Bændablaðið - 10.09.2020, Síða 31
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 2020 31
Jörð til sölu
Til sölu er jörðin Reynhólar, Húnaþingi vestra.
Jörðin, sem staðsett er á austanverðum Hrútafjarðarhálsi, er talin
vera ca. 900 hektarar að stærð. Jörðin er mikið gróin og skjólsæl
og er í ca. 15 kílómetra fjarlægð frá Hvammstanga. Búskapur
hefur verið á jörðinni.
Á jörðinni er steinsteypt hlaða, byggð árið 1970,
steinsteypt fjárhús fyrir 450 fjár með vélgengum kjallara, byggð
árið 1978 og gamalt íbúðarhús frá árinu 1952.
Góð silungsveiði er í Grensvatni sem tilheyrir jörðinni.
Möguleiki er á heitu vatni frá nærliggjandi hitaveitu.
Óskað er eftir tilboðum í eignina en allar nánari upplýsingar
um eignina gefur Jóhannes Björnsson í síma 451-2910.
OPNUM NÝJA VERSLUN Á SELFOSSI
Rekstrarland | Austurvegi 69 | 800 Selfoss | 480 1306 | rekstrarland.is
REKSTRARLAND
Í Rekstrarlandi fást gæðavörur fyrir heimili, einstaklinga, fyrirtæki, iðnað, landbúnað og sjávarútveg. Rekstrarland – léttir þér lífið
OPIÐ
MÁN.–FIM. 8–18
FÖS. 8–17
því að eðlileg endurnýjun verði þar
og ungu fólki gert kleift að komast
inn í greinina.
Við erum hér langflest á Flúða
svæðinu sem erum í útiræktun á
Íslandi og eigum það flest sameig
inlegt að vera á sjötugsaldri. Ég
hef snarminnkað við mig að undan
förnu í umfangi og það sama á við
um fleiri hér,“ bætir hann við.
Góður meðbyr
með íslensku grænmeti
Þorleifur telur að stjórnvöld
þurfi að hjálpa áhugasömu fólki
betur að komast inn í greinina.
„Markaðurinn er fyrir hendi, góður
meðbyr með íslenska grænmetinu
og mikil jákvæðni í garð greinar
innar. Það eru örugglega einhverjir
sem vilja fara í þetta – en það er
nánast enginn möguleiki fyrir þann
til dæmis sem er nýútskrifaður úr
garðyrkjunámi en á ekki mikið fjár
magn til að hefja eigin ræktun og
rekstur. Núverandi nýliðunarstyrkir
eru mjög takmarkaðir og gera stífar
kröfur – eins og þetta blasir við mér
hafa þeir engan veginn virkað og
mér skilst að það sé afar sjaldgæft
að fólk fái fulla nýliðunarstyrki.
Á landinu eru mjög miklir
ónýttir möguleikar í útiræktun –
og reyndar líka í inniræktuninni.
Fólk er loksins farið að byggja og
stækka við sig, en óvissan um fram
tíðina og stuðning ríkisins var of
mikil til að fólk hætti sér út í miklar
fjárfestingar.
Nýr samningur ríkisins við garð
yrkjuna leysti úr læðingi uppsafn
aða þörf til að byggja því það hafði
lengi legið ljóst fyrir að eftirspurn
in var til staðar.
Vonandi mun það sama vera
upp á teningnum með útiræktunina
og hún muni aukast og dafna um
ókomin ár.“ /smh
Sólskinstómatarnir frá Hverabakka eru vinsælir.
Nýuppskornir blómkálshausar á leið til neytenda.
Sýningarvél til sölu
Grafa á
gamla genginu
kr. 4.399.000
án.vsk
Kato HD27 V4
ÁSAFL
Ásafl ehf.
Hjallahrauni 2 220 Hafnarfirði
Sími: 562 3833
Opið 8:30 - 17 virka daga
asafl@asafl.is asafl.is
•Vél Shibaura 13,6KW
•Þyngd 2805kg
•Ökumannshús með miðstöð og útvarpi
•Gúmmíbelti: Bridgestone
•1300mm dipper (long arm)
•Ýtublað 1550mm x 380mm
•Vökvalagnir fyrir aukabúnað
•Hraðtengi (handvirkt): Cangini
•3x skóflur: 330mm, 600mm & 1000mm
•Ljós og blikkljós
Bænda
bbl.is Facebook