Bændablaðið - 05.10.2017, Page 62
62 Bændablaðið | Fimmtudagur 5. október 2017
TIL SÖLU
Hilltip Spraystriker
Pækildreifarar frá Hilltip 500–
2000 lítrar, hámarks dreifibreidd
5 metrar. Fyrir pallbíla og minni
vörubíla. Rafdrifin 12V.
Hilltip Snowstriker SP
Snjótennur fyrir pallbíla, minni
vörubíla og jeppa. Fáanlegar í
165 cm–240 cm breidd.
Hilltip Snowstriker VP
Fjölplógur fyrir pallbíla, minni
vörubíla og jeppa . Fáanlegir í
185 cm–240 cm breidd.
Hilltip Snowstriker SML
Snjótennur fyrir minni vörubíla
ca. 7,5 tonn. Fáanlegar í
260 cm–300 cm breidd.
Hilltip Sweepaway
Sópur fyrir gröfur, lyftara og
dráttavélar. Fáanlegir í breidd-
um 1,5 m–4,0 m.
A Wendel ehf.
Tangarhöfða 1, 110 Reykjavík,
S: 551 5464 - wendel@wendel.is
www.wendel.is
Hilltip Icestriker
Salt og sanddreifarari í þremur
stærðum, fyrir pallbíla sem og
minni vörubíla. Rafdrifin 12V.
Auglýsinga- og
áskriftarsími
Bændablaðsins
er 563-0303
Jón Gunnarsson samgöngu-
ráðherra sagði frá því á
Samgönguþingi 2017 sem haldið
var á Hótel Örk í Hveragerði 28.
september að ríkið stefndi að
því að Vestmannaeyjabær tæki
við rekstri Herjólfs.
„Það er miklu nær að
heimamenn sjái um rekstur
skipsins enda er það vilji þeirra,“
sagði ráðherrann. Þá sagðist
hann vilja sjá að þegar ný ferja
kæmi til landsins í byrjun sumars
2018 þá færi gamli Herjólfur til
Slysavarnafélagsskóla Íslands,
enda væri núverandi skip skólans
komið til ára sinna. Herjólfur yrði
hins vegar líka varaskip fyrir nýju
ferjuna sem siglir á milli lands og
Eyja. /MHH
Vestmannaeyingar
taki við rekstri Herjólfs
Jón Gunnarsson í ræðustól á Sam-
gönguþinginu í Hveragerði. Mynd /
MHH
Skógar, Stóri Moshvoll og Ásólfsskáli fengu umhverfisverðlaun Rangárþings eystra 2017
Umhverfisverðlaun Rangárþings
eystra 2017 voru afhent á
Kjötsúpuhátíðinni á Hvolsvelli
laugardaginn 23. ágúst.
Veitt eru verðlaun í þremur
flokkum og það er umhverfis-
og náttúruverndarnefnd
sveitarfélagsins sem stendur fyrir
valinu.
Snyrtilegasti garður sveitar-
félagsins er garðurinn við Stóra
Moshvol en þar hafa þau hjón,
Ágúst Ólafsson og Sigríður
Guðmundsdóttir, ræktað garðinn
sinn af stakri prýði síðustu áratugi.
Snyrtilegasta býlið er Ásólfsskáli
en þar eru ábúendur annars vegar
Katrín Birna Viðarsdóttir og
Sigurður Grétar Ottósson og hins
vegar Viðar Bjarnason og Þorgerður
J. Guðmundsdóttir. Allt umhverfi
kringum býlið er einstaklega vel hirt
og til mikils sóma. Viðar Bjarnason
tók einnig við verðlaunum fyrir
snyrtilegasta þjónustufyrirtækið í
sveitarfélaginu en í ár var Skógasafn
fyrir valinu. Búið er að vinna hörðum
höndum að breytingum á ásýnd og
aðkomu við safnið og safnið því
vel að verðlaununum komið. /MHH
frá Ásólfsskála. Mynd / MHH
Bæjarráð Dalvíkurbyggðar
hefur tekið jákvætt í erindi frá
Gangnamannafélagi Sveins-
staðaafréttar, sem fyrr á þessu
ári óskaði eftir viðræðum við
ráðið um framtíð Stekkjarhúss,
en félagið hefur hug á að bæta við-
byggingu við húsið vegna mikillar
notkunar þess. Erindinu var vísað
til gerðar fjárhagsáætlunar árin
2018 og 2019-2021.
