Bændablaðið - 20.05.2020, Blaðsíða 26
Bændablaðið | Miðvikudagur 20. maí 202026
Þegar þú ferð með fjölskylduna í ísbíltúr tekur atvinnulífið kipp.
Þegar íssalinn lætur flísaleggja baðherbergið kemur annar
kippur. Flísarinn lætur standsetja gamla hjólið sitt fyrir sumarið
og enn kemur kippur, sem heldur áfram þegar hjólaviðgerðar-
maðurinn kaupir íslenskan trúlofunarhring handa kærustunni.
Loksins. Allt í einu er allt komið af stað á ný.
ATVINNULÍFIÐ ER LÍF OKKAR ALLRA
Þegar þú velur íslenskt tekur
atvinnulífið við sér!
Byggðarannsóknarsjóður:
Tíu milljónir til fjögurra verkefna
– Fjórða iðnbyltingin, fasteignamarkaður, örorka og dreifbýlisverslun
Fjögur verkefni hljóta
styrk úr Byggða rann
sóknasjóði á þessu
ári, en þau verk efni
sem fá styrk í ár snú
ast um áhrif fjórðu
iðnbyltingarinnar,
fasteigna markað,
kortlagningu örorku
og verslun í dreifbýli.
Byggðarannsókna
sjóður er fjármagnað
ur af byggðaáætlun og
með framlagi frá Byggðastofnun og
hefur þann tilgang að efla byggða
rannsóknir og bæta þannig þekk
ingargrunn fyrir stefnumótun og
aðgerðir í byggðamálum. Alls bár
ust sjóðnum 14 umsóknir, samtals
að upphæð 38 milljónir króna. Til
úthlutunar voru 10 milljónir.
Þekkingarnet Þingeyinga fékk
2,5 milljónir króna í styrk vegna
verkefnis sem heitir Byltingar
og byggðaþróun: hlutverk
þekkingasetra í byggðaþróun
fjórðu iðnbyltingarinnar. Markmið
rann sóknar innar er að greina áhrif
fjórðu iðnbyltingarinnar í byggðum
landsins og mögulegar leiðir til að
nýta innviði þekkingarsetra til að
mæta áskorunum og tækifærum
byltingarinnar.
Fasteignaverð og barnafjölskyldur
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi
fengu 2 milljónir vegna verkefnis
með heitinu Fasteignamarkaður
og foreldrar um land allt:
Getur hátt fasteignaverð fælt
barnafjölskyldur af landsbyggðinni
eða haldið þeim frá? Tilgangur
rannsóknarinnar er að skoða hvað
hefur áhrif á búferlaflutninga
fólks á barneignaraldri og að
styrkja fyrri greiningu á þessum
þáttum svo auðveldara sé að
hanna íbúaþróunarlíkön fyrir
sveitarfélög. Í þriðja lagi að auka
skilning á þeim áhrifum sem mikil
sókn utanbæjarmanna í íbúðir
fjarri heimahögum þeirra kunna
að hafa.
Þá fékk Rannsóknamiðstöð
Há skólans á Akureyri styrk
að upphæð 2,5 milljónir
króna vegna kortlagningar
örorku á Norðurlandi
eystra. Markmiðið með
verkefninu er að kortleggja
umfang og þróun örorku
á Norðurlandi eystra
í samhengi við þróun
vinnumarkaðar og
lýðfræðilegra þátta.
Þá er markmið að
unnt verði að nýta niðurstöður
rannsóknar innar í þágu þeirra
sem vinna að atvinnuþróun,
vinnumarkaðsúrræðum, mennta
mál um endurhæfingu fólks á
vinnumarkaði og byggðaþróun
og að verkefnið stuðli að aukinni
þekkingu.
Emil B. Karlsson hlaut 3 milljón
króna styrk vegna verkefnis sem
heitir Verslun í heima byggð: greining
á sóknarf ærum dreifbýlisverslana.
Mark mið rannsóknarinnar er að
leiða í ljós hverjar eru skilvirk ustu
stuðningsaðgerðir við litlar verslanir
í dreifbýli. Niðurstöðum er jafnframt
ætlað að sýna hvaða þættir í rekstri
dreifbýlisverslana skipta mestu til
að lifa af í samkeppni við stærri
verslanakeðjur. /MÞÞ
Landbúnaðarráð Húnaþings
vestra hvetur Matvælastofnun
til að endurskoða fjárveitingar
til varnagirðinga í héraðinu.
Málið var rætt á fundi ráðsins
á dögunum.
Samkvæmt upplýsingum frá
verktaka sem sér um viðhald
sauðfjárveikivarnagirðinga að
stórum hluta í Húnaþingi vestra
hefur honum verið tilkynnt
að fjárframlög til viðhalds á
varnargirðingum verði lækkuð
á árinu 2020. Það leiðir til þess
að nauðsynlegt viðhald verður í
lágmarki sem gerir það að verkum
að varnir gegn smitsjúkdómum
búfjár verða illviðráðanlegar.
Skýtur skökku við
Landbúnaðarráð Húnaþings vestra
mótmælir harðlega þessari þróun
og finnst skjóta skökku við að
þetta sé gert eftir snjóþungan
vetur og á sama tíma og umræða
um smitsjúkdóma, matvælaöryggi
og mikilvægi öruggrar
matvælaframleiðslu er áberandi í
heiminum og þá ekki síður í ljósi
þess að stór hluti mannkyns hefur
verið girtur af og hólfaður niður til
varnar útbreiðslu smitsjúkdóma.
Því hvetur ráðið Mast til að
endurskoða fjárveitingar sínar til
varnagirðinga í Húnaþingi vestra.
/MÞÞ
Húnaþing vestra:
Mótmæla lækkuðu framlagi
í viðhald varnargirðinga
Fé við Mjóavatn á Auðkúluheiði. Mynd / HKr.
LÍF&STARF