Bændablaðið - 05.11.2020, Blaðsíða 35
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. nóvember 2020 35
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
SÍUR Í
DRÁTTARVÉLAR
Finna má upplýsingar um eignirnar inn á heimasíðu Ríkiskaupa www.rikiskaup.is
Urðarvegur 54, 400 Ísafjörður, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið
tilheyrandi lóðar- og sameignarréttindi. Birt stærð 195,7 m2.
Stórt og rúmgott endaraðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr og
fallegu útsýni.
Nánari upplýsingar á heimasíðu Ríkiskaupa: www.rikiskaup.is
Verð: 45 mkr.
Urðarvegur 54, 400 Ísafirði
© Vemaps.com
Allar nánari upplýsingar
veita starfsmenn Ríkiskaupa
í síma 530 1400 eða í
gegnum netfangið
fasteignir@rikiskaup.isBorgartúni 7c, 105 Reykjavík | Sími 530 1400 | www.rikiskaup.is
RÍKISKAUP
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
Opnar stöðvar
Stöðvar í húsi
Stöðvar í gám
Aukabúnaður eins og sjálfvirkur
skiptirofi og fleira
Öflug og góð þjónusta
Gerðu kröfur — hafðu samband við
Karl í síma 590 5125 eða sendu línu
á kg@klettur.is og kynntu þér þína
möguleika.
Allar stærðir
af AJ Power
rafstöðvum:
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
HROSS&HESTAMENNSKA
Aukin eftirspurn eftir hrossum
Sveinn Steinarsson, formaður
Félags hrossabænda, segir horfur
í greininni góðar og bjartsýni
ríki meðal hrossabænda þrátt
fyrir að kórónuveirufaraldurinn
hafi sett ýmislegt úr skorðum í
starfseminni. Öflugt markaðsstarf
sé að skila sér í gegnum Horses of
Iceland-verkefnið þar sem vöxtur
hafi verið í útflutningi og þrátt
fyrir ástandið hafi náðst að halda
allar kynbótasýningar í sumar eins
og til stóð.
„Þetta hefur vissulega áhrif í
okkar ranni eins og annars staðar,
þar sem þurfti til dæmis að aflýsa
landsmóti. Á landsmótsárum hefur
alltaf verið kippur í sölu á hrossum
og það að við þurftum að aflýsa
hafði líka áhrif á margs konar
þjónustu sem hrossabændur eða
hestaferðaaðilar hafa verið að veita
í kringum mótið. Við vonumst til
að mótahald verði komið í eðlilegt
horf næsta sumar, landsmótinu var
frestað um tvö ár en stefnt er á að
halda Heimsmeistaramót íslenska
hestsins og Íslandsmótið á næsta
ári,“ segir Sveinn og bætir við:
„Ljósi punkturinn er þó sá
að við náðum að halda allar
kynbótasýningar í sumar eins og
til stóð svo það starf varð ekki
fyrir neinni röskun, sem var afar
mikilvægt. Félag hrossabænda stóð
fyrir landssýningu kynbótahrossa
þar sem komu öll kynbótahross sem
annars hefðu verið á landsmótinu í
sumar, viðburðinum var streymt og
var tekið upp svo urðu til heimildir til
jafns við það sem hefði gerst að öllu
jöfnu. Það er mikilvægt að það sé
samfella í upplýsingum og það tókst
í sumar. Í haust stefnum við síðan á
að vera með ráðstefnu fagráðs sem
verður rafrænn viðburður, við tökum
hann upp og sendum út þar sem við
veitum viðurkenningar fyrir árangur
á árinu.“
Markaðsstarfið er langhlaup
Líkt og kom fram í síðasta Bændablaði
hefur verið vöxtur í útflutningi á
hestum og stefnir í sögulega gott ár
þrátt fyrir COVID-19.
„Það er ánægjulegt hvað vel hefur
gengið að selja hross á þessu ári og
virðist það eiga við bæði sölur hér
innanlands og eins erlendis. Það
er alveg ljóst að fleiri hross væru
að seljast ef kaupendur væru að
koma til landsins og á það kannski
sérstaklega við um dýrari hrossin
sem væntanlegir kaupendur vilja
prófa áður en kaup eru gerð. Það er
búinn að vera vöxtur í útflutningi
undanfarin ár þannig að árangurinn í
ár er í góðu framhaldi af því og væri
ánægjulegt ef við færum yfir 2.000
hross í ár,“ útskýrir Sveinn og segir
jafnframt:
„Hrossin fara víða um heiminn og
er það eitt af því sem endurspeglar
áherslur í því markaðsstarfi sem
við höfum stundað undanfarin ár.
Í mínum huga er alveg á hreinu
að áhrif af markaðsverkefninu
Horses of Iceland (HOI) er að
skila sér, verkefnið er markvisst
í markaðssetningu sem er algert
lykilatriði. Kynning á hestinum og
hestamennskunni er það sem mun
standa með okkur í framtíðinni ásamt
því að bæta okkur enn frekar í ræktun
á reiðhestum sem þurfa að vera
umfram allt ganggóðir og traustir.
Við erum orðin
fullkomlega meðvituð
um að markaðsstarf er
langhlaup, ekki bara
þátttaka í einskaka
viðburðum og
sýningum.“
55 milljónir birtinga
„Sem betur fer
höfum við haft góðan
skilning hjá ráðherrum
landbúnaðarmála á
markaðsstarfi okkar
en aðkoma ríkisins
ásamt samstarfi við
Íslandsstofu eru alger
forsenda verkefnisins.
Fjöldi aðila úr ólíkum
áttum hafa komið að
verkefninu. Félag
hrossabænda og
L a n d s s a m b a n d
hestamannafélaga
hafa verið kjarnaaðilar
i þessu verkefni enda
styður starf HOI á
mjög margan hátt við
starf þessara félaga.
Við horfum vongóð til
þess að við fáum nýjan
samning við ríkið enda mikilvægt að
sú þekking og fjárfesting sem þegar
er í verkefninu glatist ekki.
Við eigum í frábæru samstarfi við
Íslandsstofu þaðan sem verkefninu er
stýrt af Jelenu Ohm og í mínum huga
er ekki spurning að kynningar- og
markaðsstarf með hestinn eigi best
heima þar enda mikil samlegð við að
kynna hestinn, landið og tækifærin
á Íslandi samtímis. Jelena rakti vel í
síðasta Bændablaði hvað við höfum
helst verið að fást við en gríðarlegt
verðmæti er orðið i markaðssetn-
ingu í gegnum samfélagsmiðla og
eru birtingar þar 55 miljónir frá því
verkefnið hóf sitt reglulega starf en
nokkurn tíma tók að koma verkefn-
inu á þann stað sem það er í dag. Við
hrossabændur vonum að aukin eft-
irspurn eftir hrossum og þá ekki síst
eftirspurn eftir venjulegum reiðhest-
um, sem oft hefur gengið treglega að
selja, endurspegli fjölgun í röðum
hestamanna og muni þá skila sér í
betri afkomu til framtíðar.“
/ehg
Sveinn Steinarsson, formaður Félags hrossabænda.