Bændablaðið - 05.11.2020, Síða 26

Bændablaðið - 05.11.2020, Síða 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. nóvember 202026 LÍF&STARF Hacking Hekla lausnamót – matarfrumkvöðlar tókust á við áskoranir á Suðurlandi: Frumuræktun ávaxta, mjólkurbíll og matarsóun – Á næsta ári verður einnig keppt með slíkar nýsköpunarhugmyndir á Vestfjörðum og á Norðurlandi Hacking Hekla, svokallað lausn- amótið (hackathon) fyrir lands- byggðina, var haldið helgina 16.–18. október á Suðurlandi. Þetta er fyrsta lausnamótið af fleirum slíkum sem fyrirhuguð eru víðs vegar um landið og ganga út á að þróa lausnir fyrir tilteknar áskoranir tengdar mat- vælaframleiðslu sem landsbyggðin þarf að takast á við. Frumkvöðlar unnu þá með hugmyndir varðandi sjálfbærni í matartengdri nýsköp- un. Vinningshugmyndin heitir Ómangó og gengur út á óhefð- bundna framleiðslu suðrænna ávaxta, þar sem þeir eru ræktaðir með frumuræktun í stað plöntu- ræktunar upp frá fræi. Þessi fyrsti viðburður var haldinn í samstarfi við Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) og Nordic Food in Tourism og var unnið með sjálfbærni í matartengdri nýsköpun. Lausnamótin ganga út á snarpar vinnulotur – gjarnan 24 til 48 klukku- tíma. Níu teymi voru skráð til leiks sem þróuðu áfram sín verkefni og kynntu fyrir dómnefnd. Kemur upp úr rannsókn á nýsköpun á landsbyggðinni Fyrirbærið „Hacing Hekla lausn- amót“ er runnið undan rifjum Magdalenu Falter og doktorsverk- efni hennar, þar sem hún rannsakar nýsköpun á landsbyggðinni. Til að hrinda verkefninu í framkvæmd fékk hún til liðs við sig verkefnastjórann Svövu Björk Ólafsdóttur, sem hefur góða reynslu úr stuðningsumhverfi frumkvöðla og hefur stýrt öðrum lausnamótum. „Við tökum stefnuna á Vestfirði og Norðurland á næsta ári og vonandi klárum hringinn 2022–2023. Við erum á fyrstu stigum í viðræðum við samstarfsaðila á svæðunum fyrir næsta ár, segir Svava. „Við munum þróa fókus hvers lausnamóts með samstarfsaðilum á hverju svæði en höfum orðið vör við mikinn áhuga fyrir því að halda í matartenginguna,“ bætir hún við. Í næstu sætum á eftir Ómangó voru verkefni sem snúa annars vegar að því að endurvekja hlutverk mjólkurbílsins og hins vegar að minnka matarsóun. Í öðru sæti var Mjólkurbíllinn, en hugmyndin er að með því láta hann ganga í endur- nýjun lífdaga – sem mikilvægan samfélagslegan hlekk – megi nota hann til að tengja framleiðendur og frumkvöðla betur saman við neyt- endur. Í þriðja sæti var verkefnið Leifur Arnar, þar sem lagt er upp með að minnka matarsóun á þeim hlekkjum virðiskeðjunnar þar sem fyrirtæki liggja. Vandamálið verð- ur leyst með smáforriti og miðlægu svokölluðu uppvinnslueldhúsi – sem leggur heildsölum og stórverslunum lið með því að gefa matvörunum, sem eru renna út á tíma, annað tækifæri. Veflægt lausnamót og Hugmyndaþorp „Vegna COVID-19 fór lausnamótið alfarið fram á netinu og nýttu þátt- takendur nýja samsköpunar lausn „Hugmynda þorpsins“ –hugmynda- þorp.is – við þróun verkefnanna. Arnar Sigurðsson frá sprotafyrirtæk- inu Austan mána þróar lausnina sam- hliða Hacking Hekla lausnamótinu. „Á þeim tímum sem við lifum verður sífellt mikilvægara að virkja krafta úr sem flestum áttum samfélagsins inn í nýsköpun og þróun sem getur tekist á við áskoranir framtíðar. Með hugmyndaþorpinu er sköpunarferlið gert opið, gagnsætt og hvetjandi. Það var frábært að sjá Hugmyndaþorpið lifna við með þátttakendum Hacking Hekla. Inni í því deildu þátttakendur vandamálum, hugmyndum og verk- efnum og lögðu grunn að opnu vist- kerfi nýsköpunar fyrir Suðurlandið,“ segir Svava. Mögulegt er að skoða verkefnin sem tóku þátt í lausna- mótinu inni á vef Hugmyndaþorpsins; hugmyndaþorp.hackinghekla.is. Ráðgjöf í boði Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga Þátttakendum verður í kjölfarið boðið upp á vinnusmiðju um næstu skref og hvert teymi fær þar að auki ráðgjafar- tíma með ráðgjöfum SASS. Ingunn Jónsdóttir, ráðgjafi hjá SASS, segir að þau séu virkilega ánægð með hvernig til tókst um þessa helgi og þau hlakki til að sjá sem flest af þessum ver- kefnum verða að veruleika. Þeirra framlag verði því að veita þessa ráðgjöf. Nordic Food in Tourism er nor- rænt samstarfsverkefni sem er ætlað að vekja athygli á þeim verðmæt- um sem liggja í staðbundinni mat- vælaframleiðslu og matargerð bæði fyrir heimamenn og erlenda gesti. Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, sem starfar hjá Nordic Food in Tourism og hjá Íslenska ferðaklasanum segir að hún hafi orðið vitni að mikilli sköpunargleði og krafti þessa helgi, þar sem fólk vann að hugmyndum sínum af miklum eldmóði. „Það er einstakt að fá tækifæri til að kynnast þessum hugmyndum og eldhugun- um á bakvið þær og vettvangur eins og Hacking Hekla gefur þessum aðilum tækifærið á að miðla, læra og þróa hugmynd að raunverulegri þjónustu eða vöru,“ segir hún um verkefnið. Leitað að samstarfsaðilum á Vestfjörðum og Norðurlandi Að sögn Svövu er Hacking Hekla lausnamótið nú formlega farið af stað á ferðalagi sínu um landið og leitar að samstarfsaðilum á Vestfjörðum og Norðurlandi. „Markmið Hacking Hekla er að draga fram í sviðsljósið það öfluga frumkvöðlastarf sem á sér stað á landsbyggðinni og tengja saman frumkvöðlasenurnar í dreif- býli og þéttbýli á Íslandi. Sömuleiðis á verkefnið að virkja skapandi hugsun og styðja við nýsköpun og fjölgun atvinnutækifæra á svæðinu,“ segir Svava. Á lausnamótinu (hackathon) Hacking Hekla á Suðurlandi sem haldið var á dögunum bar verk- efnið Ómangó sigur úr býtum. Það snýst um framleiðslu á suðrænum ávöxtum með frumuræktun, ólíkt hefðbundinni ræktun sem felst í plönturæktun upp frá fræi. Fjallað er um fyrirbærið Hacking Hekla hér neðar á síðunni. Tveir frumkvöðlar eru skráð- ir fyrir hugmyndinni Ómangó; James Edward MacDaniel, sem er hugmyndasmiðurinn með garð- yrkjubakgrunn, og hönnuðurinn Hafsteinn Regínuson er með honum í teyminu. James segir að Ómangó-hug- myndin byggi á núverandi tækni sem er aðlöguð að íslenskum aðstæðum. „Margir hafa heyrt um kjöt sem er ræktað á rannsóknar- stofu. Ómangó notar svipaða hugmynd, en í stað þess að rækta kjöt myndum við rækta ávexti. Hugmyndin er að rækta ávexti með frumuræktun og við munum nota til þess hátæknivædda ræktunar- tanka. Í þessum ræktunartönkum eru ákveðin næringarefni fóðruð og flókin kolvetni með náttúruleg- um vaxtarhvötum – sem eru með endalausum möguleikum á tegund- um ávaxta. Þú velur bara hvaða ávaxtafrumur þú vilt rækta.“ Svipað skipulag og í brugghúsi „Þetta getur fræðilega verið hvaða hluti plöntunnar sem er – ekki bara ávextir. Við munum hins vegar einbeita okkur að framandi ávaxtafrumum sem hágæða matvöru og erfitt væri að rækta í venjulegum gróðurhúsum hér. Innan stýrðs umhverfis ræktunartanksins viðheldur þú fullkomnum aðstæðum sem frumurnar þurfa til að vaxa og deila sér á sama hátt og þær myndu gera í náttúrunni en án þess að þurfa heila plöntu. Án þess að verða of tæknilegur er hægt að hugsa um þetta svipað og skipulag í brugghúsi. Þegar þú býrð til bjór bætirðu innihaldsefnum þínum í lokaðan tank og lætur nátt- úruna fara að vinna að því að breyta sykri og öðru efni í alkóhól. Helsti munurinn á ætri frumuræktun er að þú breytir flóknum sykrum og nær- ingarefnum í lifandi plöntufrumur með því að þvinga frumuskiptingu og margföldun. Einnig á einu stigi þarftu að bjóða upp á ljósstyrk sem hæfir vaxtarplöntum, eitthvað sem við höfum mikla reynslu af í gróð- urhúsaræktuninni hér á Íslandi. Það þyrfti bara að laga það til að vinna með ræktunartanka til að fá sem mest út úr því. Þannig að þú hefur þekkt inntak og framleiðslan felst í ferskum plöntufrumum. Síðan væri hægt að vinna þær á marga vegu, svo sem að nota þær í smoothie eða ís, vinna safa eða jafnvel Magdalena Falter, Arnar Sigurðsson og Svava Björk Ólafsdóttir. Sigurður Már Harðarson smh@bondi.is James Edward McDaniel telur að rannsóknarvinnan muni taka fjögur til fimm ár áður en hægt verði að þróa ávaxtavörur út úr verkefninu Ómangó. Lifandi mangófrumur sem James skoðaði á dögunum á rannsóknarstofunni. Vinningshugmyndin á Hacking Hekla heitir Ómangó: Frumuræktun suðrænna ávaxta – Sigurvegarinn segir aðferðina vel þekkta og eiga mikla möguleika á Íslandi

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.