Bændablaðið - 07.11.2019, Qupperneq 43

Bændablaðið - 07.11.2019, Qupperneq 43
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. nóvember 2019 43 e.t.v. er auðveldara að bera saman t.d. niðurstöður fyrir kýr með að jafnaði 50.000 í frumutölu/ml og hins vegar kýr sem eru að jafnaði með 250.000 frumur/ml. slíkt dæmi er hér í töflu 2. Hér má lesa út úr töflu 2 að hinar frumuháu kýr mjólka að jafnaði um 1,6 kg minna en kýrnar sem eru frumulágar. Á móti kemur að hinar frumuhærri éta heldur minna af þurrefni líka eða sem nemur 0,3 kg minna en þrátt fyrir að éta örlítið minna, en kýr með heilbrigt júgur, vegur það ekki upp framleiðslumuninn enda þegar framleiðslan er reiknuð yfir á fóðrið þá framleiða hinar frumuháu kýr 0,04 kg minna af mjólk af hverju kílói fóðurþurrefnis og 0,04 kg minna af orkuleiðréttri mjólk af hverju kílói fóðurþurrefnis. Rétt er að minna hér á að um nyt­ hátt erlent kúakyn er hér að ræða, en fátt ef nokkuð bendir til annars en að sambærileg áhrif ættu að eiga við um íslenskar kýr einnig. Dýrar kýr í rekstri Í rannsókninni voru auðvitað notaðar bandarískar forsendur við útreikn­ inga á kostnaðar­ og tekjuliðum. Miðað var við afurðastöðvaverð upp á 42,6 krónur (0,34 dollara) og fóðrunarkostnað upp á 32,5 krónur (0,26 dollara) á hvert kg. fóðurþurrefnis. Út frá þessum forsend um sýndu niðurstöðurnar að það kostar að jafnaði 21,3 krónum meira að fóðra frumuháar kýr á degi hverjum í samanburði við frum lágar kýr eða u.þ.b. 6.500 krónum meira á hefðbundnu mjaltaskeiði. Til við­ bótar þessum mun koma auðvitað útgjöld tengd hárri frumu tölu eins og tapað gæðaálag á mjólk, kostnaður við meðhöndlun sýnilegrar júgur­ bólgu o.s.frv. Í þessu dæmi eru grunn forsendur við útreikninga afar lágar í samanburði við íslenskar aðstæður og mætti ætla að hér á landi myndi því vera mun óhagkvæmara að vera með frumuháar kýr. Líka meira metan Vísindafólkið skoðaði einnig umhverfis áhrif framleiðslunnar við mismunandi fóðurnýtingu og kom í ljós að hinar frumuháu kýr losa mun meira af metani en hinar frumulægri og umreiknað á hvert framleitt kíló orkuleiðréttrar mjólkur þá skila hinar frumuháu frá sér 2,8% meira af metani. Skýringin á þessum mun felst einfaldlega í því að kýr með lægri frumutölu þurfa einfaldlega að éta minna magn af fóðri til að framleiða sína mjólk og fyrir vikið ropa þær minna en hinar frumuhærri. Sé munurinn reiknaður yfir á ársgrunn munar 4,4 kílóum á ári á þessum kúm, við sama mjólkurmagn. Kostar að virkja mótstöðukerfið Þegar frumutalan hækkar bendir það til sýkingar í júgurvefnum og þegar svo verður dregur bæði úr mjólkurframleiðslunni og oftast dregur einnig úr áti kúnna. Þess utan þarf mótstöðukerfi kúnna að taka til verka og það kostar kúna orku sem þá fer ekki á sama tíma til mjólkurframleiðslunnar. Í rannsókninni kom í ljós að það reyndist vera töluverður munur á þessum samspilsáhrifum eftir því hvernig sýking í júgurvef á sér stað. Fyrirbyggjandi aðgerðir Vísindafólkið ályktar í niðurstöðum sínum að vegna slakari fóður­ nýtingar, stærra sótspori, minni mjólkur framleiðslu og meiri óhag­ kvæmni kúa með háa frumutölu auk meðhöndlunarkostnaðar, þá sé full ástæða fyrir kúabændur að vinna að forvörnum