Bændablaðið - 20.05.2020, Blaðsíða 55

Bændablaðið - 20.05.2020, Blaðsíða 55
Bændablaðið | Miðvikudagur 20. maí 2020 55 Nú er að koma betur í ljós þær miklu skemmdir á vegakerfinu eftir síðasta vetur og væntanlega dylst það engum að aldrei hafa vegir komið svona illa undan vetri. Það er kannski í grófara lagi að segja að allir vegir séu meira og minna ónýtir, en það er einfaldlega ekki fjarri lagi. Það er sama hvert ekið er, alls staðar holur, ójöfnur og miklar skemmdir á vegum og af þessum sökum þarf að fara sérstaklega var­ lega. Aldrei önnur eins sala á reiðhjólum Aldrei hefur önnur eins sala verið á nýjum reiðhjólum og það sem af er ári, nánast allar reiðhjólabúðir hafa selt nú þegar öll hjól sín og beðið er eftir nýjum sendingum. Um síðustu áramót breyttust aðeins umferðarreglur og nú má ekki taka fram úr reiðhjóli nema að vera í 1,5 metra fjarlægð frá hjólinu við framúraksturinn. Hjólreiðafólk sem hjólar á þjóð­ vegum þar sem ætlast er til þess að þessi nýju lög séu virt verða að koma á móts við bílaumferðina og hjóla ekki hlið við hlið, sérstaklega ekki þar sem komið er að blindhæð eða blindhorn er á vegi og líka þegar hvít óbrotin lína er á miðjum veginum. Flest hjólreiðafólk er til fyrirmyndar í umferðinni, hjólar í áberandi klæðnaði, með blikkandi ljós framan og aftan, en það má gera betur. Best væri ef sú vinna kæmi innan frá sem fræðsla frá hjólreiðamanni til hjól­ reiðamanns. Mótorhjólafólk er að átta sig á nauðsyn þess að vera sýnilegt Fáir vita það að hönnun blind horns­ vara í bílum er tilkomin vegna nei­ kvæðrar greina í mótor hjóla blöðum um ákveðna tegund bíla sem voru samkvæmt skoðanakönnun hættuleg­ astir mótorhjólamönnum í umferðinni vegna þess að þeir skiptu um akrein án þess að gæta nægilega að sér og úr var slys eða banaslys. Fyrir fjörutíu árum þegar ég var að byrja minn mót­ orhjólaferil var það nánast óskrifuð lög að klæðast öllu svörtu, en með árunum hafa mótorhjólamenn lært af biturri reynslu að vera í sýnileikafatnaði við akstur bifhjóla, það skilur á milli lífs og dauða. Það sem var „töff“ er nú „púkó“ og nú má sjá heilu flokka mótorhjólafólks ferðast um í gulum vestum við aksturinn. Gul blikkandi ljós í umferð Í síðustu viku var ég að keyra um Landeyjar og sá þar nokkra bændur í vorverkum á dráttarvélum út á þjóðvegum, var ánægður með að flestir voru með gul blikkandi ljós á hægfara dráttarvélunum. Það minnti mig á að fyrir nokkru las ég ástralska reglugerð um gul blikk­ andi varúðarljós á ökutækjum, en sú reglugerð fannst mér nokkuð áhugaverð lesning. Þar sagði m.a.: Blikkandi ljós í umferð má vera blikkandi ef ökutæki ekur á lægri hraða en almennur umferðarhraði er. Blikkljós á að slökkva sé ekið á sama hraða og önnur umferð. Gul blikkandi ljós má nota ef hæð er óvenjuleg, breidd meiri en almenn breidd ökutækja, eða ekið með hættulegan farm. Ef verið er að vinna í vegkanti með gul blikkandi ljós má aldrei keyra framhjá þeim hraðar en á um 40 km hraða. Svona ítarleg lesning um gul blikkljós er ekki til hér á landi, eina sem segir er að þau skuli vera gul, en