Gerður var samningur árið 2011
á milli Gangnamannafélagsins og
sveitarfélagsins þess efnis að félagið
sæi um viðhald og rekstur hússins
og hefur því verið sinnt af félags-
mönnum.
Með auknum fjölda ferðamanna
undanfarin ár, og þá sérstaklega
göngu- og fjallafólks, hefur notkun
á húsinu aukist. Hugmynd félagsins
er að reist verði viðbygging við
norðvestur hlið hússins. Gerð
hefur verið efniskostnaðaráætlun
sem hljóðar upp á um 2,2 milljónir
króna.
Hugmynd félagsins er að
sveitarfélagið leggi til 50%
af efniskostnaði og Gangna-
mannafélagið greiði hin 50%
og að auki munu félagsmenn
Gangnamannafélagsins leggja til alla
vinnu, verkfæri og önnur tæki sem
til þarf við framkvæmdina. /MÞÞ
Gangnamannafélag Sveins staðaafréttar:
Hugmyndir um að byggja
við Stekkjarhús
Samkvæmt fjárlagafrumvarpi
næsta árs er gert ráð fyrir
tæplega 38% niðurskurði
á fjárveitingum ríkisins til
Náttúrustofu Norðausturlands.
Starfsemi Náttúrustofunnar
hefur verið burðarstólpi í náttúru-
farsrannsóknum í Þingeyjarsýslum
í heild sinni, en á meðal ver-
kefna hafa verið rannsóknir á
lífríki Mývatns. Sveitarstjórn
Skútustaðahrepps hefur mótmælt
fyrirhuguðum niðurskurði og segir
hann koma án nokkurs fyrirvara
eða samráðs við Náttúrustofuna
eða sveitarfélögin Skútustaðahrepp
og Norðurþing sem reka
Náttúrustofuna í samstarfi við ríkið
skv. lögum nr. 60/1992.
Sveitarstjórn Skútustaðahrepps
mótmælir einnig harðlega
vinnubrögðum sem setja starfsemi
Náttúrustofu Norðausturlands
í uppnám en þar starfa nú fimm
manns. Það samræmist ekki gildandi
samningi milli umhverfis- og
auðlindaráðuneytisins og Náttúru-
stofunnar um vöktunarrannsóknir
í Þingeyjarsýslum sem á uppruna
sinn í sértækum aðgerðum
forsætisráðuneytisins árið 2008
til að efla byggð og samfélag á
Norðurlandi eystra. „Ef ekkert
verður að gert við að leiðrétta fram
komna tillögu blasa við uppsagnir
starfsfólks og faglegt starf
stofunnar sett í algjört uppnám,“
segir í bókun sveitarstjórnar
Skútustaðahrepps vegna málsins.
/MÞÞ
Niðurskurði til Náttúrustofu Norðausturlands mótmælt
Framkvæmdir hafnar við nýjan 7,5 kílómetra langan göngu- og hjólreiðastíg á Akureyri:
Framlag til útivistar og mikið öryggisatriði
Framkvæmdir eru hafnar við
nýjan göngu- og hjólreiðastíg
sem tengir Hrafnagilshverfi í
Eyjafjarðarsveit og Akureyri.
Fyrsta skóflustungan var tekin í
tilefni af 500. fundi sveitarstjórn-
ar Eyjafjarðarsveitar nú nýverið.
Fundurinn var haldinn úti undir
beru lofti að viðstöddum fulltrú-
um Vegagerðarinnar, hjólreiða-
mönnum og öðrum gestum. Jón
Gunnarsson samgönguráðherra
tók fyrstu skóflustunguna.
