Bændablaðið - 20.05.2020, Blaðsíða 2

Bændablaðið - 20.05.2020, Blaðsíða 2
Bændablaðið | Miðvikudagur 20. maí 20202 Skrifað var undir samkomulag um endurskoðun á samningi um starfsskilyrði garðyrkjubænda á fimmtudaginn. Í samkomulaginu felst meðal annars að stefnt verður á 25 prósenta aukningu á fram- leiðslu á íslensku grænmeti á næstu þremur árum. Fjölbreytni rækt- unar grænmetis mun aukast og stuðningur við niðurgreiðslu flutn- ings- og dreifikostnað rafmagns verður aukinnn og fyrirkomulag þess einfaldað. Þá verður fjármagn til aðlögun- ar að lífrænum framleiðsluháttum aukið og stefnt verður að því að garðyrkjan verði að fullu kolefnis- jöfnuð árið 2040. Fulltrúar Bændasamtaka Íslands, Sambands garðyrkjubænda og stjórn- valda skrifuðu undir samkomulagið, sem verður einn af fjórum búvöru- samningum. Fjármagn til garðyrkjusamningsins aukið um 200 milljónir Í tilkynningu frá atvinnuvega- og ný- sköpunarráðuneytinu kemur fram að markmið samkomulagsins sé meðal annars að stuðla að framþróun og ný- sköpun í garðyrkjunni með áherslu á aðgerðir í loftslagsmálum. Við næstu endurskoðun samningsins árið 2023 er markmiðið að framleiðsla á íslensku grænmeti hafi aukist um 25 prósent, miðað við meðalfram- leiðslu áranna 2017 til 2019, meðal annars í því skyni að auka mark- aðshlutdeild innlendrar framleiðslu. Samkomulagið gildir út árið 2026. „Auknir fjármunir verða lagðir í garðyrkjusamninginn sem nema 200 milljónum króna á ári. Aukningin kemur til framkvæmda strax á þessu ári. Þeir nýtast m.a. til beingreiðslna vegna raforkukaupa, aðgerða í loftslagsmálum, þróunarverkefna og til fjölbreyttari ræktunar á grænmeti hér á landi,“ segir í tilkynningunni. Garðyrkjan verði kolefnisjöfnuð Ásamt því að íslensk garðyrkja verður að fullu kolefnisjöfnuð árið 2040 er stefnt að því að allar afurðir frá íslenskum garðyrkjubændum verði vottaðar sem kolefnishlut- lausar fyrir þann tíma. Þetta verði meðal annars gert með því að byggja upp þekkingu á losun og bindingu kolefnis, vinna að bættri meðhöndlun og nýtingu aðfanga og áburðar, minni sóun, markvissri jarðrækt, aukinni sjálfbærni og öðrum þeim aðgerðum er miða að því að kolefnisjafna búskap. Auka þurfi beina ráðgjöf og fræðslu til bænda um loftslagsmál og skoða á innleiðingu fjárhagslegra hvata fyrir íslenska garðyrkju til að ná enn frekari árangri í að auka bindingu. Beingreiðslur vegna flutnings- og dreifingarkostnaðar raforku „Fyrirkomulagi á niðurgreiðslum á raforku verður breytt með þeim hætti að ylræktendum verða tryggðar beingreiðslur vegna lýsingar í stað niðurgreiðslu kostnaðar. Þetta er gert til þess að stuðla að hagfelldari starfsskilyrðum greinarinnar. Hámarksstuðningur beingreiðslna vegna lýsingar á hvern framleiðenda verður mest 17,5% af þeirri heildarfjárhæð sem til ráðstöfunar er á viðkomandi rekstrarári. Fjármunir til beingreiðslna vegna flutnings- og dreifingarkostnaðar raforku verða 375 milljónir króna á árinu 2020. Fjölbreyttari ræktun nýtur beingreiðslna Við samninginn bætist nýr flokkur beingreiðslna vegna ræktunar á öðrum grænmetistegundum en gúrkum, paprikum og tómötum. Heildarfjárhæð verður 37 milljónir króna á ári. Greiðslurnar hefjast strax á þessu ári. Veittir verða sérstakir jarðrækt- arstyrkir til útiræktunar á grænmeti og garðávöxtum til manneldis. Ekki er greitt framlag fyrir ræktun undir einum hektara. Þar er meðal annars um að ræða allar afurðir til mann- eldis sem vaxa neðanjarðar eins og kartöflur, rófur, gulrætur, næpur og aðrar sambærilegar afurðir. Afurðir ræktaðar ofanjarðar, s.s. blómkál, hvítkál, kínakál, rauðkál og aðrar sambærilegar afurðir geta einnig notið jarðræktarstyrkja en þar verð- ur upphæð fyrir hvern ræktaðan hektara hærri, þar sem kostnaður við þá framleiðslu er umtalsvert meiri. Framlög til jarðræktarstyrkja verða 70 milljónir króna á ári. Rannsókna-, tilrauna- og þróunarstarf Atvinnuvega- og nýsköpunar- ráðuneytið greiðir þróunarfé til garðyrkjuverkefna. Markmið þess er að styðja við fræðslu, rannsóknir, leiðbeiningarþjónustu og framþróun í garðyrkju. Styrkhæf eru; ráðgjaf- arverkefni, kynningarverkefni, rannsókna- eða tilraunaverkefni, vöruþróunar verkefni, verkefni sem miða að því að draga úr losun gróð- urhúsalofttegunda og endurmenntun- arverkefni. Lífræn framleiðsla Greidd verða aukin