Bændablaðið - 20.05.2020, Blaðsíða 28

Bændablaðið - 20.05.2020, Blaðsíða 28
Bændablaðið | Miðvikudagur 20. maí 202028 LÍF&STARF Guðríður Eva Þórarinsdóttir er nýr dýralæknir á Flúðum: Ætlaði sér alltaf að verða dýralæknir enda með ólæknandi áhuga fyrir dýrum Guðríður Eva Þórarinsdóttir hefur nýleg stofnað sitt eigið dýralækninga fyrirtæki, sem sjálfstætt starfandi dýralæknir með starfsaðstöðu á Flúðum. Hún er fædd í Hrunamannahreppi og býr á Flúðum með kærastanum sínum, Jóni William. Guðríður Eva er frá bænum Reykjadal sem er rétt fyrir ofan Flúðir. Guðríður er elst af fjórum systkinum og á þrjá yngri bræður. „Ég fór beint í Menntaskólann að Laugarvatni eftir grunnskóla og þaðan beint til Kaupmannahafnar í dýralæknanám. Ég var rétt að verða 20 ára þegar ég flutti til Danmerkur og hafði stundað alls konar sum­ arvinnu og vinnu með skóla t.d. garðyrkju, afgreitt í búðinni, verið barþjónn á Útlaganum, unnið á sambýli og í reiðskóla svo eitthvað sé nefnt,“ segir Guðríður Eva. Ekki erfið ákvörðun Guðríður Eva segir það ekki hafa verið erfiða ákvörðun að fara í nám í dýralæknum og verða þar með dýralæknir. Nei, ég man bara aldrei eftir mér öðruvísi en að ætla að verða dýralæknir. Ólæknandi meðfædd dýrasýki hefur líklega ráðið mestu þar um. Ég get því ekki sagt að ákvörðunin hafi verið erfið, en það var smá þröskuldur að þurfa að fara utan í nám. Ég er heimakær sveitastelpa og það var aðeins út fyrir þægindarammann að fara ein og flytja út. Ég lærði í Kaupmannahöfn og námið tók mig 6 ár í það heila. Ég bjó úti í 5 ár en var svo á Íslandi á meðan ég skrifaði lokaverkefnið mitt.“ Dýralæknir í sjö ár Guðríður Eva hefur starfað í sjö ár sem dýralæknir. Frá því að hún flutti heim vann hún á Dýralækna­ miðstöðinni á Hellu í blönduðum praksis. Veturinn 2013–2014 var hún í hlutastarfi og með því skrifaði hún lokaverkefnið sitt og var svo í fullu starfi eftir að hún útskrifaðist vorið 2014. „Dýralæknamiðstöðinni á Hellu var lokað í lok árs 2019 og í framhaldi ákvað ég að fara út í sjálfstæðan rekstur af því að mér fannst það bara mjög spennandi og ákvað því að taka stökkið og prófa að sjá um mig sjálf. Það var engin stofa á Flúðum eða hérna í næsta nágrenni og þetta var því bara spennandi tækifæri,“ segir Guðríður Eva aðspurð af hverju hún hafi ákveðið að fara út í sjálf­ stæðan rekstur. Fjölbreytt verkefni Á Flúðum er Guðríður Eva með litla dýralæknastofu þar sem hún er með góða aðstöðu fyrir sig og það sem starfseminni fylgir. Hún getur tekið á móti smádýrum þar í daglegar skoðanir, eftirlit og minniháttar aðgerðir. Hún er líka með smáverslun með gæludýrafóðri, hestavörum og bætiefnum fyrir kýr og kindur. Síðan er Guríður Eva með vel búinn bíl og keyrir til bænda sem eru með hross, kýr og kindur. Hún er líka með fínt hesthús heima í Reykjadal þar sem hún hefur tekið til sín hross, sem t.d. slasast illa og þurfa að vera í langri meðhöndlun. „Ég fer víða um Suðurland í vitjanir, en er vissulega mest hér í uppsveitum Árnessýslu. Þó að starfsstöðin mín hafi flutt frá Hellu og á Flúðir þjónusta ég enn þó svolítið af fólki fyrir austan í Rangárvallasýslu.