Stígurinn, ásamt ljósleiðara-
tengingu allra heimila í sveitarfé-
laginu, er eitt stærsta framkvæmda-
verkefni Eyjafjarðarsveitar á kjör-
tímabilinu en sveitarfélagið stend-
ur að framkvæmdinni við stíginn
ásamt Vegagerðinni.
Fullbúinn stígur
í sumarbyrjun 2018
Stígurinn er um 7,5 kílómetra langur
og liggur meðfram Eyjafjarðarbraut
vestari frá Hrafnagilshverfi að bæj-
armörkum Akureyrar. Stígurinn
verður 4,5 metra breiður og þar af
verða 2,5 metrar klæddir slitlagi.
Verkið verður unnið í tveimur
áföngum, þ.e. undirbygging og
fleiri verkþættir í fyrri áfanga sem
áætlað er að verði lokið fyrir jól. Sá
verkhluti var boðinn út fyrr í sumar
og átti Finnur ehf. lægsta tilboð,
81,5 milljónir króna. Síðari áfangi
verksins er slitlagslögnin og verð-
ur hún boðin út síðla næsta vetrar.
Gert er ráð fyrir að stígurinn verði
fullbúinn í sumarbyrjun 2018.
Öryggisatriði og framlag til
bættrar lýðheilsu
Jón Stefánsson, oddviti sveitar-
stjórnar, sagði framkvæmdina í
senn framlag til útivistar almenn-
ings og mikið öryggisatriði. Umferð
gangandi, hlaupandi og hjólandi
vegfarenda á veginum milli
Hrafnagilshverfis og Akureyrar sé
mikil og nauðsynlegt að aðskilja
hana með þessum hætti. Fram kom í
máli hans að framan af undirbúningi
var Akureyrarbær einnig þátttak-
andi í verkefninu en tók ákvörðun
á síðari stigum um að draga sig
út úr því. Jón þakkaði sérstaklega
landeigendum á vegstæðinu, en gott
samstarf við þá og velvilji hefur
reynst mikilvægur fyrir framvindu
verkefnisins.
Hreinn Haraldsson vegamála-
stjóri sagði í ávarpi við þetta tæki-
færi að rekja megi aðdraganda
þessarar framkvæmdar til þeirr-
ar lagabreytingar sem gerð var
fyrir 10 árum þegar Vegagerðinni
var heimilað að taka þátt í gerð
göngu- og hjólastíga í samráði við
sveitarfélögin. „Fram að því höfðu
slík verkefni verið alfarið á borði
sveitarfélaganna en það var ekki
síst með tilliti til umferðaröryggis-
ins og aukinnar áherslu á þann þátt
sem við unnum að því að fá þetta
inn í lög,“ sagði Hreinn en fram til
þessa hafa flest slík verkefni verið á
suðvesturhorni landsins. Fyrstu tvö
stígaverkefnin utan höfuðborgar-
svæðisins líta dagsins ljós í ár og
er stígurinn í Eyjafjarðarsveit það
stærsta.
Verkefnið til fyrirmyndar
Jón Gunnarsson samgöngu ráðherra
sagði til fyrirmyndar hversu ötul-
lega sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar
hafi unnið að framgangi verkefnis-
ins. „Sú leið sem við erum að fara,
sem er ekki alveg óþekkt, þ.e. að
til verður samstarfsverkefni þar
sem allir leggjast á eitt um að bæta
lífsgæði fólks, er til fyrirmyndar og
eitthvað sem við viljum sjá gerast
í ríkara mæli. Svona verkefni er,
þegar upp er staðið, mikilvægt til
að ýta undir bylgju breytts lífsstíls
og alls þess jákvæða sem fylgir því
að greiða fyrir almenningssam-
göngum og að hjólið og gangan
verði raunhæfur samgöngumáti.
Það skilar sér að lokum til okkar
í bættri lýðheilsu. Þannig verður
samfélagslegur ávinningur að svona
framkvæmdum umfram það sem
við höfum almennt lagt mat á í sam-
göngumálum til þessa,“ sagði Jón
Gunnarsson samgönguráðherra.
/MÞÞ