Bændablaðið - 20.05.2020, Blaðsíða 53

Bændablaðið - 20.05.2020, Blaðsíða 53
53Bændablaðið | Miðvikudagur 20. maí 2020 Fimm nemendur við Háskólann í Reykjavík í námskeiðinu Nýsköpun og stofnun fyrirtækja er að skoða möguleikann á að vinna með íslenskt bygg þar sem ræktun þess hefur náð ágætri kjölfestu á síðasta áratugnum. Nýsköpun með erfðabreytt bygg hefur verið á mikilli uppleið og ræktun á lífrænu byggi er í uppsveiflu. Sunna Mímisdóttir, einn af fimm­ menningunum, sagði í samtali við Bændablaðið að hópurinn hafi kynnt sér sambærilegar vörur sem hafa komið á markað að undanförnu, til dæmis einnota matarílát og drykkj­ armál, hnífapör og drykkjarrör, og rætt við sérfræðinga í efnafræði og lífefnafræði til þess að kanna hvort það væri hægt að nýta bygg í drykkjarrör. „Undirbúningsvinna sannfærði okkur um að þetta væri vel gerlegt og þess vegna ákváðum við að stefna að því að búa til efnið blast, þ.e.a.s. plastlíki úr byggi, bygg + plast = blast.“ Nemendurnir sem að verk­ efninu vinna eru Bjarni Valur Birgisson, hátækni verkfræði, Björk Sigurjónsdóttir, tölvunarfræði, Gísli Örn Guðjóns son, viðskiptafræði, Karen Rós Smáradóttir, sálfræði og Sunna Mímisdóttir, nemi í tölvunar­ fræði. Blast ehf. „Markmið námskeiðisins er að fara í gegnum ferlið sem fylgir því að stofna nýsköpunarsprotafyrirtæki og við ákváðum að stofna fyrirtækið Blast ehf. Plastmengun er mikil um­ hverfisvá og þess vegna kviknaði hugmyndin að því að búa til um­ hverfisvæn drykkjarrör úr íslensku byggi. Öll reynum við að forðast einnota plaströr en þau eru verri en annað einnota plast að því leyti að ekki er hægt að endurvinna þau. Við vorum líka sammála um að algeng­ ustu umhverfisvænu rörin, pappa­ rörin, væru alls ekki nógu góð og við vildum því finna betri úrlausn.“ Lífrænt plast „Til þess að búa til lífrænt plast þarf fyrst og fremst sterkju og glýseról og við prófuðum að búa til frumgerð að efnablöndunni með einfaldri heimatilraun í eldhúsinu. Það reyndist furðu auðvelt að búa til blönduna úr kornsterkju sem keypt var tilbúin og því drógum við þá ályktun að lítið mál væri að gera sambærilega blöndu úr byggsterkjunni. Við bruggun er sterkjan úr bygginu brotin niður með meskingu en einnig er hægt að ná sterkjunni úr korninu með einföldum hætti án þess að brjóta hana niður. Við gælum einnig við möguleikann um að hægt sé að nýta trefjarnar sem eru í slíðri kornsins til að styrkja efnablönduna og jafnvel búa til annars konar tegund af drykkjarrörum úr stilkum kornsins, en sambærileg rör hafa orðið nokkuð vinsæl erlendis á síðustu mánuðum.“ Sunnu segir að nemendurnir hafi rætt við nokkra eigendur veitingahúsa á Íslandi og þeir sýndu vörunni áhuga. „Búið er að samþykkja tilskipun í Evrópusambandinu sem bannar sölu á einnota plasti og nýverið var lagt fram frumvarp á Alþingi sama efnis. Margir veitingastaðir á Íslandi hafa þegar tekið plaströr úr notkun og einhverjir þeirra hafa tekið í notkun innflutt rör úr hálmi eða hveitistilkum. Aðrir nota papparörin sem fáir væru ánægðir með. Möguleikinn á að fá innlend umhverfisvæn rör vakti mikinn áhuga og vorum við eindregið hvött til að taka hugmyndina lengra.“ Langar að kynna sér byggrækt Nemendurnir segjast hafa mikinn áhuga á að kynna sér byggræktun­ ina á Þorvaldseyri og komast að því hvernig framleiðsluferlið á bygginu er, allt frá ræktun til neytenda. „Það væri mjög gaman að kom­ ast í samstarf við byggræktendur á Íslandi og láta reyna á þessa nýsköp­ unarhugmynd okkar. Við vitum að hægt er að nýta sterkju og trefjar í ýmsa gagnlega og umhverfisvæna hluti og vonum að drykkjarrör úr byggi bætist við fjölda umhverfis­ vænna lausna í heiminum,“ segir Sunna. Staðreyndir um plast • Aðeins um 9% af plastúrgangi fer í endurvinnslu! • 8 tonn af plasti fara í sjóinn á hverju ári! • Plaströr eru flokkuð sem einn af helstu mengunarþáttum sjávar! • Plaströr eru ekki endur­ vinnanleg. Þau geta mengað endurvinnsluferli annars plasts, endað í sjónum eða landfyllingum á urðunar­ stöðvum og losað skaðleg efni út í jarðveginn. • Bandaríkjamenn nota yfir 500 milljón rör á hverjum degi! Það eru um 175 milljarðar röra á ári! • Ef ekkert verður að gert verður meira af plasti en fiski í sjónum árið 2050. Nemendurnir ítreka að hugmyndin sé á frumstigi og að þeir séu ekki komnir með neinar forsendur til að hefja framleiðslu. „Námskeiðið stendur bara í þrjár vikur og takmarkað sem hægt er að gera á svo stuttum tíma en við höfum mikinn áhuga á að taka hugmyndina á næsta stig en erum ekki komin svo langt.“ /VH Vélar, bátar, bílar, gámar eða vörur í lausu Það skiptir ekki máli hvað þú þarft að flytja, við getum flutt það fyrir þig landshorna á milli. Reglulegar ferðir á flesta staði á landinu. Hafðu samband og við finnum lausnina með þér. fraktlausnir@fraktlausnir.is Sími 519-2150 eða 773-1630 YFIR 30 ÁRA REYNSLAOLÍUSKILJUR – Íslensk hönnun, framleiðsla og gæði. – Borgarplast hefur verið leiðandi í framleiðslu á olíu-, fitu-, og fastefnaskiljum í áratugi á Íslandi. – Olíuskiljur Borgarplasts eru CE merktar, framleiddar fyrir þungaumferð og hins vegar fyrir staðsetningu utan umferðar. Olíuskiljur Borgarplasts eru framleiddar úr Polýetýleni (PE) og uppfylla kröfur staðalsins ÍST EN 858. BORGARPLAST HF. Fráveitulausnir og ker: Völuteig 31, 270 Mosfellsbæ, Sími: 561 2211 Húseinangrun og frauðkassar: Grænásbraut 501, 262 Reykjanesbæ, Sími: 561 2210 borgarplast.is HUGVIT&NÝSKÖPUN Grafísk mynd af íláti með baströrum. Hugmynd að lógói fyrirtækisins. Blast plast
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.