Bændablaðið - 07.11.2019, Page 8

Bændablaðið - 07.11.2019, Page 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. nóvember 20198 FRÉTTIR Ný rannsókn fjölþjóðateymis vísindamanna á vegum Tækniháskólans í München: Fækkun skordýra er miklu alvarlegri en talið var – Um þriðjungs fækkun á einum áratug og allt að 70% fækkun sumra tegunda – Gæti haft alvarlegar afleiðingar fyrir landbúnað Í nýrri rannsókn sem unnin var af fjölþjóðlegu teymi vísinda- manna undir forystu sérfræðinga Tækniháskólans í München í Þýskalandi kemur fram grafalvar- leg staða skordýrastofna. Hefur skordýrum á mörgum svæðum fækkað um þriðjung og sums stað- ar um allt að 70% á aðeins einum áratug. Þessi þróun hefur sérstaklega átt sér stað á ræktuðu landi, en einnig er mikil fækkun í skógum og á náttúru- verndarsvæðum. Orsakir hnignunar skordýra er einsleitni í ræktun og minnkandi fjölbreytileiki plöntu- tegunda sem er að finna á ræktarlandi í skógrækt og á náttúruverndarsvæð- um. Hrun í fuglastofnum Virðist þetta stemma vel við fréttir á síðasta ári af hruni í fuglastofnum sem talið er afleiðing af notkun eiturefna í landbúnaði (pesticide). Í Frakklandi einu hafa verið notuð, samkvæmt frétt Euro News, um 75 þúsund tonn á ári af gróðureyðingarefnum, sveppaeitri, skordýraeitri og fleiri efnum árlega undanfarin ár. Notkunin hefur verið um 60.000 tonn á Ítalíu og unm 40.000 tonn í Þýskalandi. Mest hefur verið notað á Spáni, eða nær 80.000 tonn. Þegar skordýrin hverfa hverfur um leið fæða fjölmargra fuglategunda. Í mars í fyrra voru m.a. fréttir í erlendum fjölmiðlum af hruni fuglastofna í Frakklandi. Þar var vitnað í fjölda rannsókna sem sýndu þriðjungs fækkun fugla á 15 árum og allt að 70–75% fækkun sumra fugla- tegunda. Einnig var þar talað um allt að 76% fækkun fljúgandi skordýra á 27 ára tímabili í Þýskalandi. Þetta snýst þó ekki bara um skor- dýr og fugla. Nær óhjákvæmileg afleiðing þessarar þróunar hlýtur að verða sú að ræktun nytjajurta verður erfiðari sökum þess að það vantar m.a. býflugur til að frjóvga plönturnar. Það mun síðan að öllum líkindum valda keðjuverkun í ávaxta- rækt, grænmetis-, kjöt-, mjólkur- og allri annarri landbúnaðarframleiðslu. Mikil fækkun skordýra á síðustu 25 árum Ýmsar rannsóknir hafa áður sýnt að mun færri tegundir skordýra er að finna á þýskum engjum en fyrir 25 árum. Fyrri rannsóknir beindust þó nær eingöngu að lífmassa, þ.e. heildarþyngd allra skordýra, fremur en einstakra skordýrategunda. Vistfræðingurinn dr. Sebastian Seibold segir að mönnum hafi ekki verið eins ljóst hingað til hversu stóru hlutverki skordýrin gegna í náttúr- unni. Í viðamiklum rannsóknum á líffræðilegum fjölbreytileika kann- aði fjölþjóðlegt rannsóknarteymið fjölda skordýrahópa í Brandenburg, Thuringia og Baden-Württemberg á tímabilinu 2008 til 2017. Nú hefur teymið birt greiningu sína í vísinda- tímaritinu „Nature“. Verkefnið var fjármagnað af þýska rannsóknar- sjóðnum DFG. Skordýr hafa áhrif bæði í graslendi og skóga Vísindamennirnir söfnuðu meira en einni milljón skordýra á 300 stöðum. Þeir gátu sannað að mörgum af tæp- lega 2.700 tegundum sem rannsak- aðar voru