Bændablaðið - 05.11.2020, Page 35

Bændablaðið - 05.11.2020, Page 35
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. nóvember 2020 35 Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 SÍUR Í DRÁTTARVÉLAR Finna má upplýsingar um eignirnar inn á heimasíðu Ríkiskaupa www.rikiskaup.is Urðarvegur 54, 400 Ísafjörður, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar- og sameignarréttindi. Birt stærð 195,7 m2. Stórt og rúmgott endaraðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr og fallegu útsýni. Nánari upplýsingar á heimasíðu Ríkiskaupa: www.rikiskaup.is Verð: 45 mkr. Urðarvegur 54, 400 Ísafirði © Vemaps.com Allar nánari upplýsingar veita starfsmenn Ríkiskaupa í síma 530 1400 eða í gegnum netfangið fasteignir@rikiskaup.isBorgartúni 7c, 105 Reykjavík | Sími 530 1400 | www.rikiskaup.is RÍKISKAUP KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10 104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is Opnar stöðvar Stöðvar í húsi Stöðvar í gám Aukabúnaður eins og sjálfvirkur skiptirofi og fleira Öflug og góð þjónusta Gerðu kröfur — hafðu samband við Karl í síma 590 5125 eða sendu línu á kg@klettur.is og kynntu þér þína möguleika. Allar stærðir af AJ Power rafstöðvum: Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300 HROSS&HESTAMENNSKA Aukin eftirspurn eftir hrossum Sveinn Steinarsson, formaður Félags hrossabænda, segir horfur í greininni góðar og bjartsýni ríki meðal hrossabænda þrátt fyrir að kórónuveirufaraldurinn hafi sett ýmislegt úr skorðum í starfseminni. Öflugt markaðsstarf sé að skila sér í gegnum Horses of Iceland-verkefnið þar sem vöxtur hafi verið í útflutningi og þrátt fyrir ástandið hafi náðst að halda allar kynbótasýningar í sumar eins og til stóð. „Þetta hefur vissulega áhrif í okkar ranni eins og annars staðar, þar sem þurfti til dæmis að aflýsa landsmóti. Á landsmótsárum hefur alltaf verið kippur í sölu á hrossum og það að við þurftum að aflýsa hafði líka áhrif á margs konar þjónustu sem hrossabændur eða hestaferðaaðilar hafa verið að veita í kringum mótið. Við vonumst til að mótahald verði komið í eðlilegt horf næsta sumar, landsmótinu var frestað um tvö ár en stefnt er á að halda Heimsmeistaramót íslenska hestsins og Íslandsmótið á næsta ári,“ segir Sveinn og bætir við: „Ljósi punkturinn er þó sá að við náðum að halda allar kynbótasýningar í sumar eins og til stóð svo það starf varð ekki fyrir neinni röskun, sem var afar mikilvægt. Félag hrossabænda stóð fyrir landssýningu kynbótahrossa þar sem komu öll kynbótahross sem annars hefðu verið á landsmótinu í sumar, viðburðinum var streymt og var tekið upp svo urðu til heimildir til jafns við það sem hefði gerst að öllu jöfnu. Það er mikilvægt að það sé samfella í upplýsingum og það tókst í sumar. Í haust stefnum við síðan á að vera með ráðstefnu fagráðs sem verður rafrænn viðburður, við tökum hann upp og sendum út þar sem við veitum viðurkenningar fyrir árangur á árinu.“ Markaðsstarfið er langhlaup Líkt og kom fram í síðasta Bændablaði hefur verið vöxtur í útflutningi á hestum og stefnir í sögulega gott ár þrátt fyrir COVID-19. „Það er ánægjulegt hvað vel hefur gengið að selja hross á þessu ári og virðist það eiga við bæði sölur hér innanlands og eins erlendis. Það er alveg ljóst að fleiri hross væru að seljast ef kaupendur væru að koma til landsins og á það kannski sérstaklega við um dýrari hrossin sem væntanlegir kaupendur vilja prófa áður en kaup eru gerð. Það er búinn að vera vöxtur í útflutningi undanfarin ár þannig að árangurinn í ár er í góðu framhaldi af því og væri ánægjulegt ef við færum yfir 2.000 hross í ár,“ útskýrir Sveinn og segir jafnframt: „Hrossin fara víða um heiminn og er það eitt af því sem endurspeglar áherslur í því markaðsstarfi sem við höfum stundað undanfarin ár. Í mínum huga er alveg á hreinu að áhrif af markaðsverkefninu Horses of Iceland (HOI) er að skila sér, verkefnið er markvisst í markaðssetningu sem er algert lykilatriði. Kynning á hestinum og hestamennskunni er það sem mun standa með okkur í framtíðinni ásamt því að bæta okkur enn frekar í ræktun á reiðhestum sem þurfa að vera umfram allt ganggóðir og traustir. Við erum orðin fullkomlega meðvituð um að markaðsstarf er langhlaup, ekki bara þátttaka í einskaka viðburðum og sýningum.“ 55 milljónir birtinga „Sem betur fer höfum við haft góðan skilning hjá ráðherrum landbúnaðarmála á markaðsstarfi okkar en aðkoma ríkisins ásamt samstarfi við Íslandsstofu eru alger forsenda verkefnisins. Fjöldi aðila úr ólíkum áttum hafa komið að verkefninu. Félag hrossabænda og L a n d s s a m b a n d hestamannafélaga hafa verið kjarnaaðilar i þessu verkefni enda styður starf HOI á mjög margan hátt við starf þessara félaga. Við horfum vongóð til þess að við fáum nýjan samning við ríkið enda mikilvægt að sú þekking og fjárfesting sem þegar er í verkefninu glatist ekki. Við eigum í frábæru samstarfi við Íslandsstofu þaðan sem verkefninu er stýrt af Jelenu Ohm og í mínum huga er ekki spurning að kynningar- og markaðsstarf með hestinn eigi best heima þar enda mikil samlegð við að kynna hestinn, landið og tækifærin á Íslandi samtímis. Jelena rakti vel í síðasta Bændablaði hvað við höfum helst verið að fást við en gríðarlegt verðmæti er orðið i markaðssetn- ingu í gegnum samfélagsmiðla og eru birtingar þar 55 miljónir frá því verkefnið hóf sitt reglulega starf en nokkurn tíma tók að koma verkefn- inu á þann stað sem það er í dag. Við hrossabændur vonum að aukin eft- irspurn eftir hrossum og þá ekki síst eftirspurn eftir venjulegum reiðhest- um, sem oft hefur gengið treglega að selja, endurspegli fjölgun í röðum hestamanna og muni þá skila sér í betri afkomu til framtíðar.“ /ehg Sveinn Steinarsson, formaður Félags hrossabænda.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.