framlög til að- lögunar að lífrænum framleiðslu- háttum í garðyrkju. Markmiðið er að aðstoða framleiðendur við að uppfylla þær kröfur sem lífræn garðyrkjuframleiðsla hefur í för með sér og auka framboð slíkra vara á markaði. Gagnagrunnur um matvælaframleiðslu Atvinnuvega- og nýsköpunar- ráðuneytið stefnir að því að setja á fót gagnagrunn og mælaborð sem heldur utan um upplýsingar um matvælaframleiðslu á sviði land- búnaðar á Íslandi, þ.m.t. garðyrkju. Nauðsynlegt er að hafa yfirsýn yfir framleiðslu, sölu og birgðir í landinu m.a. vegna fæðuöryggis og slíkur gagnagrunnur eykur auk þess gagnsæi. Upplýsingarnar munu endurspegla birgðastöðu innlendra garðyrkjuafurða og verða uppfærðar með reglulegu millibili innan hvers árs. Tollvernd Samningsaðilar munu á árinu 2020 láta greina hagkvæmni þess að taka upp uppskerutengdar greiðslur vegna útiræktaðra garðyrkjuafurða og kartaflna gegn mögulegri niður- fellingu og/eða lækkun tollverndar. Niðurstöður skulu metnar við endur- skoðun samningsins árið 2023,“ segir í tilkynningunni. Skapa forsendur til að auka framleiðslu Í tilkynningunni er haft eftir Kristjáni Þór Júlíussyni, sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra, að samningurinn marki tímamót fyrir íslenska garðyrkju. „Stærsta breytingin er sú að við erum að stórauka framlög til að niðurgreiða flutnings- og dreifingarkostnað raf- magns og auka við jarðræktarstyrki til að stuðla að fjölbreyttari ræktun á grænmeti hér á landi. Með því erum við að skapa forsendur til að auka framleiðslu á íslensku græn- meti um 25% á næstu þremur árum og auka þannig markaðshlutdeild innlendrar framleiðslu. Til viðbótar eru í samkomulaginu fjölmörg at- riði sem munu styrkja íslenska garðyrkju og allan íslenskan land- búnað til lengri tíma, m.a. með því að setja á fót mælaborð fyrir landbúnaðinn. Samantekið er ég afskaplega stoltur og ánægður með þetta samkomulag. Við erum að fjárfesta í framtíðinni og fanga þau tækifæri sem við okkur blasa í ís- lenskri garðyrkju.“ Mikil sóknarfæri í garðyrkju Gunnar Þorgeirsson, formaður Bænda samtaka Íslands, segir af þessu tilefni að fagnaðarefni sé að búið sé að ljúka endurskoðun garðyrkjusamningsins á þessum undarlegu tímum. „Mikill skiln- ingur er meðal neytenda að styrkja íslenska framleiðslu. Í samningnum vega þyngst áhrif hans á útiræktun- ina. Við sem framleiðendur höfum haft miklar áhyggjur af þeirri fram- leiðslu undanfarin ár, þar sem of fáir bændur hafa séð sér hag í að stunda hana. Hart hefur verið sótt að framleiðslunni á grundvelli afnáms tolla og takmarkaðs stuðnings. Sá skilningur samningsaðila og þær áherslur sem lúta að tollvernd ís- lenskrar garðyrkju, lífrænni ræktun og umhverfismálum eru jákvæðar. Mikil sóknarfæri eru í garðyrkju almennt og ekki síst hér á okkar hreina landi þar sem við njótum þeirra forréttinda að vökva okkar afurðir með hreinu drykkjarvatni. Eins og segir í slagorðum garð- yrkjubænda: „Íslenskt grænmeti, þú veist hvaðan það kemur“ og „blóm gera kraftaverk“.“ Samkomulagið var undirritað af hálfu Bændasamtaka Íslands og Sambands garðyrkjubænda. Kristján Þór Júlíusson sjávarút- vegs- og landbúnaðarráðherra og Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra, undirrituðu samninginn fyrir hönd stjórn- valda með fyrirvara um samþykki Alþingis á nauðsynlegum laga- breytingum. Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands, skrifaði undir fyrir hönd samtak- anna, Helga Ragna Pálsdóttir, vara- formaður Sambands garðyrkju- bænda, fyrir hönd garðyrkjubænda og Unnur Brá Konráðsdóttir, sem formaður samninganefndar ríkis- ins. /smh FRÉTTIR www.kofaroghus.is - sími 553 1545 339.000 kr. Tilboðsverð BREKKA 34 - 9 fm 518.000 kr. Tilboðsverð STAPI - 14,98 fm 389.000 kr. Tilboðsverð NAUST - 14,44 fm 34 mm 34 mm44 mm Ítarlegar upplýsingar og teikningar ásamt ýmsum öðrum fróðleik má finna á vef okkar VORTILBOÐ Á GARÐHÚSUM! Endurskoðun á samningi um starfsskilyrði garðyrkjubænda: Auka framleiðslu á grænmeti um 25 prósent á næstu þremur árum Við undirskrift samningsins, talið frá vinstri, formaður samninganefndar ríkisins, Helga Ragna Pálsdóttir, varaformaður Sambands garðyrkjubænda, Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands. Mynd / Tjörvi Bjarnason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.