fer hnignandi. Á sumum þeirra svæða sem rannsökuð voru er ekki lengur að finna sjaldgæfar tegundir skordýra. Bæði á skóg- ræktarsvæðum og á graslendi töldu vísindamennirnir að um þriðjungi (um 33%) færri skordýrategundir sé að finna en þar voru fyrir tíu árum. „Fyrir rannsókn okkar var mjög óljóst hvort og að hve miklu leyti skógar hefðu orðið fyrir áhrifum af skordýraeyðingu,“ sagði Seibold. Frá 2008 mældu þeir um 40 pró- senta samdrátt í lífmassa skordýra í skógum sem þeir rannsökuðu. Á graslendi voru niðurstöðurnar enn skelfilegri. Í lok rannsóknartímabils- ins hafði lífmassi skordýra minnkað niður í aðeins þriðjung af því sem áður var, sem þýðir um 70% fækkun. Kom fullkomlega á óvart „Samdráttur af þessari stærðargráðu á aðeins 10 ára tímabili kom okkur fullkomlega á óvart. – „Þetta er ógnvekjandi, en passar við þá mynd sem komið hefur fram í sífellt fleiri rannsóknum,“ segir Wolfgang Weisser, prófessor í vistfræði við Tækniháskólann í München, en hann er einn af frumkvöðlunum í þessu samstarfsverkefni. Afgerandi þáttur í nánasta umhverfi Áhrif eru mikil á allar tegundir skógar- og graslendis sem hópur- inn rannsakaði. Þar var skoðað land sem nýtt er til sauðfjárbeitar. Engi og akrar sem sáð er í og slegin eru og borið á þrisvar til fjórum sinnum á ári. Skógrækt þar sem lögð er áhersla á ræktun barrskóga og jafn- vel ónýttir skógar á verndarsvæðum. Vísindamennirnir greindu mesta tjónið í graslendi umhverfis stór landbúnaðarsvæði. Þar voru áhrifin mest á tegundir skordýra sem ekki geta ferðast um langan veg. Í skógunum var skaðinn aftur á móti mestur í þeim hópi skordýra sem ferðast að jafnaði um langan veg. Þar er það spurningin um hvort skordýrum sem ferðast um langan veg sé hættara við áföllum þegar þau fara yfir ræktarsvæði. Komið hefur fram á liðnum árum að mikil notkun skordýraeiturs og gróðureyðingar- efna við ræktun korns og annarra nytjajurta hafi haft alvarleg áhrif á býflugnastofna. Afar líklegt hlýtur því að teljast að aðrir skordýrastofnar verði líka fyrir barðinu á því. Telur dr. Martin Gossner að það þurfi að rannsaka betur hvort þetta sé tilfellið, eða hvort lífskjör í skógunum hafi versnað svo mjög að að þau hafi valdið stórkostlegri fækkun skordýra. Samhæfðar aðgerðir nauðsynlegar Viðbrögðin til að takast á við skor- dýramissi hafa einskorðast allt of mikið við aðgerðir á afmörkuðum svæðum án tillits til heildarinnar, að mati dr. Seibold. „Til að takast á við þetta og stöðva fækkunina, þá benda niður- stöður okkar til að þörf sé á meiri samhæfingu aðgerða, bæði svæðis- bundnum og á landsvísu.“ Ofan á þetta getur magnfram- leiðsla í landbúnaði eins og stunduð er í Evrópu og víðar um heim líka haft neikvæðar afleiðingar. Í rann- sókn sem líffræðirannsóknarstofn- unin Jena gerði á heimsvísu á tímabilinu 2002 til 2017 kom í ljós að fækkun tegunda í gróðri getur eyðilagt heilu lífkerfin. Þannig getur mjög ákveðin einræktun tegunda á endanum leitt til þess að uppskeran hrynur saman vegna niðurbrots líf- kerfa í jarðvegi. /HKr. Skordýrum fækkar með ógnarhraða í Þýskalandi, Frakklandi og víðar um Evrópu. Mynd / Dr. Stefan Seibold