Bændablaðið - 05.11.2020, Blaðsíða 34
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. nóvember 202034
MENNING&MINNJAR
Sel og selstöður í Dýrafirði
Fyrr á öldum tíðkaðist að hafa
búfé í seli fjarri heimabæ, bæði
til þess að hlífa heimalöndum
við beit en ekki síður til þess að
nýta kostamikil en fjarliggjandi
beitilönd. Mjólkin var afurðin
sem öllu skipti. Þess vegna er víða
gengið fram á minjar um sel.
Í berjaferð í septemberbyrjun
árið 1978 skoðaði ég selið frá
Kirkjubóli í Dýrafirði betur en ég
hafði gert í þeim mörgu ferðum
sem ég hafði átt framhjá selinu á
bernsku- og unglingsárum. Söguna
má gera stutta: Úr þessari athugun
varð dálítið ætlunarverk, sem nú er
loks lokið, ríflega fjórum áratugum
síðar. Sem hjáverk og tómstundaiðju
tók ég það fyrir að ganga á sem flest
þekkt sel við Dýrafjörð, mæla þau,
mynda og athuga umhverfi þeirra,
leita heimilda um selin og loks að
taka saman rit um niðurstöðurnar.
Aukaafurð verksins urðu útivera
svo og líkamsrækt því allnokkrir
göngukílómetrar hafa verið lagðir
að baki.
Árangur seljaathugana minna
hefur nú verið birtur sem rit nr. 131
frá Landbúnaðarháskóla Íslands
en stofnunin var svo vinsamleg að
gefa verkið út þótt ég sé ekki lengur
starfsmaður hennar. Ritið má finna í
heild sinni á www.lbhi.is/rit_lbhi_1
Hér verður ekki sagt frá
niðurstöðum, aðeins stiklað
á fáeinum efnisatriðum: Við
Dýrafjörð töldust vera 43 jarðir
skv. Jarðabók Árna Magnússonar
og Páls Vídalín frá 1710. Mér telst
til að einhverjar minjar um sel sé
að finna á 36 þeirra, og á sumum
jarðanna hafa selin verið tvenn –
og hugsanlega fleiri. Síðustu selin
í Dýrafirði voru aflögð fyrir 130-
140 árum svo munnlegar heimildir
um þau voru orðnar mjög fáar. Að
langstærstum hluta eru það því
sjáanlegar tóftir og mannvirkjaleifar
sem eru til vitnis um selin og
seljabúskapinn.
Dýrfirsku selin liggja, með
tveimur undantekningum, á
framdölum; voru þannig útstöðvar
frá heimabýlunum. Af staðsetningu
þeirra má raunar greina glögga
skiptingu gróðurlendis jarðanna
í tvennt: húshaga og selhaga. Að
meðaltali hefur verið um 40 mín.
gangur á selin. Tóftir seljanna, sem
margar hverjar eru enn vel sýni-
legar, bera með sér að mikið hefur
verið borið í margar þeirra. Auk
kvía og leifa af smalakofum virðast
á sumum seljanna hafa verið ein-
hvers konar hús til dvalar og starfa:
viðlegustaðir um seljatímann (júlí
– ágúst/sept.). Á öðrum seljum var
sýnilega minna umleikis – að selin
hafi nánast verið sem stekkir, enda
sum aðeins stekkjarveg frá bæ.
Bæði seljamannvirkin og heimildir
gáfu til kynna að selmannvirkin hafi
einnig verið notuð til búfjárhalds
á öðrum tímum ársins, svo sem
vegna haustbeitar sauðfjár, sauða-
beitar á útmánuðum og umönnunar
fjár á vorum. Það er líkleg skýring
á því hve mikið hefur verið lagt í
byggingu selhúsanna.
Selin og selstöðurnar voru þannig
liður í skipulegri landnýtingu,
með verklagi sem átti sér meðal
annars stoð í elstu lögum landsins.
Í Grágás, lagasafni íslenska þjóð-
veldisins, voru skýr ákvæði um
sel og selfarir. Búhátturinn sjálfur
á sér eldfornar rætur, líklega allt
aftur til tíma hjarðmennsku. Hann
var og er vel þekktur í Noregi, á
Bretlandseyjum og í Færeyjum,
kominn til þessara svæða sunnan
úr fjalllöndum Evrópu, þar sem
hann þekkist enn. Landnámsbændur
báru verkháttinn með sér, sem síðan
hefur breyst og þróast margvíslega,
allt eftir náttúrulegum aðstæðum í
hverri sveit, sem og félagslegum
skilyrðum einnig, svo sem mannafla
og ábúðarháttum, auk árferðis.
En svo lagðist seljabúskapurinn
af hérlendis, virðist raunar hafa
risið og hnigið í aldanna rás. Um
það vitna t.d. Fornuselin sem
svo heita á nokkrum jörðum við
Dýrafjörð. Hvað selin þar varðar
virðist vinnuaflsskortur hafa valdið
aflögn síðustu seljanna: Það fengust
ekki selráðskonur eða smalar. Má
vera að fólki hafi þótt starfinn í
seljunum erfiður og einmanalegur,
jafnvel þótt reynt væri að þyrpa sel
nágrannabæja í seljaþorp, svo sem
sjá má dæmi um í Keldudal og á
Hjarðardal – að skapa selfólkinu
sel-skap!
En svo breyttust nýtingarhættir
sauðfjár. Fráfærum, mikilvægri
forsendu seljabúskaparins, var
hætt, kýrnar einar lögðu til mjólkina
en ærnar fengu að annast lömbin
sín ótruflaðar sumarlangt. Sel og
stekkir urðu að hverfandi minjum.
Bjarni Guðmundsson
Seljaminjar í Haukadal skráðar sumarið 2012. Sigrún Guðmundsdóttir á Kirkjubóli aðstoðar höfund við verkið.
Selið frá kirkjustaðnum Söndum, á Galtadal, virðist hafa verið þrískipt með
eins konar bakhýsi; mjaltakvíin skammt undan.
Leifar hlaðs – sauðabyrgis – og sennilega einnig sels á Birnustöðum, næstysta bæ við norðanverðan Dýrafjörð.
– Steinsagir, kjarnaborvélar, gólf- og vegsagir
MHG Verslun ehf | Víkurhvarf 8 | 203 Kópavogi | Sími 544-4656 | www.mhg.is
ALLT FYRIR ATVINNUMANNINN
HUSQVARNA
FS 400 LV
Sögunardýpt 16,5 sm
HUSQVARNA
K 770
Sögunardýpt 12,5 sm
HUSQVARNA
K 2500
Sögunardýpt 14,5 sm
HUSQVARNA
DM 230
HUSQVARNA
K 3600 MK II
Sögunardýpt 27 sm
HUSQVARNA
Steinsagarblöð
og kjarnaborar