferskvatni á hverjum degi
og uppskera um 130 þúsund kíló
af grænmeti á ári.
Verkefnið, sem Sahara Forest
Project, stýrir byrjaði sem tilrauna-
verkefni í Katar árið 2012. Hér er
grunnhugsunin einföld: Taktu eitt-
hvað sem er meira en nóg af eins og
eyðimörk og saltvatn og notaðu það
til að framleiða eitthvað sem er not
fyrir, eins og orku, mat og ferskvatn.
Hin stóru gróðurhús í eyðimörkinni
og reksturinn í kringum þau eru
drifin áfram af sólarorku og flutn-
ingur á saltvatni inn í eyðimörkina
er grundvöllur til þess að starfrækja
verkefnið.
Saltvatnið lykillinn að
framleiðslunni
Saltvatnið er notað til að nýta
sólarorkuna á sem árangursríkastan
hátt. Það er notað til að kæla niður
gróðurhúsin á þeim tímum sem er
mjög hátt hitastig utandyra og þá þarf
að vökva helmingi minna. Saltvatnið
nýtist einnig til að framleiða
ferskvatn fyrir vökvunarkerfin og
til drykkjarvatns og saltið sem verður
eftir er útbúið til notkunar. Fyrir utan
gróðurhúsin er ræktaður matur og
fóður með hjálp af sömu tækni fyrir
niðurkælingu og áveitur.
Reynsluverkefnið í Katar leiddi af
sér góðar niðurstöður með góðri upp-
skeru, umframorku og salt sem hægt
var að selja. Markmiðið er að koma
á fót fleiri sambærilegum verkefnum
á öðrum þurrum svæðum sem eru
ekki nýtt í dag og gera eyðimörkina
græna að nýju. Það er meðal annars
gert með nýja verkefninu í Jórdaníu.
Landgræðsla og uppgufunarstöð
Aðalskrifstofur Sahara Forest Project
eru í Noregi en utanríkisráðuneytið
þar í landi, loftslags- og
umhverfisráðuneytið og Yara styrkja
verkefnið ásamt fleiri erlendum
fjárfestum.
Þegar verkefnið var vígt kom
Hákon krónpins Noregs á staðinn
ásamt konungnum af Jórdaníu,
Abdullah II.
„Það er mjög áhrifamikið að sjá
að þeir ná að framleiða bæði mat,
drykkjarvatn og orku í þessu eyði-
merkurlandslagi. Þetta er svæði sem
áður var ekki nýtt til neins. Ef maður
hugsar um áhrif verkefnisins þá getur
það verið innlegg í baráttunni við
loftslagsbreytingarnar, það getur
búið til græna vinnustaði og leyst
mikilvægar áskoranir fyrir komandi
kynslóðir,“ sagði Hákon krónprins
við opnunina.
Reksturinn, sem var opnaður í
Aqaba í byrjun september, sam-
anstendur af tveimur gróðurhúsum
sem geta niðurkælt saltvatn, þar
eru landgræðslusvæði í kring og
uppgufunarstöð fyrir salt. Í verk-
efninu verða framleiddir 10 þúsund
lítrar af ferskvatni á hverjum degi
með notkun á sólarorku og áætl-
að er að hægt verði að framleiða
um 130 þúsund kíló af grænmeti
árlega. Einnig verður rannsóknar-
setur á svæðinu fyrir frekari þróun
á umhverfistækni.
/ehg – Det norske kongehuset
Svæðið í heild er á við fjóra knattspyrnuvelli að stærð.
Myndir / Anders Nybø og Sahara Forest Project
best að taka myndir af verkferlunum
og prenta svo út með skriflegum
leiðbeiningum með. Þetta gerir
lýsinguna á vinnunni við mjaltirnar
skýrari.
4. Umferð kúnna
Kúm á að líða vel þegar þær eru
mjólkaðar og þær eiga að geta treyst
því að þegar þær mjólkast þá geti
þær verið öruggar og afslappaðar
og á þetta að sjálfsögðu við um
allar gerðir mjaltatækni. Til þess að
ná þessari ró kúnna er mikilvægt
að öll ytri aðstaða sé í góðu lagi.
Þannig séu t.d. bæði inngangar
og útgangar frá mjaltaaðstöðunni
rúmgóðir, kúnum sé ekki ætlað að
ganga á hálu gólfi. Þeim sé ekki
ætlað að ganga um mishæðir eða
tröppur, göngusvæðin séu björt og
vel upplýst. Að það sé hljóðlátt við
mjaltirnar og að hróp og köll séu
ekki viðhöfð á mjaltasvæði. Að
þeim sé ekki ætlað að taka krappar
beygjur og ekki ganga um mörg ólík
hlið til þess að komast til eða frá
mjöltunum. Rólegar kýr selja betur
og bæta hagkvæmni mjaltanna
umfram hinar sem eru stressaðar
vegna illa hannaðs umhverfis.
Það getur verið góð aðferð að
bóndinn gangi sjálfur sömu leið og
hann ætlar kúm sínum að ganga til
og frá mjöltum. Skoðaðu leiðina
og settu þig í spor þunglamalegs
dýrs sem sér auk þess ekki sérlega
vel. Er eitthvað á leiðinni sem gæti
truflað ferðina og ef svo er, er hægt
að bæta úr?
5. Lykiltölur hagkvæmra mjalta
Síðast en ekki síst þarf hver kúabóndi
að meta eigin mjaltir og skoða eigin
gögn til þess að geta lært af eigin
reynslu og bætt hagkvæmnina.
Flest mjaltakerfi eru nú til dags
með einhverskonar tölvubúnað sem
geta gefið margskonar upplýsingar
um mjaltirnar.
Skrifaðu hjá þér nokkrar lykiltölur
þinna mjalta og settu á tússtöflu upp
á vegg.
Skoðaðu svo sömu tölur einu
sinni í viku og notaðu reynsluna til
þess að bæta árangur þinn og þinna
kúa. Þetta skiptir verulegu máli og
sér í lagi ef gerðar eru einhverjar
breytingar t.d. á tæknilegum
stillingum, skipt um spenagúmmí,
breytt einhverju í umhverfi kúnna
o.s.frv.
Eigi að meta raunveruleg áhrif
þess að gerðar séu breytingar, þá
þarf að hafa eitthvað viðmið til þess
að bera niðurstöðurnar við. Eins og
áður segir er ekki auðvelt að bera
saman tölur á milli búa þar sem
breytileikinn er svo mikill og þess
vegna er best að skoða eigin tölur.
Framansögðu til viðbótar má
benda á greinina „Aukin afköst
við mjaltir“ sem birtist í 4. tbl.
Bændablaðsins á þessu ári en í
þeirri grein er einnig bent á ýmsar
leiðir til þess að auka hagkvæmni
mjaltanna.
Snorri Sigurðsson
sns@seges.dk
-
kvæmnina.