Bændur að störfum í Þýskalandi. Mynd / Jörg Hailer, Universität Ulm Úttekt Umhverfisstofnunar á tollafgreiðslu plöntuverndarvara fyrir árið 2018: Heildarinnflutningur á illgresiseyðum eykst en magn virkra efna dregst saman Umhverfisstofnun lauk nýverið úttekt á tollafgreiðslu plöntu- verndarvara fyrir árið 2018 með hliðsjón af gögnum frá Tollstjóra og upplýsingum frá fyrirtækjum sem setja vörurnar á markað. Heildarmagnið eykst en magn virkra efna dregst saman. Vöruflokkar sem falla undir plöntuverndarvörur eru illgresiseyð- ar, sveppaeyðar, skordýraeyðar og stýriefni til notkunar í landbúnaði og garðyrkju og af þeim hafa illgres- iseyðar verið með mesta markaðs- hlutdeild, um eða yfir 80%. Á heimasíðu stofnunarinnar segir að niðurstöður úttektarinnar sýna að innflutningur plöntuverndarvara nam 18 tonnum á árinu 2018 og jókst því umtalsvert frá fyrra ári, eða um 56%. Umhverfisstofnun hefur tekið saman gögn um innflutning plöntu- verndarvara allt frá árinu 2009 og á þeim tíma hefur þróunin verið í þá átt að innflutningur á þess- um vörum hefur dregist saman. Innflutningurinn sveiflast þó talsvert mikið á milli ára og topparnir koma fram þegar verið er að flytja inn birgðir af algengum plöntuverndar- vörum sem duga í nokkur ár og getur það hafa átt við árið 2018. Innflutningur á virkum efnum dregst saman Plöntuverndarvörur geta haft neikvæð áhrif á heilsu og umhverfi og þegar reynt er að meta álagið af þeirra völdum gefur magn virkra efna mun betri vísbendingar um raun- verulegt álag heldur en heildar- magnið sem sett er á markað. Þar sem styrkur virku efnanna í plöntu- verndarvörum liggur alltaf fyrir er hægt að reikna út frá heildar- magninu af vörum hve mikið af virkum efnum er sett á markað hverju sinni. Sé þetta gert fyrir árið 2018 kemur í ljós að innflutningur á plöntuverndarvörum, mældur í magni af virkum efnum, dróst saman frá fyrra ári, þrátt fyrir að heildar- magnið hafi aukist. Það skýrist af því hversu mikið var flutt inn af vörum á árinu sem inni- héldu lágan styrk af virkum efnum, en þar var einkum um að ræða illgresiseyða sem innihalda glýfosat. Þannig má segja að álagið gagnvart heilsu og umhverfi hafi í raun minnkað þótt heildarmagnið sem sett var á markað hafi aukist. Illgresiseyðar mest notaðir Illgresiseyðar er sá flokkur plöntu- verndarvara sem langmest er not- aður hér á landi og flestir innihalda þeir virka efnið glýfosat. Notkun fellur til í ýmiss konar ræktun svo sem í einka- og almenningsgörðum, á grænum svæðum á vegum sveitar- félaga, á íþróttavöllum og í sumar- bústaðalöndum. Þá er mikið notað af þeim á ógrónum svæðum þar sem ekki er ætlast til að gróður sé til staðar eins og á iðnaðarsvæðum, við vegi, í innkeyrslum, á stígum og víðar. Helstu notendur eru al- menningur, fyrirtæki, sveitarfélög og opinberar stofnarnir. Rétt er að benda á að notkun á glýfosati virðist vera lítil sem engin í framleiðslu á matvælum og fóðri hérlendis. /VH Illgresiseyðar er sá flokkur plöntuverndarvara sem langmest er notaður hér á landi og flestir innihalda þeir virka efnið glýfosat.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.