nánast allir hér á landi eru með appelsínugul ljós. Smá aukalesning um þjófnað Þjófnaður á ýmsum eigum fólks hefur verið viðvarandi vandamál í nokkur ár og sjaldgæft er að maður lesi fregnir af þýfi sem finnst. Því miður virðist eins og að þjófnað­ armálum sé að fjölga. Á stuttu tímabili hef ég lesið um óæskilegar heimsóknir á sveitabýli þar sem verkfærum, reiðhjólum, bíl og fjórhjóli var stolið. Eitt besta ráðið er að koma upp myndavéla­ kerfi og læsa vel húsum, hjólum og öðru sem fólk veit að hætta sé að vera stolið. Til eru lásar sem gefa frá sér skerandi hátíðnitón í 90–110 db. Svona lás hefur gagn­ ast mér vel við að fæla frá óboðna gesti. Viðgerðir og sala á alternatorum og startörum í flestar gerðir bíla, báta og vinnuvéla. Hjólastillingar, úrval af ljósum á kerrur og eftirvagna, kerrutenglar, kaplar, perur og tengi. Sendum um allt land. www.pgs.is pgs@pgs.is s 586 1260 Viðarhöfði 1, 110 Reykjavík Alternatorinn eða startarinn bilaður? ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI KROSSGÁTA Bændablaðsins Lausn á krossgátu í síðasta blaði Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is Bænda Smáauglýsingar 56-30-300 MÁLMUR ARAGRÚI J SKIN L ANDÚÐ BINDING- UR VÉLA B SSKOTRAHARPIX K Á S K J Ó T A SLITRÓTT TAL YM R R A ÓFYRIR-SÉÐ Ó V Æ N T FMJÖLL Ö N LÆGJAUNNA M I L D A K ÍÞRÓTTSÆLGÆTI K E I L A LITBLÆR F K ÓYNDI LASTSKIPTA B A K T A L PINNI J TVEIR EINSALHEIM S S SAFNAHÖFGI JÍ RÖÐVANDRÆÐI N E L L A LÍNAVERKFÆRI T Ó ENDUR-TEKNING S T A G L FJÓRÐ-UNGURD R E I S N PRAKKARI P Ú K I TRÉDVELDU E I K ÞVAÐUR GLÆSI- LEIKI R I Ð L A FORLAG A VIÐ- BURÐUR FJÖLDI A T V I K V RUGLA RAUSA U Ð A FÝLAAÐFERÐ F Ú S S AGALÖGUNAR T E M J AT E I GILDINGFRÁ M A T ÓLMUR Æ F U R RYKKORNGÆLUNAFN A R K VEGG- HAMAR SLIT B E R G MONTA Á VÍXL G O R T A KANN TÓLAG I L U Ð ÍLÁT Á M U R KK NAFNTVEIR EINS U G G IB L L Ú I R T A L FÉLAG A F U I S R MATJURT M S A A HLAUP L G A E T LBLUNDA DAUF- LEGUR EKKI M Y N D : M IL O B O ST O C (C C B Y -S A 2 .0 ) H Ö FU N D U R B H • B R A G I@ TH IS .I S • K R O SS G A TU R .G A TU R .N ET 129 GIMSTEINN EFTIR- MYND ALDUR FÁTÆKRA-HVERFI UMTALS ANNÁLL GRÓÐUR- SÆLL GÓMA HLUT- DEILD GREIÐA RÍKI Í AFRÍKU HNETA TRAÐKAÐI VÉL SÍÐRI TÁTU HYLUR FLAGA Í RÖÐ NEISTI GRENND GAGN MERKIHÚRRA DRYKKUR UMBUN RÍKI Í V-AFRÍKU UMRÓT SÁR TVÍ- HLJÓÐI SKÓA HÖFUÐ- FAT KLÆÐI SÍÐARI ÞRÁTTA REIÐUR FUGL NÆÐA STÖÐUGT MATJURT KOLLUR ÚÐA VAFIN TALA RÍKI Í EVRÓPU AFKIMI FYRRUM MÝKJAST SPRIKLA LIÐUR ÞVOGL FLÍK EIND HÆÐ TÍMA- EINING ÁTT SAMLAGA DÝRA- HLJÓÐ FYRIR- GEFA KRYDD FJALLS- NÖF TÁR- FELLDU KVELJA M Y N D : W N IC K O W EN ( CC B Y -S A 4 .0 ) H Ö FU N D U R B H • B R A G I@ TH IS .I S • K R O SS G A TU R .G A TU R .N ET 130 Umferðin, holóttu vegirnir og hætturnar Bílstjóri sem situr við stýrið á þessum bíl sér ekkert þeirra mótorhjóla sem raðað hefur verið í kringum bílinn. Ekki mikill kostnaður í svona ljósi, en munurinn í sýnileika er mikill við að vera með ljósið blikkandi. Sá sem rændur er getur verið mjög lengi að ná sér eftir sálrænt áfall.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.