Bændablaðið - 20.05.2020, Blaðsíða 40
Bændablaðið | Miðvikudagur 20. maí 202040
Deilieldhúsið Eldstæðið opnar í sumar
– Ætti að höfða til flestra matarfrumkvöðla
Á Facebook-síðunni Eldstæðið
sameinast matarfrumkvöðlar og
smáframleiðendur sem hafa áhuga
á að vinna saman undir einu þaki
að verkefnum sínum. Stofnandi
hópsins er Eva Michelsen, sem
hefur átt sér þann draum að reka
slíkt deilieldhús undir merkjum
Eldstæðisins þar sem félagar
hennar í hópunum geta þróað
hugmyndir sínar frekar. Hún er
búin að fá húsnæði undir starf-
semina og vonast til að geta opnað
í sumar.
„Það væri draumur að opna í
júní en við erum enn að standsetja
allt saman í húsnæðinu og svo
erum við að vinna með heilbrigðis-
eftirlitinu, sem fundar bara einu sinni
í mánuði fyrir Kópavog, Garðabæ
og Hafnarfjörð. Svo mögulega erum
við að horfa á júlí eða ágústmánuð,
sjáum hversu öflug við erum og
hvernig gengur með starfsleyfið.“
Skortur verið á starfsaðstöðu
Að sögn Evu hefur verið skortur á
slíkri aðstöðu undanfarin misseri
enda hefur verið nokkur gerjun í
þessum geira. „Ég hef nokkuð stöð-
ugt og reglulega fengið fyrirspurnir
síðustu tvö árin meðan ég hef verið
að „djöflast“ í þessu – eins og einn
orðaði svo skemmtilega um þetta
brölt hjá mér um daginn. Við erum
með rúmlega 100 manns í Facebook-
hópnum sem ég stofnaði fyrir um
tveimur árum svo það er að minnsta
kosti áhugi á að fylgjast með. Það
geta allir látið vita af áhuga sínum
á því að fá aðgang að aðstöðunni,
en formlegt umsóknarferli er ekki
hafið.
Ég er þegar með einstaklinga
og smærri rekstraraðila á biðlista,
svo verður áhugavert að sjá hvort
hafi orðið breyting þar á, eða hvort
verði hreinlega enn meiri eftir-
spurn. Markmiðið er að hafa að
minnsta kosti þrjár til fjórar virkar
vinnustöðvar í einu – og húsnæðið
aðgengilegt allan sólarhringinn. Svo
það ætti að vera hægt að þjónusta
að lágmarki 15–20 einstaklinga eða
rekstraraðila hverju sinni. Þetta fer
auðvitað eftir umfangi hvers og eins,
sumir eru að framleiða í eitt skipti
á ári og aðrir fjögur – og þurfa bara
lager þess á milli. Aðrir eru mánað-
arlega, vikulega, daglega og svo
framvegis. Sumir þurfa eingöngu
undirbúningsaðstöðu, aðrir fram-
leiðslu og eldun. Þetta er auðvitað
alveg splunkunýtt og af nokkuð
stærri skala en tilraunaeldhúsin sem
til eru svo þetta er ágætis lærdóm-
skúrfa líka. Við verðum einnig með
skrifstofuaðstöðu svo það verður
hægt að sinna pappírsvinnunni sem
fylgir og getur verið mikill kostur.
Það er margt fleira í bígerð varð-
andi aðstöðuna, þjónustuna og fríð-
indi sem frumkvöðlar njóta með því
að vera með aðstöðu hjá okkur.“
Deilieldhúsið rekið
undir Eldstæðinu
Að sögn Evu verður verkefnið rekið
undir rekstrarfélaginu Eldstæðinu
ehf. en eigendur þess eru hún sjálf
og maður hennar. „Við fjármögnum
þetta af eigin fé, en ég er með mjög
góða aðila í kringum mig sem eru
ómetanlegir í þessu ferli, þar á
meðal góð vinkona sem hefur stutt
mig gegnum þetta ferli. Fjölskyldan
er auðvitað að hjálpa til eins og þau
geta og vinir bíða eftir að komast
að og hjálpa til,“ segir hún.
