Hvöt - 30.04.1949, Qupperneq 58
56
H V ö T
Meistarinn og
lærisveinninn
Portagóras var einn hinna frægu
lieimspekinga á 5. öld f. Kr. Einu
sinni kom til hans ungur piltur,
auðugur vel, og vildi nema af hon-
um heimspeki og' mælskufræði. Sá
hét Evaþlus. Þeir sömdu um
kennslugjaldið, og átti lielmingur-
inn að greiðast fyrirfram, en hinn
helmingurinn, þegar Evaþlus hefði
unnið fyrsta málið fyrir rétti.
Evaþlus var nú hjá Portagórasi
þar til hann var fullnuma. En hann
tók ekkert mál að sér og vann þar
af leiðandi ekkert mál, og ekki fékk
Portagóras kennslneyrinn, sem eft-
ir var.
En er tímar liðu, fór Portagóras
að lengja eftir kaupinu. Fór liann
lil fundar við Evaþlus og sagði við
hann: „Nii getur þii ekki sloppið
lengur við að greiða mér kennslu-
gjaldið, þvi að ég hefi ákveðið að
fara sjálfur i mál við þig. Ef þú
vinnur það mál, þá ert þú þar með
skuldhundinn til að greiða mér
kaupið, samkvæmt samningum, þar
sem þú liefur þá unnið mál. En
vinni ég málið, ert þú þar með
dæmdur til að greiða mér kaupið,
svo að þú kemst ekki á neinn veg
undan þessu“.
„Þetta er alls ckki svo,“ sagði
Evaþlus. „Þvi að vinni ég mál-
ið, þá segir dómurinn, að mér
beri ekki að borga, en tapi ég mál-
inu, þá he'fi ég enn ekkert mál unn-
ið, og er því samkvæmt samningn-
um ekki komið að gjalddaga. Mér
ber þvi í hvorugu tilfelli að borga.“
Aðalstjórn S.B.S. skipa:
FormaSur: Ingólfur A. Þorkelsson,
Varaformaður: Finnbogi Júlíusson,
Iðnskólanum.
Meðstjórnendur: Jón Bjarnason,
Samvinnuskólanum.
Sæmundur Kjartansson,
Hóskólanum.
Jón Norðdahl.
Ititnefnd Hvatar skipa:
Þorvarður Örnólfsson, Háskólanum.
Guðbjartur Gunnarsson, Kennarask.
Jón Bjarnason, Samvinnuskólanum.
PRENTAÐ í FÉLAGSPRENTSMIÐJU N NI H.F.
S M Æ L K I.
Kennarinn: „Hvers vegna kemurðu
svona seint, Pétur?“
Pétur: „Ég vaknaði ekki fyrr en
klukkan átta“.
Kennarinn: „Og hvað varstu
lengi að klæða þig?“
Pétur: „Tíu mínútur“.
Kennarinn: „Ekki er eg svo lengi
að klæða mig“.
Pétur: „Já, en ég þvoði mér nú
líka“.
S. B. S. hefur afhent B. Æ. B.
1600,00 kr. í æskulýðshallarsjóð.
Bindindisfélög Beykholts- og Laugar-
vatnsskóla söfnuðu 1500 kr. að til-
hlutan S. B. S., en auk þess sendu
skólabörn á Eyrarbakka 100 kr. til
form. S. B. S. og mæltu svo fyrir,
að fé þetta skyldi fat'a i æ'skulýðs-
hallarsjóð. Geri aðrir betur en börn-
in.
Stjórn S. B. 'S. færir þessum að-
ilum beztu þakkir. En betur má,
ef duga skal.
Herðum söfnunina.