Bændablaðið - 07.11.2019, Side 28

Bændablaðið - 07.11.2019, Side 28
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. nóvember 201928 Á vordögum 2019 birtust nokkr­ ar greinar í Bændablaðinu [8., 9., 10. og 12. tbl. 2019] um regluverk og ríkisafskipti af heimaslátrun. Í kjölfarið komst á samband með höfundum þessarar greinar og er rétt að kynna Selmu Bjarnadóttur fyrir lesendum Bændablaðsins. Selma er bóndi í Bandaríkjunum sem slátrar heima. Hún er fædd og uppalin á Íslandi en fluttist vestur um haf árið 1987 þegar hún fór í háskóla. Eftir að hafa lokið háskóla flutti hún til baka til Íslands, en vesturströnd Banda­ ríkjanna togaði og hún settist þar að 1996, fyrst í Olympia, höfuð­ borg Washingtonríkis, en síðar á Bone Dry Ridge Farm, þar nærri. Með brennandi áhuga á búskap og menningu tengt sauðfé að leiðarljósi, ákvað hún að koma sér upp bústofni íslensks fjár. Leit á netinu skilaði sambandi við konu sem átti íslenskan fjárstofn og þar með gat Selma gengið til gegninga sem „íslenskur sauð- fjárbóndi“ í Ameríku. Lömbum úr bústofni hennar er slátrað heima á býli Selmu. Skilur það eftir sig góðan arð og styður ýmiss konar smáiðnað í nágrenninu, allt innan ramma þeirrar löggjafar sem um landbúnað gildir í Washington-ríki Bandaríkjanna. Selma er svína- og nautgripa- bóndi, auk þess að vera sauðfjár- bóndi. Hún selur afurðir sínar beint til neytenda og hefur fengið til liðs við sig slátrara og kjötiðnaðarmann, sem fá starfsleyfi hjá Washington State Department of Agriculture, sem líta má á sem ákveðna hlið- stæðu heilbrigðiseftirlits sveitarfé- laga á Íslandi. Starfsleyfin er einfalt að fá og er ekki þörf á því að fá dýralækni til eftirlits við slátrun, sem fram fer heima hjá Selmu. Eftir að hafa greitt fyrir slátrunina og vinnsluna heldur Selma eftir um 45 þúsund krónum fyrir sig (með- alfallþungi árið 2019 var 19 kg). Á bandarískum neytendamark- aði hefur verið aukin eftirspurn eftir landbúnaðarvörum með jákvæða ímynd, t.d. tengt dýra- velferð, umhverfismálum og upp- runa. Selma hefur nýtt sér þessa þróun og miðar sína verðlagningu við Whole Foods Market verslan- irnar, sem á margan hátt hafa verið leiðandi varðandi þróunina og fært út kvíarnar samhliða því. Selma selur lambakjöt beint til neytenda í heilum skrokkum, unnið í neyt- endapakkningar, fyrir 12 dollara pundið (ríflega 3.000 krónur á kg). Regluverk er umtalsvert ein fald ara en íslenskir bændur eiga að venjast og skilningur eftirlitsaðila á aðstæðum minni bænda góður. Þannig er t.d. ekki MATVÆLAFRAMLEIÐSLA&MARKAÐSMÁL Lögleg heimaslátrun styður bændur í Bandaríkjunum Selma og aðrir bændur í nágrenni við hana geta valið úr nokkrum teymum slátrara til að slátra fyrir sig og jafnframt ýmsa kjötiðnaðarmenn. Hér er hún með kjötiðnaðarmönnunum úr Salmon Creek Meats (Joe og tengdasonur hans, Derek). Fyrir slátrun eru lömbin dregin í dilka. Það tekur svo slátrarann Jessie einungis nokkrar sekúndur að slátra 15 lömbum, sem er hefðbundinn fjöldi sem slátrað er í einu. Lömbin standa yfirleitt róleg á meðan. Eftir að lömbunum hefur verið slátrað eru þau skorin á háls, svo kjötið blæði vel. Jessie hefur slátrað með foreldrum sínum síðan hann var 12 ára. Slátrararnir ganga hreint til verks og eru engin lömb að leika sér við. Þeir hafa komið sér upp góðri aðstöðu til fláningar og frágangs á skrokkunum á pallbíl.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.