Bændablaðið - 07.11.2019, Blaðsíða 17
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. nóvember 2019 17
Arctic Trucks Ísland ehf.
Kletthálsi 3
110 Reykjavík
Sími 540 4900
Netfang info@arctictrucks.is
Vefur www.arctictrucks.is
JEPPADEKK.IS
Vönduð amerísk jeppadekk sem
henta frábærlega fyrir íslenskar
aðstæður. Stærðir 29”-44”.
38” radíaldekk
sem hefur
margsannað
sig á hálendi
Íslands.
44” radíal.
Hannað í
samstarfi
Arctic Trucks
og Nokian.
35” radíal.
Frábært
neglt
vetrardekk!
kr. 39.900,- kr. 39.900,- kr. 49.900,- kr. 49.900,- kr. 49.900,-
FELGUR
Gott úrval
Margar stærðir
Hampiðjutorgið,
Heiðardalurinn og Teppið
Við endum yfirferðina um fiskimiðin
með því að fara vestur fyrir land.
Þar og úti af Vestfjörðum eru mörg
skemmtileg örnefni.
Hampiðjutorgið er nokkuð stórt
svæði sem liggur utan í landgrunns
hallanum vestur af landinu. Það
er um 70 til 100 mílur vestur af
Látrabjargi, um 50 mílna langt og
ekki ýkja breitt en dýpkar mikið
þegar utar dregur. Erlendir togarar
veiddu grálúðu og karfa á þessu
svæði allt þar til landhelgin var
færð út í 200 mílur. Þarna eru mikil
grálúðumið en Íslendingar hófu
veiðar þar á seinni hluta áttunda
áratugarins. Þetta svæði var nefnt
Hampiðjutorgið, gjarnan stytt í
Torgið. Einnig var það kallað Torg
hins himneska friðar.
Fyrst þegar menn hófu veiðar á
Torginu var ekki búið að kortleggja
festur. Þá var trollið allt í druslum
í öðru hverju holi og menn stóðu
tímunum saman í saumaskap. Menn
höfðu á orði að enginn græddi
á þessum veiðum nema veiðar
færaframleiðandinn Hampiðjan! Ef
menn komust áfram án festu veiddist
vel og þá stóðu þeir upp fyrir haus í
lúðu. Þetta var því einnig kallað Torg
hins himneska friðar í háði því þarna
var aldrei neinn friður.
Heiðardalurinn og Teppið eru
grálúðumið sem fengu nafn eftir
1980. Norðaustur af Hala, vel
þekkt fiskimið úti af Vestfjörðum,
og í beinu framhaldi af honum er
Heiðardalurinn. Þegar menn voru
búnir að standa í öllu þessu rifr
ildi á Torginu kunnu þeir sér ekki
læti þegar þeir komu á þetta svæði.
Þeir gátu togað tímunum saman án
þess að nokkuð rifnaði. Þetta var
eins og þeir væru komnir heim í
heiðardalinn.
Í framhaldi af Heiðardalnum,
djúpt úti af Hornströndum, er Teppið.
Þar er sléttur sandbotn og unnt að
toga 10–12 tíma samfleytt. Botninn
þarna er eins og flauelsmjúkt teppi.
Hver var Agata?
Agata er þekkt nafn á steinbíts
og karfableyðu rúmlega 50 mílur
vestur af Látrabjargi. Ýmsar útgáfur
eru til af sögunni á bak við nafnið.
Ein þeirra er sú að þetta hafi verið
gleðikona í Hamborg sem íslenskir
sjómenn voru sagðir hafa heimsótt.
Því fer fjarri að sú skýring sé rétt,
þvert á móti.
Árið 1974 voru fjórir skuttogar
ar afhentir sem smíðaðir voru fyrir
Íslendinga í Gdynia í Póllandi.
Skipstjórarnir sem sóttu skipin
og höfðu eftirlit með smíði þeirra
dvöldu hjá fyrrum verkstjóra í skipa
smíðastöðinni.
Á heimilinu bjó ung dóttir verk
stjórans sem hét Agata. Hún var
sérstaklega hæglát og háttprúð
og hvers manns hugljúfi, að sögn
skipstjóranna. Skömmu eftir að
skipin voru afhent var einn skip
stjórinn að þvælast djúpt vestur af
Látrabjargi og fann þá þúfu sem gaf
góða veiði. Hann tjáði greinarhöf
undi að honum hefði dottið í hug
að skíra svæðið Agata til heiðurs
stúlkunni prúðu.
Þetta segir okkur að þegar menn
þekkja ekki réttu skýringarnar á bak
við örnefni reyna þeir fljótt að geta
í eyðurnar. Það leiðir hugann að
því hvort sögur sem fylgja mörgum
örnefnum hér á landi séu sannar eða
hreinn skáldskapur.
- Vörubílar
- Rútur
- Vinnuvélar
Íslensk framleiðsla
á Bílskúrs- og Iðnaðarhurðum
564-0013 | 865-1237
RAFÓS
rafverktakar
e
h
f
Tökum að okkur öll verkefni sem við kemur raflögnum,
hvort sem er viðhald, viðbætur eða nýlagnir fyrir
fyrirtæki, iðnað eða almennan notanda.
Rafós er löggiltur rafverktaki með reynslu í óháðri
ráðgjöf og uppsetningu hleðslustöðva. Setjum upp allar
gerðir hleðslustöðva fyrir einstaklinga, sameignir og
fyrirtæki.
Ef búnaður er ekki fyrir hendi, þá veitum við ráðgjöf við
val á búnaði miðað við þarfir.
RAFÓS
rafverktakar
e
h
f
Freyjunesi 10, 603 Akureyri
Sími: 777 1802
Email: rafos@rafos.is
Erum einnig á facebook
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300