Bændablaðið - 20.05.2020, Blaðsíða 35
Bændablaðið | Miðvikudagur 20. maí 2020 35
K j a r n a f æ ð i h f . | S v a l b a r ð s e y r i | 6 0 1 A k u r e y r i | S í m i 4 6 0 7 4 0 0 | w w w . k j a r n a f a e d i . i s
KJÖTRÍKAR- P Y L S U R -
KOMDU
í bragðgott ferðalag
Leyfðu bragðlaukunum
að ferðast til fjarlægra landa!
…með kjötríku grillpylsunum frá Kjarnafæði
BETRA START
MEÐ EXIDE RAFGEYMUM
Áreiðanlegir og sterkbyggðir rafgeymar fyrir
flestar gerðir dráttarvéla. Veldu þaulreynda
vöru frá gæðaframleiðanda.
Ráðgjafar Olís og Rekstrarlands veita allar nánari
upplýsingar í síma 515 1100 eða pontun@olis.is.
Myrkholt · Bláskógarbyggð
Sími 486 8757
gljasteinn@gljasteinn.is · www.gljasteinn.is
Gíslaskáli
Árbúðir
Fremstaver
Skálinn
Áningastaðir
á Kili
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
STARTARAR í flestar
gerðir dráttarvéla
Bænda
4.
júní
við þurfum að reyna að fá fólkið í
landinu til okkar að einhverju leyti
í stað útlendinganna sem munu ekki
koma. Við vitum að tilboðin eru
kannski ekki alveg við allra hæfi
en flestir ættu að ráða vel við þau
verðtilboð sem við kynntum. Þetta
er talsverð lækkun hjá okkur og við
hugsum þetta í raun bara einungis til
að geta haldið sjó í gegnum sumarið
í það minnsta. Við höfum fengið
frábærar viðtökur við tilboðunum
og tilkynning okkar virðist hafa
farið víða,“ segir Sturla um það
hvort til standi að fara í eitthvert
markaðsátak fyrir Íslendingana.
„Um leið settum við af stað
Facebook-leik, happdrætti þar sem
þátttakendur geta unnið gistingu
með morgunverðarhlaðborði og við
ætlum vafalaust að gera þetta oftar til
að vekja athygli á okkur.“
Rafhjólaferðir um náttúruperlur
„Við erum svo að skipuleggja svolítið
skemmtilegt verkefni með lítilli
ferðaskrifstofu, sem eru hjólaferðir
hér um helstu náttúruperlur á
svæðinu á rafhjólum. Stefnan verður
á að fara inn í Þórsmörk og eftir
Fjallabaksleið syðri til dæmis, en
leiðsögumennirnir verða á trukkum
og taka hjól og fólk upp í þegar fara
þarf yfir ár og yfir lengri kafla. Slíkar
ferðir geta hentað öllum sem geta
eitthvað hjólað, því rafmagnshjólið
hjálpar þér erfiðustu hjallana. Þessar
ferðir verða sérstaklega auglýstar á
Facebook-síðu hótelsins og verðar
settar í samhengi við einhverja pakka
sem við munum bjóða upp á. Þá
ætlum við að vera með nýbreytni í
sumar á viðburðardagatalinu okkar,
sem verður svona kvöldstund úti við
varðeld – bara hérna niðri við læk.
Þar ætlum við að reyna að búa til
stemningu, enda viljum við bjóða
upp á eitthvað umfram gistinguna
hérna á hótelinu – til dæmis líka
sérstaka upplifun með dýrunum,“
segir Sturla.
Búið var að bóka nokkur herbergi
fyrir síðustu helgi og því má segja
að hið óvenjulega ferðasumar 2020
á Hótel Læk hafi þá formlega hafist,
en hótelið hafði verið lokað alveg frá
miðjum mars. /smh
Útihúsunum á Hróarslæk var breytt í hótel árið 2011. Mynd / Úr einkasafni