Bændablaðið - 20.05.2020, Qupperneq 28
Bændablaðið | Miðvikudagur 20. maí 202028
LÍF&STARF
Guðríður Eva Þórarinsdóttir er nýr dýralæknir á Flúðum:
Ætlaði sér alltaf að verða dýralæknir enda
með ólæknandi áhuga fyrir dýrum
Guðríður Eva Þórarinsdóttir
hefur nýleg stofnað sitt eigið
dýralækninga fyrirtæki, sem
sjálfstætt starfandi dýralæknir
með starfsaðstöðu á Flúðum.
Hún er fædd í Hrunamannahreppi
og býr á Flúðum með kærastanum
sínum, Jóni William. Guðríður Eva
er frá bænum Reykjadal sem er rétt
fyrir ofan Flúðir. Guðríður er elst
af fjórum systkinum og á þrjá yngri
bræður.
„Ég fór beint í Menntaskólann
að Laugarvatni eftir grunnskóla og
þaðan beint til Kaupmannahafnar í
dýralæknanám. Ég var rétt að verða
20 ára þegar ég flutti til Danmerkur
og hafði stundað alls konar sum
arvinnu og vinnu með skóla t.d.
garðyrkju, afgreitt í búðinni, verið
barþjónn á Útlaganum, unnið á
sambýli og í reiðskóla svo eitthvað
sé nefnt,“ segir Guðríður Eva.
Ekki erfið ákvörðun
Guðríður Eva segir það ekki hafa
verið erfiða ákvörðun að fara í
nám í dýralæknum og verða þar
með dýralæknir. Nei, ég man bara
aldrei eftir mér öðruvísi en að ætla
að verða dýralæknir. Ólæknandi
meðfædd dýrasýki hefur líklega
ráðið mestu þar um. Ég get því
ekki sagt að ákvörðunin hafi verið
erfið, en það var smá þröskuldur
að þurfa að fara utan í nám. Ég er
heimakær sveitastelpa og það var
aðeins út fyrir þægindarammann
að fara ein og flytja út. Ég lærði í
Kaupmannahöfn og námið tók mig
6 ár í það heila. Ég bjó úti í 5 ár
en var svo á Íslandi á meðan ég
skrifaði lokaverkefnið mitt.“
Dýralæknir í sjö ár
Guðríður Eva hefur starfað í sjö
ár sem dýralæknir. Frá því að hún
flutti heim vann hún á Dýralækna
miðstöðinni á Hellu í blönduðum
praksis. Veturinn 2013–2014 var
hún í hlutastarfi og með því skrifaði
hún lokaverkefnið sitt og var svo í
fullu starfi eftir að hún útskrifaðist
vorið 2014.
„Dýralæknamiðstöðinni á
Hellu var lokað í lok árs 2019 og
í framhaldi ákvað ég að fara út í
sjálfstæðan rekstur af því að mér
fannst það bara mjög spennandi
og ákvað því að taka stökkið og
prófa að sjá um mig sjálf. Það var
engin stofa á Flúðum eða hérna í
næsta nágrenni og þetta var því
bara spennandi tækifæri,“ segir
Guðríður Eva aðspurð af hverju
hún hafi ákveðið að fara út í sjálf
stæðan rekstur.
Fjölbreytt verkefni
Á Flúðum er Guðríður Eva með litla
dýralæknastofu þar sem hún er með
góða aðstöðu fyrir sig og það sem
starfseminni fylgir. Hún getur tekið
á móti smádýrum þar í daglegar
skoðanir, eftirlit og minniháttar
aðgerðir. Hún er líka með
smáverslun með gæludýrafóðri,
hestavörum og bætiefnum fyrir
kýr og kindur. Síðan er Guríður
Eva með vel búinn bíl og keyrir til
bænda sem eru með hross, kýr og
kindur.
Hún er líka með fínt hesthús
heima í Reykjadal þar sem hún
hefur tekið til sín hross, sem t.d.
slasast illa og þurfa að vera í langri
meðhöndlun. „Ég fer víða um
Suðurland í vitjanir, en er vissulega
mest hér í uppsveitum Árnessýslu.
