Bændablaðið - 05.11.2020, Blaðsíða 45

Bændablaðið - 05.11.2020, Blaðsíða 45
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. nóvember 2020 45 Aðalfundur Hvanneyrarbúsins ehf. 2020 var haldinn þann 27. maí sl. Formaður félagsins er Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands. Aðrir stjórnarmenn eru Baldur Helgi Benjamínsson, búfjár erfðafræðingur og bóndi á Ytri-Tjörnum í Eyjafirði og Pétur Diðriksson, bóndi á Helgavatni í Þverárhlíð. Bústjóri er Egill Gunnarsson og fjósameistari er Hafþór Finnbogason. Fundar gerðir stjórnarfunda, ársreikningar og skýrslur stjórnar eru birtar á heimasíðu Landbúnaðarháskóla Íslands, www.lbhi.is. Fyrirmyndar afurðasemi og mjólkurgæði Tilgangur félagsins er að reka á hagkvæman hátt kúabú á Hvanneyri í þágu kennslu og rann- sóknastarfs Landbúnaðarháskóla Íslands. Innlögð mjólk árið 2019 var 558.041 lítrar og er það met í sögu búsins. Fituhlutfall var 3,99% og próteinhlutfall 3,26%, margfeldismeðaltal líftölu var 13 og mfm frumutölu 117. Hlutfall fitu og próteins stóð í stað frá fyrra ári, og sama má segja um líftölu og frumutölu. Árskýr á búinu voru 73,8 sem að meðaltali skiluðu 8.262 kg mjólkur, með 4,1% fitu og 3,34% próteini. Búið er hið 8. afurðahæsta á landinu á alman- aksárinu 2019, mælt í kg mjólkur/ árskú. Gæði og magn afurða er því til stakrar fyrirmyndar. Tún, engjar og grænfóðurakrar eru um 170 ha. Rekstur samkvæmt áætlun Rekstur félagsins gekk með ágætum á árinu 2019 og var hann í samræmi við þær áætlanir sem stjórnendur félagsins lögðu upp með. Heildartekjur félagsins voru 96,8 m.kr., en gjöld fyrir fjármagnsliði voru 86,5 m.kr. Hagnaður félagsins á árinu eftir fjármagnsliði var 9,3 m.kr. Stjórn leggur til að hagnaður félagsins leggist við eigið fé þess. Áætlun yfirstandandi árs gerir ráð fyrir tekjuafgangi þannig að halda megi áfram að byggja upp eigið fé félagsins, búa í haginn fyrir nauðsynlega endurnýjun á tækjum, búnaði og ræktun, ásamt því að efla fjárhagslegan styrk Hvanneyrarbúsins. Eigið fé félagsins jókst um tæpar 10 milljónir kr á árinu og nemur það nú 36,1. m.kr. Eins og sjá má á myndunum hér að neðan, hefur afkoma félagsins verið góð undanfarin ár og eigið fé vaxið ár frá ári. Helstu fjárfestingar félagsins á liðnu ári voru afrúllari framan á fjósvél til gjafa, notaður sturtuvagn ásamt lengingu, holdstigunarmyndavél, notuð varnarefnadæla, beiðslisgreinar, sjálfvirkur fóðursópur, en síðast en ekki síst var skipt um sköfukerfi í helmingnum af fjósinu og fyrirhugað er að klára að skipta út seinni helmingnum á næstunni. Rekstraröryggi nýja sköfukerfisins er stórum meira en þess gamla og orkunotkunin brot af því sem áður var. Ekki var heldur slegið slöku við í ræktun og fjárfest dyggilega þar eins og síðustu ár í endurræktun túna og viðhaldi framræslu. Fóðursópurinn var settur upp haustið 2020 og virkar eins og til er ætlast. Uppbygging á tilraunaaðstöðu Stjórn leggur áfram áherslu á upp- byggingu á aðstöðu og búnaði Hvanneyrarbúsins til að viðhalda og bæta aðstöðu til rannsókna og tilrauna. Tilboða hefur verið leitað til endurnýjunar á mjaltabúnaði og mjólkurtanki. Sótt var um styrk fyrir kjarnfóðurbás sem mælir met- anlosun. Loks hafa sérfræðingar Landbúnaðarháskólans unnið að tillögum um að koma upp góðri og viðunandi rannsóknaraðstöðu fyrir einstaklingsfóðrunar-, fóðurverk- unar-, umhverfis- og velferðartil- raunir sem tengjast nautgriparækt. Skráning vinnutíma starfsmanna Hvanneyrarbúsins er unnin á nokk- uð nákvæman hátt og stefnt er að því að vinna upp úr henni gögn um vinnuframlag og launakostnað í mjólkurframleiðslu en einu fyrir- liggjandi gögn nautgriparæktarinnar þar að lútandi eru meira en 20 ára gömul. Skráningin gefur enn frem- ur möguleika á því að meta með nokkurri nákvæmni rekstrarhag- kvæmni nýframkvæmda og kaupa á búnaði. Landbúnaðarháskólinn er að efla aðstöðu sína í jarðrækt og má ætla að rannsóknir munu aukast á næstu misserum á því sviði. Hafa skólanum borist höfðinglegar gjafir sem nýtast til uppbyggingar á jarðræktarrann- sóknum. Þá verður hugað að aukinni sjálfbærni og samstarfsverkefnum við skólann á því sviði. Sameining Hvanneyrarbúsins og Hestbúsins? Á síðasta aðalfundi félagsins voru kostir og gallar þess að reka Hvanneyrarbúið og Hestbúið í sama félagi ræddir. Ýmis tækifæri felast í því fyrir skólann að auka samrekstur búanna. Búin hafa áfram verið rekin í sitt hvoru lagi en aukin áhersla lögð á samstarf og samlegðaráhrif milli þeirra. Málið er áfram til umræðu í stjórn Hvanneyrarbúsins. Breyting á starfsmannahaldi Nýr fjósameistari, Karl Vernharð Þorleifsson, var ráðinn til starfa á vordögum og er hann boðinn velkominn til Hvanneyrarbúsins. Stjórn Hvanneyrarbúsins ehf. þakkar starfsmönnum búsins fyrir samstarfið á árinu og óskar þeim til hamingju með góðan árangur í búrekstrinum. Starfsmönnum Landbúnaðarháskólans er einnig þakkað fyrir ánægjuleg samskipti á árinu. Sérstakar þakkir eru færðar til fráfarandi fjósameistara, Hafþórs Finnbogasonar, sem lét af störfum 1. júní sl. eftir 5 ára farsælt starf. /BHB Búvélar er umboðsaðili Massey Ferguson buvelar.is Kynningarafsláttur á heyvinnutækjum! Austurvegi 69 // 800 Selfoss // 480 0400 // buvelar.is Á FAGLEGUM NÓTUM Hvanneyrarbúið byggir upp til framtíðar Egill Gunnarsson bústjóri t.v. þakkar Hafþóri Finnbogasyni samstarfið en hann lætur af störfum sem fjósameistari eftir farsæl fimm ár í starfi. Rekstur félagsins gekk með ágætum á árinu 2019 og var hann í samræmi við þær áætlanir sem stjórnendur félagsins lögðu upp með. Heildartekjur félagsins voru 96,8 m.kr., en gjöld fyrir fjármagnsliði voru 86,5 m.kr. Hagnaður félagsins á árinu eftir fjármagnsliði var 9,3 m.kr. Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 KEÐJUR OG KEÐJUVIÐGERÐAREFNI GOTT ÚRVAL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.