„Það hefur sannarlega verið
að mörgu að huga í þessu ferli;
að teikna upp aðstöðuna og finna
hvernig þetta allt gengur upp saman
með þeim hætti sem við leggjum
upp með. Það er auðvitað þetta
hefðbundna; mála og gera huggu-
legt en svo er að ákveða viðeigandi
tækjakost, uppsetning á þurrlager,
kælum, frystum og svo framveg-
is. Allt með það í huga að tryggja
fæðuöryggi, hreinlæti og fleira sem
ber að hafa í huga þegar kemur að
matvælavinnslu. Fyrirtækin sem
ég hef verið í samskiptum við hafa
verið alveg frábær og taka vel í
þetta klikkaða framtak. Þessu fylgir
einnig að setja upp þjónustupakk-
ana/verðskrá og hvað er innifalið
í hverjum pakka. Við viljum geta
aðstoðað stóra sem smáa og eftir
tímasetningu, margir eru að prufa
sig áfram meðfram vinnu og kom-
ast því bara á kvöldin og um helgar.
Það verður því eitthvað á borð við
grunnpakka, frumkvöðlapakka,
helgarpakka, nátthrafnapakka og
stóra pakkann. Við erum nokkurn
vegin komin með þetta á hreint
en viljum aðeins fínpússa áður en
vefurinn fer í loftið með öllum upp-
lýsingum.“
Flestir ættu að geta
nýtt sér aðstöðuna
„Ég reikna með að ég sjái að mestu
um reksturinn til að byrja með og
ef allt gengur upp þá get ég von-
andi ráðið fólk til starfa. Ég er svo
heppin að búa að góðri reynslu úr
Sjávarklasanum úti á Granda ásamt
Lífsgæðasetri St. Jó í Hafnarfirði
en bæði þessi húsnæði byggja á
deilihagkerfinu og uppbyggingu
á samfélagi kringum ákveðnar
starfsgreinar,“ segir Eva. Hún bætir
við að hún telji að flestir matar-
frumkvöðlar ættu að geta nýtt sér
þá aðstöðu sem verður í boði, en
nauðsynlegt sé að passa upp á of-
næmisvalda.
„Gjaldskráin er alveg að verða
klár, viljum leggjast aðeins betur
yfir hana áður en hún er birt opin-
berlega,“ segir Eva.
Áhugasamir um framvindu
verkefnisins geta fylgst með á
Facebook-síðu Eldstæðisins,
https://www.facebook.com/eld-
staedid. /smh
LÍF&STARF
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Eva var á fullu í undirbúningi að koma Eldstæðinu í stand þegar ljósmyndari kom í heimsókn. Hér er hún í máln-
ingarvinnu í tilvonandi skrifstofurými þar sem matarfrumkvöðlarnir geta sinnt pappírsvinnunni. Myndir / smh
Horft inn í vinnslurýmið, stór kælir er í bakgrunni en í húsnæðinu var áður
matvælavinnsla.
Bændablaðið er
mest lesna blaðið
á landsbyggðinni
Hvar auglýsir þú?
Lestur prentmiðla á
landsbyggðinni
ViðskiptablaðiðMannlíf
H
eim
ild: Prentm
iðlakönnun G
allup. K
önnunartím
i okt.-des. 2019.
50%
40%
30%
20%
10%
Stundin DV Morgunblaðið Fréttablaðið Bændablaðið
Bændablaðið / Bændahöllin við Hagatorg / Sími: 563 0300 / Netfang: bbl@bondi.is / bbl.is
Lestur Bændablaðsins:
41,9%
21,9%19%
5,8%
9,1%
5,2%2,2%
41,9% 21,9% 29,2%
á landsbyggðinni á höfuðborgarsvæðinu landsmanna lesa
Bændablaðið
BÆNDABLAÐIÐ ER GEFIÐ ÚT Í 32 ÞÚSUND
EINTÖKUM Á TVEGGJA VIKNA FRESTI