Milli mála - 2019, Page 163
Milli mála 11/2019 163
Hólmfríður Garðarsdóttir
Háskóla Íslands
Um Alejandrinu Gutiérrez
Rithöfundurinn Alejandrina Gutiérrez fæddist árið 1948 í Managva, Níkaragva. Hún bjó um tíma í Venesúela en fluttist
til Kosta Ríka á unglingsárum og lagði stund á viðskiptafræði við
Háskóla Kosta Ríku (Universidad de Costa Rica). Hún hóf rithöf-
undarferil sinn í ritsmiðjum ungskálda (sp. tertulias literarias) og
smásagnaritun hefur ætíð verið hennar helsti birtingarvettvangur.
Smásögur Gutiérrez hafa meðal annars birst í safnritinu Relatos de
mujeres: Antología de narradoras de Costa Rica (Sögur kvenna: Safnrit
kvenrithöfunda frá Kosta Ríku), sem út kom árið 1993. Sagan „La
Giaconda“, sem hér er þýdd, er úr smásagnasafninu El jardín de la
osadía (Garður dirfskunnar) sem kom út árið 1998. Í sögunni tekst
uppburðarlítil kona á við kúgun og síendurtekið andlegt ofbeldi.
Smásagnasafn Alejandrinu Gutiérrez, La soledad no se ve en los espejos
(Einmanaleikinn sést ekki í speglum) kom út árið 2002. Þekktasti
rithöfundur Kosta Ríku, Carmen Naranjo, hefur látið þau orð falla
að í þessu safni takist Gutièrrez að gæða smásagnaformið nýju lífi.1
Höfundur samtvinnar háð og gagnrýni, persónulegar frásagnir og
samfélagsskoðun á nýstárlegan hátt þar sem hversdagslegt tungutak
tryggir ákveðna nánd lesenda við frásögnina. Víst er að í hverri sög-
unni á fætur annarri brosir lesandinn en meðtekur samtímis djúp-
stæða gagnrýni á samfélagsskipan og ekki hvað síst áhrif kaþólsku
kirkjunnar á hefðbundna hlutverkaskipan karla og kvenna.
1 Huellas ignotas: Antología de cuentistas centroamericanas (1991-2005), ritstjóri Willy O. Muñoz
Cadima, San José, Kosta Ríku, Ed. EUNED, 2009, bls. 309.