þegar kemur að júgurheilbrigði auk þess að fylgjast þurfi vel með bæði sýnilegri og duldri júgurbólgu nú sem fyrr. Heimild: J. Dairy Sci. 101:9510-9515 Þegar velja skal vinnuvéla- og landbúnaðar- dekk skipta gæði, ending og áreiðanleiki höfuðmáli. Maxam dekkin eru hagkvæmur kostur og hafa reynst vel við krefjandi aðstæður. Gerðu kröfur — hafðu samband við sölumenn okkar í síma 590 5280 og kynntu þér kosti Maxam dekkjanna. KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10 / 104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is Hagkvæm dekk fyrir alvöru kröfur Mótorar og varahlutir á lager Hröð og góð þjónusta Dreifingaraðili BRIGGS & STRATTON á ÍSLANDI MHG Verslun ehf | Víkurhvarf 8 | 203 Kópavogi Sími 544-4656 | www.mhg.is Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 GRAFAGRINDUR GOTT ÚRVAL BÆKUR& MENNING Úr kaflanum Villiféð í Núpsstaðarskógum Hannes Jónsson (1880–1968), bóndi og landpóstur á Núpsstað, var fróður um villiféð í Eystra­ fjalli. Eftir honum er m. haft að erfitt hafi verið að átta sig á því hversu stór villihjörðin var því aldrei var unnt að sjá hana alla í einu, féð hélt sig í litlum hópum og var sjaldan fleira saman en 8–12 kindur. Þó giskuðu menn á að þetta hefðu verið allt að 200 kindur þegar mest var. Um útlit fjárins segir hann: Villiféð var hábeinóttara og stórgerðara í útliti en annað fé þar um slóðir, afar harðgert og þrekmikið, enda hefir það helzt týnt tölunni, sem lingerðast var. Það var ekki ullarsítt, en ullarþétt, holdbetra og mörmeira en heimaféð, sem hirt var á venjulegan hátt. [...] Villiféð var frískt og gat hent sér svo langt, að undrum sætti. Í snjó, sem náði manni í miðjan legg og kálfa og var fastur fyrir, gat það haft um tvo metra á milli og stökk hvað í för annars. Núpsstaðarbændur nytjuðu villi­ féð eins og hlunnindi, á haustin var jafnan farið í skóginn og sótt þangað sláturfé en það gat verið hægara sagt en gert því féð var afar styggt og vart um sig. Hannes á Núpsstað segir: Það var svo þefnæmt, að það var oft komið á ferð áður en menn voru búnir að sjá það. Kæmi það fyrir, að maður kæmist að því óvörum, ef það var í einhverjum gilvanga og gat legið í leyni, svo það sæi ekki, var það eftir litla stund, að ein kindin fór að hnusa í allar áttir og fnæsa, svo allar kindurnar hrukku við og allt á sprett á eftir þeirri, sem vaktina hafði. Þá var betra að draga ekki af sér ef menn ætluðu að ná í soðið. Til sölu af sama aðila glæsileg 98 fm 2ja herb. Íbúð á 3.hæð í lyftuhúsi fyrir 55 ára og eldri við Boðaþing 6 í Kópavogi, við hliðina (45 mtr) á þjónustumiðst. Aldraðra sem hefur mötuneyti, þjónustu, afþreyingu og fl. Íbúðinni fylgir stæði í bílageymslu sem innangengt er í úr sameign hússins. Góðar eikarinnréttingar, þvottahús í íbúð, garðskáli og suðvest- ur svalir. Einnig til sölu í um 300 mtr, fjarlægð frá Boðaþingi 6, 8 hesta (skv, nýju reglugerðinni) gott hesthús. Selst saman eða sitt í hvoru lagi. Verð Boðaþing: 44,8 m. Verð hesthús: tilboð. Til afhendingar við kaupsamning. Upplýsingar veitir Ingólfur Gissurarson löggiltur fasteignasali s. 896-5222 - netfang: ingolfur@valholl.is KÓPAVOGUR: NÝLEG ÍBÚÐ + HESTHÚS

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.