“ Týpískur sveitadýralæknir Þegar Guðríður Eva er spurð hvar hennar svið liggi helst í dýralæknum er hún fljót að svara. „Já, ég er svona þessi týpíski sveitadýralæknir í blönduðum praksis. Sinni þessu öllu í bland, hestum, kúm, hundum köttum og sauðfé og fjölbreytileikinn er einmitt það allra besta við starf­ ið. Það leiðinlegasta við starfið er að taka fastar hildir úr kúm en það skemmtilegasta eru vorverk­ in, sauðburðurinn og svo finnst mér afskaplega gaman af öllu sem tengist hryssunum; sónarskoðanir, sæðingar og allt það sem viðkemur ræktun og frjósemi hrossa. Það er líka svo gaman fyrir hrossaræktar­ áhugamanneskju eins og mig að sjá öll folöldin, hitta ræktendur og geta forvitnast undan hvaða hest­ um þau eru. Þá fær maður oft hug­ myndir um hvaða hesta maður vill sjálfur nota á sínar hryssur,“ segir hún og bætir við: „Í fyrra var ég í fyrsta skipti í samstarfi með hjón­ unum í Hemlu með sæðingarstöð fyrir hryssur. Hulda Jónsdóttir, þáverandi samstarfsskona mín á Hellu, var með mér í þessu og við sæddum um 80 merar við stóðhestinum Ský frá Skálakoti, það var ótrúlega skemmtilegt starf. Við erum núna að undirbúa okkur að byrja aftur á Hemlu og í sumar verða tveir hestar í Hemlu, Skýr frá Skálakoti og Pensill frá Hvolsvelli.“ Vorið mikill álagstími „Vorið er mikill álagstími hjá dýralæknum, það er alltaf einhver vinna við sauð­ burð, nokkrir keisaraskurðir og burðarhjálp. Það kemur líka törn í folageldingum á vorin og svo fara folöld að fæðast og allt sem tengist stóð­ hestahaldi. Þetta er vissulega mjög anna­ samur tími en líka svo ótrúlega skemmti­ legur,“ segir Guð­ ríður Eva þegar hún var spurð um mesta álagstíma dýralækna. Dýrin eru uppáhalds áhugamálið Guðríður Eva segir að þó það hljómi kannski einkennilega þá séu dýrin, hestar og hundar hennar aðaláhuga­ mál. „Við erum líka með litla hrossa­ rækt og reynum að sinna hrossunum og ríða út eins mikið og tími gefst til. Svo eigum við 3 ástralska fjárhunda og erum aðeins að fikra okkur áfram í hundarækt líka. Svala, yngsta tíkin okkar, er okkur fædd, en við vorum með 8 hvolpa í fyrrasumar og héldum henni eftir.“ Að lokum er vert að vekja athygli á heimasíðu dýralækninga­ þjónustu Guðríðar Evu en slóðin á hana er www.dyralaeknirinn.com. Á síðunni er hægt að finna allar aðrar upplýsingar eins og símanúm­ er, netfang og þess háttar hjá henni. /MHH Guðríður Eva vinnur mikið í tölvu við að sinna ýmsum erindum áður en hún fer í vitjanir á sveitabæi eða tekur á móti fólki með veik gæludýr á stofuna sína eða til að afgreiða í versluninni sinni. Myndir / Magnús Hlynur Hreiðarsson Guðríður hefur komið sér vel fyrir með stofuna sína á Flúðum í húsi sem heitir Steðji en afi hennar heitinn var m.a. með starfsemi í húsnæðinu. Gæludýraeigendur fá heilsufarsbók hjá Guðríði Evu þar sem heilsa dýranna er skráð samviskusamlega í bókina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.