Fjölrit RALA - 10.05.1988, Blaðsíða 92
88
grassins í tilraununum á Korpu. Er hún líklega réttari mælikvarði við samanburð á
áburðartímum en heyuppskeran því að slætti er að jafnaði heldur seinkað eftir því sem
seinna er borið á. Þá kemur í ljós að það er einungis í hlýjum vorum sem jafnvel hefur
gefist að bera á um 10. maí og um 25. maí, en í köldum vorum gefst seinni áburðartíminn
betur. í báðum tilfellum hefur hins vegar verið álíka óhagstætt að draga áburðardreifingu
fram um 10. júní. Hagkvæmasti dreifingartími er gefinn til kynna á myndinni og nær
hann yfir mun þrengra bil á köldu vori en hlýju.
Skiptingu áburðar, þar sem tún er tvíslegið, hefur varla verið gefinn sá gaumur sem
skyldi. Tilraunaniðurstöður hafa jafnan sýnt að heildaruppskera er svipuð hvort sem allur
áburður er borinn á að vorinu eða hluti hans er borinn á milli slátta, en nýting áburðar,
mæld sem upptaka, er heldur lakari ef áburði er skipt. Skipting uppskerunnar á slætti er
hins vegar ólík og áburður milli slátta hefur áhrif á gæði seinni sláttar. Tilraunaárangur
er nokkuð ólíkur eftir grastegundum. Vallarfoxgras virðist öðru grasi viðkvæmara fyrir því
að áburðardreifing dragist og áburður milli slátta skilar sér verr en hjá öðru grasi, enda
heldur það lengi áfram örri sprettu ef sláttur dregst. Það verður hins vegar á kostnað
heygæða.
Búveðurfræði
Vaxtarathuaun á kartðOum (RL 16)
Sturla Friðriksson og Tryggvi Gunnarsson
Um tveggja áratuga skeið, eða allt frá árinu 1967, hefur verið fylgst með þroskaferli
kartöflustofna á tilraunastöðinni að Korpu. Vaxtarmælingarnar má nota til samanburðar við
veðurfarsmælingar á staðnum.
Flest árin hefur útsæðið verið sett niður í garðlandið, sem er méluborinn
móajarðvegur, í fjórðu viku maímánaðar er hiti í 10 cm jarðvegsdýpt hefur náð um 6°C.
Hver stofn er settur niður í 24 reiti sem mynda tvær endurtekningar. Átta
útsæðiskartöflur (35 g) eru í tveimur röðum í hverjum reit, þannig að 30 cm bil er á milli
plantna og 60 cm milli raða. Borinn hefur verið á garðáburður sem samsvarar 2,7 tonnum á
hektara og oftast hefur illgresiseyði verið dreift á reiti áður en kartöflugrös koma í ljós.
Yfir sumarið er hæð kartöflugrasa mæld vikulega og uppskera grasa og kartaflna
vegin og þurrefni ákvarðað. Lengst af hefur Helgu-stofninn og Rauðar íslenskar kartöflur
verið í tilrauninni og á 17. mynd má sjá að mikill munur getur verið á uppskerunni frá
einu ári til annars. Þannig var uppskeran árið 1983 aðeins þreföld miðað við það sem niður
var sett en árið 1976 var uppskeran nær því fimm sinnum meiri en hún var í lakasta
árinu, eða fjórtánföld borið saman við það sem niður var sett.
Veðurfar pg bygg (RL 104)
Jónatan Hermannsson
Undanfarin sjö ár hefur röð þessara tilrauna verið gerð á fjórum stöðum og er
ætlunin að safna þannig upplýsingum um áhrif veðurfars á vöxt og þroska byggs. Sáð hefur
verið sex afbrigðum í tvo til þrjá samreiti á hverjum stað. Reitir hafa verið 0,45 m2 að
flatarmáli en sáð í þá korn fyrir korn, þannig að 5 sm hafa verið milli plantna á hvern
veg. Reynt hefur verið að sá og skera upp á sama tíma, hafa reitina á sama stað og gefa
þeim sama áburð ár frá ári. Uppskeran er svo mæld og metin á ýmsa vegu og verða þær
niðurstöður síðar notaðar til samanburðar við veðurfar hvers tíma.