Þó að starfsstöðin mín hafi flutt frá
Hellu og á Flúðir þjónusta ég enn
þó svolítið af fólki fyrir austan í
Rangárvallasýslu.“
Týpískur sveitadýralæknir
Þegar Guðríður Eva er spurð hvar
hennar svið liggi helst í dýralæknum
er hún fljót að svara.
„Já, ég er svona þessi týpíski
sveitadýralæknir í blönduðum
praksis. Sinni þessu öllu í bland,
hestum, kúm, hundum köttum
og sauðfé og fjölbreytileikinn er
einmitt það allra besta við starf
ið. Það leiðinlegasta við starfið
er að taka fastar hildir úr kúm en
það skemmtilegasta eru vorverk
in, sauðburðurinn og svo finnst
mér afskaplega gaman af öllu sem
tengist hryssunum; sónarskoðanir,
sæðingar og allt það sem viðkemur
ræktun og frjósemi hrossa. Það er
líka svo gaman fyrir hrossaræktar
áhugamanneskju eins og mig að
sjá öll folöldin, hitta ræktendur og
geta forvitnast undan hvaða hest
um þau eru. Þá fær maður oft hug
myndir um hvaða hesta maður vill
sjálfur nota á sínar hryssur,“ segir
hún og bætir við: „Í fyrra var ég í
fyrsta skipti í samstarfi með hjón
unum í Hemlu með sæðingarstöð
fyrir hryssur. Hulda Jónsdóttir,
þáverandi samstarfsskona mín
á Hellu, var með mér í þessu og
við sæddum um 80 merar við
stóðhestinum Ský frá Skálakoti,
það var ótrúlega skemmtilegt
starf. Við erum núna að undirbúa
okkur að byrja aftur á Hemlu og í
sumar verða tveir hestar í Hemlu,
Skýr frá Skálakoti og Pensill frá
Hvolsvelli.“
Vorið mikill álagstími
„Vorið er mikill álagstími hjá
dýralæknum, það er alltaf einhver
vinna við sauð
burð, nokkrir
keisaraskurðir og
burðarhjálp. Það
kemur líka törn í
folageldingum á
vorin og svo fara
folöld að fæðast og
allt sem tengist stóð
hestahaldi. Þetta er
vissulega mjög anna
samur tími en líka svo
ótrúlega skemmti
legur,“ segir Guð
ríður Eva þegar hún
var spurð um mesta
álagstíma dýralækna.
Dýrin eru uppáhalds áhugamálið
Guðríður Eva segir að þó það hljómi
kannski einkennilega þá séu dýrin,
hestar og hundar hennar aðaláhuga
mál.
„Við erum líka með litla hrossa
rækt og reynum að sinna hrossunum
og ríða út eins mikið og tími gefst til.
Svo eigum við 3 ástralska fjárhunda
og erum aðeins að fikra okkur áfram
í hundarækt líka. Svala, yngsta tíkin
okkar, er okkur fædd, en við vorum
með 8 hvolpa í fyrrasumar og héldum
henni eftir.“
Að lokum er vert að vekja
athygli á heimasíðu dýralækninga
þjónustu Guðríðar Evu en slóðin á
hana er www.dyralaeknirinn.com.
Á síðunni er hægt að finna allar
aðrar upplýsingar eins og símanúm
er, netfang og þess háttar hjá henni.
/MHH
Guðríður Eva vinnur mikið í tölvu við að sinna ýmsum erindum áður en hún fer í vitjanir á sveitabæi eða tekur á móti fólki með veik gæludýr á stofuna sína eða til að afgreiða í versluninni sinni.
Myndir / Magnús Hlynur Hreiðarsson
Guðríður hefur komið sér vel fyrir með stofuna sína á Flúðum í húsi sem
heitir Steðji en afi hennar heitinn var m.a. með starfsemi í húsnæðinu.
Gæludýraeigendur fá heilsufarsbók hjá Guðríði Evu þar sem heilsa dýranna
er skráð samviskusamlega í bókina.